Vikan


Vikan - 28.11.1940, Síða 11

Vikan - 28.11.1940, Síða 11
~VTKAN, nr. 48, 1940 11 MaluríHi, sen keyiti Ltmdon OD Framhaldssaga eftir EDGAR WALLACE Fyrir þá, sem voru áhorfendur að þessu alvar- lega samtali þarna við arininn, var svo að sjá, sem gamli maðurinn mundi ganga að hverju sem væri til þess að forða nafni sínu frá vansæmd. Og það var ekki laust við, að sumir af þeim, sem voru þarna, vonuðu, að hann gengi að skil- yrðum Kerrys. Þegar samtalinu var lokið, tókust þeir í hendur, og Kerry fór, en gamli maðurinn stóð eftir keik- réttur og brosandi. Allir þeir sem viðstaddir voru brunnu í skinn- inu eftir að fá að vita hver hefði orðið árangur- inn af samtalinu, en hann var aldursforsetinn í hópnum og þeir báru allir virðingu fyrir honum. En hann lét þá ekki bíða lengi. „Herrar minir,“ sagði hann með sinni fögru gamalmennisröddu, og samstundis varð stein- hljóð. „Herrar mínir, mér finnst, að þið hafið rétt til að vita það, að herra Kerry hefir keypt verzl- nn mína.“ Það var auðfundið, að mörgum létti við þessi tíðindi, og sumir fóru að óska honum til ham- ingju. En hvað var verðið? Það var til of mikils mælst, að þessi gamli maður, sem hafði verið dulur og fáskiptinn alla sina ævi, færi nú allt í einu að leysa frá skjóðunni, en þeim til mikillar undrunar gerði hann það. „Herra Kerry var svo almennilegur að borga mér fullt verð,“ sagði hann. „Hann er á undanhaldi,“ sagði Leete ákafur, „hann fær að borga . .. .“ Hermann skellti upp úr. „Á undanhaldi, asninn þinn,“ sagði hann bros- andi. „Það verður þú, sem færð að borga fyrir örlæti hans — það lendir á ykkur öllum. Skilurðu það ekki? Ef Modelson gamli hefði orðið gjald- þrota, hefði það valdið feikna gremju. Gamalt fyrirtæki verður gjaldþrota vegna óheiðarlegrar samkeppni, hvítskeggjað, gráhært gamalmenni rekið á sveitina eftir langt og heiðvirt ævistarf. Það hefði gert King Kerry óvinsælan, og ef til vill eyðilagt ráðagerðir hans. Þú þekkir ekki King Kerry.“ „Að minnsta kosti fer ég til hans á morgun með gamla tilboðið mitt,“ sagði Leete þrákelnis- lega. „Hvað vildi hann fara hátt síðast?“ spurði Zeberlieff. „Þrjá fjórðu úr milljón,“ svaraði Leete. „Sannaðu til, að hann mun bjóða þér hundrað þúsundum minna á morgun,“ sagði Hermann. Hann hafði fulla ástæðu til að gorta af því, að hann þekkti King Kerry, því að þegar Leete kom til hans morguninn eftir öruggur og vongóður, eftir að hafa troðið sér í gegn um þvöguna, sem stóð fyrir framan gluggana í gimsteinahúsinu, var boðið, sem „kóngurinn" gerði honum ná- kvæmlega hundrað þúsundum minna. Leete var ekki sá eini, sem misskildi göfuglyndi Kings Kerry, og heldur ekki sá eini, sem fékk að kenna á því, að það var ekki eintómur leikur að eiga skipti við King Kerry. 23. KAPÍTULI. Teiknarinn, sem var rekinn. Elsie Marion hafði mikið að gera, en hún var ánægð og hamingjusöm. Græni liturinn á kort- inu breiddist út. Hún kallaði reitina „sigurmerk- Það, sem skeð hefir hingað til í sögunni. King Kerry er dularfullur, amerískur milljónamæringur, sem dagblöð Lundúna segja að ætli að kaupa London. Á bak við hann stendur auðhringur, sem kallar sig ,,L“. Kerry hefir þegar keypt verzlunina Tack & Brighten, þar sem Elsie Marion vinnur, og ráðið hana til sín sem einkarit- ara. — L-hringurinn hefir feikna miklar ráðagerðir á prjónunum í sambandi við lóðakaupin í London. En hann á sína and- stæðinga og á meðal þeirra eru Hermann Zeberlieff og fyrverandi forstjóri Tack & Brigthen, Leete. Bray, sem ætlar að verða húsameistari, er vinur og nábúi Elsiear. Kerry trúir Elsie fyrir því, að hann hati Zeberlieff af þvi að hann hafi hagað sér svívirðilega gagnvart konu. Vera, hálfsystir Zeberlieffs, býr hjá honum, af því að faðir þeirra setti það skilyrði í erfðaskránni, að þau byggju saman í fimm ár og nú eru að- eins nokkrir dagar eftir af þeim tíma. Vera óttast bróður sinn. Bray kemur til að sækja Veru, og aka þau til skólans, þar sem hún úthlutar verðlaunum. Bray, sem er einn nemendanna, fær verðlaun. Hjá Zeberlieff eru fjórir menn til miðdegisverðar. Vera vill ekki koma niður til þeirra, en Zeber- lieff fer þá upp til hennar og ætlar að ráða hana af dögum. Það tekst þó ekki. Vera brýtur rúðu í búðarglugga Kings, til þess að láta setja sig í fangelsi. Elsie hefir keypt „Evening Herald" fyrir King. Zeberlieff vill gifta systur sína Hubbard „fagra“, til þess að klófesta þannig auðæfi hennar. Zeberlieff hittir Bray og ræðir við hann um systur sína og gefur Bray svefnmeðul i víni og lokar hann niðri í kjallara. — Vera losnar úr fangelsinu, og þegar Her- mann kom að heimsækja hana, ógnaði hún honum með skammbyssu. Þegar Hermann kemur heim til sin, er Leete þar fyrir og segir honum, að lögreglan sé sennilega á hælunum á honum. Þegar Hermann kemur niður í kjallara, er Bray horfinn. Leete og Hermann fara í kaupmannaklúbbinn, þar sem kaupmennirnir bera saman ráð sín til baráttu gegn Kerry. Allt í einu kemur Kerry inn og gefur sig á tal við Modelson gamla kaupmann. in“, og henni var mjög umhugað, að þeir yrðu sem flestir. Svo kom hinn mikli dagur, þegar blöðin voru full af frásögnum um hin miklu kaup, sem King Kerry hafði gert. Kaupin á húseign George Fallingtons lávarðar. Fallington lávarður var þingmaður í efri málstofunni og milljóna- mæringur og hafði óhemju tekjur af lóðum sín- um í miðju West End. Ef til vill hefir það verið óttinn við nýja lög- gjöf, sem beint væri gegn lóðareigendum, sem rak hann til að selja, og ótti hans var vissu- lega ekki ástæðulaus, því að stjómin, sem var hin fræga Jagger Shubert sambræðslustjóm, varð að aLla ríkissjóði tekna til að standast straum af þeim miklu þjóðfélagslegu umbótum, sem hún hafði á prjónunum og leit því ágimdaraugum til stóreignamannanna. Hver sem ástæðan annars var, þá seldi Fall- ington lávarður, og þegar hringurinn komst lika yfir Bilsbury-eignina, var sigurinn að hálfu leyti unninn. Dag nokkum kom Kerry inn á skrifstofuna með miklu fasi og var sýnilega mikið niðri fyrir. Án þess að mæla orð, lokaði hann hurðinni á eftir sér og gekk þvert yfir gólfið að stálhurð- inni, sem lá inn í skrifstofuna út að götunni, spegilherbergið, þar sem hinn stóri peningaskáp- ur hringsins stóð. Hún leit undrandi upp, þegar hún heyrði stál- hurðina skella á hæla honum. Aðeins einu sinni frá því að hún byrjaði að vinna hjá honum, hafði hann farið í gegnum þessar dyr, og þá hafði hún farið með honum og samkvæmt ósk hans snúið baki að peningaskápnum á meðan hann var að eiga við bókstafalásinn. Hann var tíu mínútur í burtu, og þegar hann kom aftur hafði hann með sér lítið umslag. Hann nam staðar á miðju gólfi, kveikti á eldspýtu og brá henni upp að einu hominu á umslaginu. Jafn- óðum og askan féll niður á gólfið, tróð hann á henni. Þegar þessu var lokið, varpaði hann önd- inni léttara og brosti að áhyggjusvipnum á Elsie. „Þannig tortímast allir svikarar,“ sagði hann fjörlega. „Það var dálitið i umslaginu, sem ég þráði að eyðileggja. „Ég sá það,“ sagði hún og hló. Hann gekk yfir að skrifborðinu til hennar. „Þér hljótið að vera alveg að sligast undir þessari vinnu,“ sagði hann. „Það er víst bezt, að ég fái mér hljóðritara og hraðritunarstúlku.“ „Ég hefi í raun og veru ekkert að gera,“ and- mælti hún. Hann minntist ekkert frekar á brennda um- slagið, en hún braut mikið heilann um, hvaða dýrmætur leyndardómur hefði verið geymdur í því. Undarlegt líf! Og undarlegur maður! Reikning- ar, bréf og skeyti streymdu til hans á öllum tím- um sólarhringsins, stundum á dularfullu rósamáli, sem hún botnaði ekkert í, en færði honum þýð- ingarmiklar upplýsingar. Síminn hringdi, og hann svaraði játandi, eða þá nei, og hengdi tækið á aftur. Hvað var markmið hans með þessari sókn ? Vinir hans og óvinir spurðu, en fengu ekkert svar, og blöðin voru full af getgátum. Hvers vegna keypti hann hinn gamaldags Tottenham Court Road og Lambeth Walk og ýmsa aðra staði, sem lágu i útjaðri verzlunarhverfanna i London? „Hann kaupir lóðir,“ sagði eitt blaðið, “eins og hann búist við að þungamiðja viðskiptalífsins í London muni flytjast út fyrir þann hring, sem hefir miðpunkt í miðju Regent Street, til------- Lengra náði vizka blaðsins ekki. Það leit svo út, sem Kerry hefði ekki eins mikinn áhuga fyrir flutningi þessa punkts og stækkun hringsins. Hann hlaut að vera í meira lagi bjartsýnn, ef hann ímyndaði sér, að starf- semi hans myndi auka velmegun Lundúnabúa svo mikið, að hann gæti stækkað verzlunarsvæðið um helming. Maður að nafni Biglow Holden, uppskafnings- legur yfirborðsmaður, sem hafði grætt stórfé á teikningum á minni háttar húsum, hafði skrifað hávísindalega grein í Building Mail. Hún var full af hagfræðilegum töflum og línuritum, sem sýndu vöxt London í hlutfalli við fólksfjölda, og sem að lokum sýndi fram á, að King Kerry yrði að bíða í þrjú hundruð og fimmtíu ár, áður en draumur hans gæti ræzt. Gordon Bray, sem vann á skrifstofunni hjá Holden, vélritaði greinina fyrir húsbónda sinn og var honum algerlega ósammála um niðurstöðum- •ar og gramdist allar smekkleysumar og mál- villumar i henni. Holden spurði hann um álit hans á greininni, en Gordon dró við sig svarið. „Þér haldið víst, að þér gætuð gert það betur sjálfur,“ sagði Holden hálft í hvom í spaugi. „Já, það held ég,“ sagði Gordon í einlægni. Holden leit þóttalega á hann. „Þér eruö farinn að líta nokkuð stórt á yður, herra Bray,“ sagði hann í viðvörunartón. „Hér á skrifstofunni er ekki pláss fyrir unga menn, sem þjást af ímyndaðri stórmennsku. Hvaða kaup fáið þér núna?“ „Þrjú pund á viku,“ svaraði Gordon. „Þrjú pund á viku,“ Holden leit upp í loftið, „þegar ég var á yðar aldri, hafði ég átján shill- inga og þótti gott.“ „Það er ekki mikið fyrir teiknara,“ mótmælti Gordon.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.