Vikan - 23.05.1940, Side 10
10
VIKAN, nr. 21, 1940
Heimilið
Laugardagsmatur.
Brauðsúpa. Soðinn saltfiskur. Kartöflur.
1 4 pottum af vatni sjóðist V2 kg. af útbleyttu
rúgmjöli (óskemmt, gamalt brauð bezt). Síið í
gegnum fínt sigti og setjið yfir eld aftur, með
citrónuberki og kanel (heilum). Þegar sýður á ný,
hellið kaffibolla fullum af saft í og safa úr 2
cítrónum, sem og sykri. Þeytið % pela af rjóma
i tarinuna. Hellið súpunni síðan yfir þeytta rjóm-
ann og þeytið vel saman. — Nægilegt handa 8—
10 manns.
Afvatnið saltfiskinn með 1 matskeið af matar-
sóda. Það gerir fiskinn hvitari og hann soðnar
fyrr. 1 smjör- (smjörlíkis-) sósuna sé sett lítið
eitt af sinnepi og fínt skorið, harðsoðið egg.
Mánudagsmatur.
SeUerí-súpa.
Fiskpylsur með kartöflumauki.
Sé ekki kraftsoð til, þá leysið upp 5 Maggie-
teninga í 2 pottum af heitu vatni. Setjið yfir eld
með 2—3 selleri-hausum sundurskomum og mat-
skeið af smjöri eða smjörlíki. Sjóðið í 1 klukku-
stund eða þar til selleríið er sundursoðið. Síið
síðan. Setjið yfir eldinn aftur, hrærið með varúð
3 matskeiðar af rjóma saman við. Súpuna má
gera þykkari með hveitijafningi. Bæta má súpuna
með eggjarauðum, sem þeytist í tarinunni og sé
sjóðandi súpunni hellt á þær, en hrærið þá stöð-
ugt í með eggja þeytara. Saltist og kryddist eftir
smekk.
Á fiskpylsumar hellist sjóðandi vatn og sé það
á þeim í 5 mínútur við suðupunktinn. Varizt að
hafa suðuna of mikla. Vegna eggjanna, sem 1
þeim em, vilja þær springa við of harða suðu og
em þá ekki eins lystugar. Viðmeti: brætt smjör
eða smjörliki.
Sjóðið 1 kíló af kartöflum, flysjið þær og merjið
i sundur, setjið á eldinn og smáhrærið 1 pela af
mjólk saman við 1 matskeið af smjöri. Krydd
eftir vild. Hrærið vel í, þar til maukið er orðið
heitt og hvitt.
Húsráð.
Til þess að mjólkin sjóði ekki út úr pottinum,
má bera afarlitla feiti þumlungsbreitt á innri
rönd hans.
Flaueli, sem er mjög hmkkótt, má halda yfir
skál af sjóðandi vatni, svo að ranghverfan viti að
vatninu. Þá fara hrukkumar og flauelið verður
sem nýtt.
Það er fyrirhafnarlítið að þvo veggina í eldhús-
inu, ef þér gerið það meðan þeir em votir af
gufu. Þá þarf ekki annað en að fara yfir þá með
hálfþurrum klút og sápu.
Linsterkju ætti ávallt að blanda úr sápuvatni.
Það gerir það að verkum, að jámið límist ekki
við, og gljáinn verður miklu fegurri.
Silkisokka á að þvo úr heitu, en ekki sjóðandi
vatni. Búið til sápukvoðu, en nuddið ekki sáp-
unni inn í sokkana; látið þá liggja í kvoðunni y2
—1 kl.st., og skolið þá úr köldu vatni. Til þess að
þurrka þá, er bezt að vefja þá innan í handklæði,
eftir að þeir hafa verið undnir. ,Að lokum má
straua þá með járni, sem er ekki of heitt.
Óhreint veggfóður má hreinsa með gömlu
hveitibrauði. Brauðið á að vera að minnsta kosti
þriggja daga gamalt, og veggirnir eru nuddaðir
laust með því, niður á við.
Mislita bómuliarkjóla má aldrei hengja til þerr-
is út í sólskin. Hengið þá í skuggann. Eins verð-
ur að varast það að straua þá með of heitu jámi,
því að þá upplitast þeir mjög fljótt.
Haframjöl mýkir skinnið og bleikir það. Sér í
lagi er það gott á höndurnar eftir þvott. Þegar
höndumar hafa verið þurrkaðar, er þeim dýft
ofan í haframjölið og það nuddað vel inn i hör-
undið.
Salt er gott fyrir tennurnar. Það ver himnu-
myndun og styrkir gómana. Það er því ágætt að
bursta tennumar úr saltvatni við og við.
Xylol leysir upp alla málningarbletti á örstuttri
stund. Grjótharðir penslar verða mjúkir, ef þeir
eru látnir liggja í xylol í nokkrar mínútur.
Stíflaðar afrennslispipur má hreinsa með þvi
að hita þær fyrst með sjóðandi vatni; hella síðan
í þær 1 pela af steinolíu, og svo að tíu mínútum
liðnum aftur sjóðandi vatni, þangað til stiflan
er horfin.
Tízkumyndir.
Leggið þunga bók ofan á kollinn og
gangið hægt niður stiga. Ef þér gerið
þessa æfingu á hverjum degi, verðið
þér fljótlega léttar í hreyfingum.
Nýtízku hárgreiðsla. Hárið er greitt
upp í hnakkanum, en áð framan er það
greitt í tvær, stórar rúllur, sem mæt-
ast í miðjunni. Uppi á höfðinu er hárið
allt í smálokkum.
Margir vorhattarnir sitja fram á ennið, og eru með hnakkabandi.
Hér sjáið þið einn slíkan. Hann er hálfskrítinn, en klæðilegur?