Vikan


Vikan - 28.11.1940, Side 3

Vikan - 28.11.1940, Side 3
VIKAN, nr. 48, 1940 3 Séra Sigurbjörn Einarsson: HAUSTH ROLLUR. Qrein pessi eftir sr. Sigurbjörn Einarsson er haust- hugleiðingar orðnar til meðfram í sambandi við lestur bókarinnar „Markmið og leiðir“ eftir Aldous Huxley Sunnudagur í nóvember, auðvitað eins sunnulaus og nokkur dagur getur verið. Birta þessarar dagsstundar í skammdeginu er ekki dagsbirta, ekki sólar- birta, heldur grár fölvi, flöktandi flótta- skíma í faðmlögum við snjóþykknið og fjúkflyksurnar í loftinu og bleikan dauða- litinn á jörðinni. Ljóslaus dagur eftir ianga, gíórulausa nótt — tunglið faldist bak við margfalt þykknið — sunnulaus skuggadagur, sem aðeins eykur ljósþorst- ann. Ljósþorstann ? Hver hefir kvartað um ljósþorsta? Hvort endist ekki skíma þess- ara drungadaga til rökkurstarfanna, hvort munu myrkraverkin í hráslagahúmi hinna löngu nátta hrópa á ljós? Og þó var þetta að vefjast fyrir vitund minni, einsog einhver hefði kallað langt í burtu, langt utan úr svartnætti eða neðan úr undirdjúpum, kallað og beðið um ljós, andvarpað eins og deyjandi skáldið í Weim- ar fyrir 108 árum: „Ljós, meira ljós!“ ímyndun! Fálm í flöktskini nóvember- dagsins! Eða var það að hringsóla í vit- und minni, að það er ekki kveikt á altar- inu í litlu kirkjunni minni í dag ? Ljóslaust altari á sunnudegi — og ég, sem átti að árétta táknmál altarisljósanna, skýla þeim fyrir gustinum inn um veggjarifur hins hrörlega helgidóms, vekja ljósþorsta, svala ljósþorsta — ég er á marklausu ferða- lagi í sunnuleysi þessa drottinsdags. Ljósþorsti, altarisljós — jú, ljósin loga á öltörum margra kirkna í dag, þyrstar sálir svalast við boðskap dagsins, 26. sunnudagsins eftir Trinitatis: Á þeim tíma tók Jesús til máls og sagði: Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar .... Allt er mér falið af föður mínum......... Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir og ég mun veita yður hvíld. ----- Sagði ég „margar kirkjur“, var ég að tala um þyrstar sálir? Er mér að förlast raunsæið í villiskímu þessarar dagsglóru? Læt ég mér til hugar koma, að það skipti nútímann neinu, þótt Jesús hafi tekið til máls „á þeim tíma“, þessum fjarlæga, óupplýsta, þekkingarsnauða, kyrrstæða, hjátrúarringlaða fornaldartíma, þegar menn vissu ekki einu sinni, að jörðin snýst, urðu að notast við árar, segl, asna og úlfalda í stað gufuvélar og benzínhreyfils, voru örsneyddir þeim vef skilningsins, því kerfi hugtakasambandanna, sem „tengir frumeindina við stjörnuþokuna og hvort- tveggja við morgunverðinn" og — (ef ég mætti halda áfram) — hestageldingar við úldinn garnmör austur í Vík og hvort- tveggja við skriffinnsku suður í London, kjaftaskúm við kenningar Búddha og hvorttveggja við salernið,------á þeim tíma, nítján öldum áður en framþróunnátt- úrunnar óx fram og upp til heilans í Aldous Huxley, nítján öldum áður en skilningsþroski Islendinga var orðinn sam- boðinn andagipt hans? Fávísa fortíð, blindu, vegvilltu kynslóð- ir horfinna daga! Hefir ykkur þyrst eftir orðum hans, þessa manns frá Nazaret, þar sem það er þó upplýst, að hann „gaf ná- lega engan gaum að stjórnmálum, fjár- hagsmálum og kynferðismálum“ ? Gæfu- sama, upplýsta nútíð! Þú, sem hefir eign- ast hina fullkomnu sjáendur, sem gaum gefa þetta allt saman og margfalt miklu fleira, sem kafa til botns í hverri botn- leysu, varpa í skaut þér hinni hjálplegu lausn á öllum viðfangsefnum — stjórn- málum, fjárhagsmálum, kynferðismálum, svo ekki sé minnst á heimspeki, list, tón- list eða vísindi. Altarisljós! Lýsir ekki tendruð þrístika æðri menningar yfir leið- ir þínar að mikilfenglegu markmiði? Þorsti! Hefir ekki höfugur ávöxtur hug- sjónaskilnings og dýrar veigar hugsjóna- framkvæmda borist þér að vörum? Guðs orð?! „Bronsaldarbókmenntir, forðabúr villimannlegrar heimsku“ — þar sem hægt var að finna réttlætingu allra hugsanlegra glæpa. Jesús?! „Samvizkusamleg dýrkun og eftirlíking persónu Jesú hefir helzt til oft leitt alvarlega kristna menn til þeirrar háskalegu hneigðar að fyrirlíta listaverk og lieimspekilega hugsun, óvirða rannsókn- aranda, forðast allar framsýnar og víðtæk- ar aðgerðir í stjórnmálum og f járhagsmál- um og telja sér heimilt að láta í ljós reiði“ — og þar með hefir hann verið afgreiddur, það er ljóst, hvernig á því stendur, að heimurinn er ekki lengra kominn en raun er á. Nei, litli klerkur, ekki þarftu að líða önn fyrir þína mannlausu, lokuðu kirkju, þitt ljóslausa altari! „Hið heilaga Guðs orð, sem tilheyrir þessum drottins degi“ — villi- mennska og bronsaldarbókmenntir, segir myndug rödd utan úr stórum, voldugum og hamingjusömum heimi. Og þessi stóri, voldugi og hamingjusami heimur hefir ekki aðeins tendrað hinn líttloganda hörkveik í þrístiku íslenzkrar menningar með leift- urljósi eins hins glæstasta anda síns, hann hefir skyndilega margfaldað verðmæti ís- lenzks matar, svo að hvert meðallamb leggur sig á fjörutíu krónur eða meir og einn lúðubleðill er níutíu króna virði á bryggju. Ég veit ekki, hvort þetta á held- ur að teljast markmið eða leið, en það kemur yfir mig eins og vitrun í skyggn- um dásvefni eða annarlegu svefnrofs- ástandi, að armur Islendingur lifir ekki á Guðs orði, heldur á lúðu og lambaketi — nei, lifir á því að framleiða lúðu og lamba- ket handa einhverjum, sem þurfa að lifa, a. m. k. fram til næstu nætur, til næstu vel heppnuðu loftárásar einhverra, sem líka þurfa að lifa, einhverra, sem líklega eru vaxnir frá því að finna réttlætingu glæpa sinna og heimsku í „þessu forða- búri villimannlegrar heimsku", Gamla testamentinu, glæpur og heimska ef til vill ekki til lengur á þeirra tilverustigi, ein- hverra, sem fáfræði Nazareans ekki háir lengur. Guðs orð?! Var verið að tala um það? Hefir hann beðið um orðið? Hefir nokkur kvatt hann til þess að leggja orð í belg? Eigum við ekki verðmæta lúðu uppi í lands- steinum og fyrsta flokks lambaket, spað- brytjað og í heilum skrokkum og svo Aldous Huxley og geislandi andagipt hans í nærri hverri íslenzkri baðstofu, eins og sjóð íslenzkrar menningar á vöxtum í fimmtíu þúsund hjörtum þrettán þúsund heimila? Guðs orð ?! Stafar ekki öll ógæfa mann- kynsins af dýrkun persónulegs Guðs? Guð talar ekki, því hann er ekki persónulegur og persónulaust, viljalaust og innihalds- laust nafn talar ekki. Það er ekki aðeins fávizka, bjánaháttur og markleysa að tala um Guðs orð, samkvæmt nýjustu, óhagg- anlegustu niðurstöðum, það er glæpsam- legt. Og ég, sem er að fá skerptan álykt- unarhæfileika við lestur gagnsamlegra bókmennta, sem ég fæ gefins, ég sé, að það verður lúðan og lambaketið, sem skiptir máli, en ekki hrörlegt, gisið musteri með heilagri lexíu einhvers drottinsdags, því að lúðan og lambaketið eru ópersónulegar staðreyndir, persónulaust kapital, með persónulegri skírskotun til hjartans, — nei, fyrirgefið, magans. Og ég fer, vegna þeirrar brýningar á skilningnum, sem ég hefi fengið án útgjalda, að sjá í nýju ljósi það, sem vitmenn og gáfnamenn, „hyggn- ir hugsjónamenn“, mannvinir og menning-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.