Vikan - 28.11.1940, Side 10
10
VIKAN, nr. 48, 1940
milið
Heimilið
eða skriístofan?
Hvor haldið það að lifi hamingju-
samara lífi, húsmóðirin eða konan,
sem vinnur úti?
Matseðillinn.
Kjötréttur: Griílerað kjöt.
3 kg. kjöt (læri eða frampartur),
200 gr. smjör til að steikja i,
3 egg eða hveitijafningur og
400 gr. steyttar tvíbökur.
Kjötið er höggið í nokkuð stór stykki og soðið
i fjórum lítrum af vatni með hálfri matskeið af
salti út í, í 5 til 6 stundarfjórðunga og síðan látið
kólna. tá er það skorið í hæfilega stórar sneiðar
eða stykki, dýft í egg og velt upp úr steyttum
tvíbökum. Brúnað á pönnu, þar til það verður
fallega Ijósbrúnt báðum megin. Látið á fat og
borið á borð með brúnuðu smjöri, soðnum kartöfl-
um og einnig ýmsu öðru grænmeti.
Súpa með makkaroni
og rifnum osti.
4 litrar kjötsoð írúllupylsu- eða salt-
kjötssoð er ágætt),
80 gr. smjör,
80 gr. hveiti,
70 gr. makkaroni og
60 gr. rifinn ostur.
Makkaroni er soðið í söltu vatni í 40 mínútur.
Hellt upp á gatasigti og skolað úr köldu vatni
og vatnið látið síga vel af. Soðið er hitað, smjörið
brætt og hveitinu jafnað saman við og þynnt út
með sjóðandi soðinu. Súpan er soðin hægt í tíu
mínútur. Þá er ostur og makkaroni látið út í.
Nú fer að líða að því, að menn fara að búa út
gjafapakkana. Gott er að hafa það í huga að
halda saman öllum öskjum og kössum, sem til
falla við innkaup og á annan hátt, því að það
hefir mikið að segja, að umbúðirnar um gjafimar
séu góðar og failegar.
críjeo.Gfre''IQ -1-4
Ef þér ætlið að búa til „sandwiches“, þá er gott
að skera brauðið að endilöngu, það sparar tima
og fyrirhöfn. Brauð í ,,sandwiches“ er bezt eins
dags gamalt. ,
Ef egg eru óhrein, er auðvitað sjálfsagt að þvo
þau, en þó ekki fyrr en rétt áður en þau em
notuð. Vatnið þvær burtu himnuna, sem tefur
fyrir útgufun úr egginu og ver bakteríum að
komast inn í það.
Hafið venjulegan svamp (eins og notað er við
skólatöflur) á skrifborðinu, þar sem börnin sitja
við skriftir og látið þau nota hann sem penna-
þurrku, það mun spara yður mikla fyrirhöfn og
gremju við að ná burtu blekblettum, sem börn-
unum hættir við að láta eftir sig á hinum ólík-
legustu stöðum.
Mikill aldursimmm*.
John Heflin frá Amissville, 76 ára gamall, sést
hér á myndinni með brúði sinni, Delvina Walker,
sem er 15 ára. Nýgiftu hjónin ætla ao búa hjá
fjölskyldu brúðurinnar. Delvina á bróður, þriggja
ára gamlan, sem þannig eignast 76 úra gamlan
mág.
Þessa spurningu lagði ameríska blaðið „Journ-
al“ fyrir kvenlesendur sína. Sjötíu og fjögur pro-
sent af þeim 38 milljónum, sem svöruðu, töldu
húsmóðurina hamingjusamari.
Við nánari sundurgreiningu kom það í ljós, að
sveitaþonur voru yfirleitt sannfærðari um ágæti
húsmóðurstarfanna, þvi að 79% af þeim töldu
húsmóðurina hamingjusamari. Konur, sem eiga
börn, eru sannfærðari um, að hlutskipti húsmóð-
urinnar sé betra; 77% þeirra svöruðu henni í vil,
en aðeins 68% af barnlausum konum svöruðu
þannig.
Um spurninguna: Álítið þér að konur, sem hafa
sjálfstæða atvinnu, standi betur að vígi með að
viðhalda fegurð sinni og æsku, heldur en hús-
mæður? voru svörin jafnskiptari. 51% sögðu
„nei“, en 49% sögðu ,,já“.
Litla, ljóshærða skrifstofustúlkan, sem vinnur
á einkaskrifstofu húsbóndans, er ekki hættuleg
hjónabandshamingjunni, að áliti meirihluta þeirra,
sem greiddu atkvæði. 59% sögðu ,,nei“ við spum-
ingunni: Álítið þér, að lagleg skrifstofustúlka sé
hættuleg hjónabandshamingju húsbóndans? En
41% voru á gagnstæðri skoðun. Konur, sem búa
í borgum — þar sem að jafnaði eru hlutfallslega
fleiri skrifstofustúlkur — sýndu eiginmönnum
sinum meira traust, þvi að 61% af þeim sögðu
,,nei“ við spumingunni. 1 minni bæjum voru „nei-
in“ 59%, en 54 í sveitum.
Ein af þeim tortryggnu var hjúkrunarkona í
New York, tuttugu og sex ára gömul; hún sagði:
„Stundum em þær það — sumir menn ráða þær
af því að þær eru laglegar.“ 1 flokknum, sem
sagði ,,nei“, var nítján ára gömul húsmóðir frá
Lebanon í Oregon, sem sagði: „Ef hún passar
sitt starf og hann sitt, þá er allt í lagi.“ önnur
úr sama flokki, sem gift er rafvirkja, sagði: „Ef
maðurinn byrjar að leita út fyrir heimilið, myndi
hann gera það hvort sem væri.“ Sönn ímynd hins
kvenlega trúnaðartrausts var tuttugu og sex ára
gömul bílstjórafrú, sem sagði: „Ég myndi ekki
vilja móðga manninn minn með því að gruna
hann um slíkt athæfi."
Bandaríkjalier æfir sig í leifturstríði.
Þungir herflutningavagnar aka yfir flotbrýr, sem byggðar voru á 2 klukkustundum og 3 stundar-
fjórðungum, og er þetta einn liður í leifturstríðsæfingum hers Bandaríkjanna. Það kom i ljós í sókn
Þjóðverja í sumar á vesturvígstöðvunum, að skyndibygging slíkra flotabrúa hefir mikla þýðingu.