Vikan


Vikan - 16.01.1941, Page 1

Vikan - 16.01.1941, Page 1
Nr. 3, 16. janúar 1941 Þessi mynd er talin stórkostlegt listaverk og á að sýna, hvaða hlutverk innflytjendur Bandaríkjanna hafa unnið í þágu iðnaðarins. Listaverkið er skii- getið afkvæmi raunsæisstefnunnar og aðalhöfundur þess er Ed Lanning. s - «»'**% Kreppa skapar list. að má búast við því, að listsögnritarar framtíðar- innar fyllist undrun yfir þeim fjölda veggmálverka, sem Norð- ur-Ameríka hefir verið prýdd með á undanförnum árum. En það er sennilegt, að þeir muni ekki eiga auðvelt með að skilja, hver var orsök þessarar fram- leiðslu á sviði listarinnar. I Róm hinni fornu, Pompej og í Egypta- landi var reynt að láta almenn- ing njóta listaverkanna, af því að þá hafði listin náð sérstöku hámarki vegna fjárhagslegrar velmegunar. En í Bandaríkjunum er það sama af allt öðrum rót- um runnið. Þar var fátæktin og atvinnuleysið orsökin. — Vorið 1935 var stofnuð atvinnubótanefnd í Bandaríkjunum, er fekk það geysimikla hlutverk að skipuleggja atvinnuhjálp þá, sem hin einstöku ríki höfðu ákveðið að verja fé til. Hún sá um, að reistar voru opinberar bygging- ar, gerðir skemmtigarðar, skolp- veitukerfi, flugvellir, sundlaug- ar, flóðgarðar o. s. frv. En listamönnunum var ekki gleymt í þessari vinnu hins opin- bera. Listmálarar, myndhöggv- arar, hljómlistamenn, rithöfund- ar, leikarar og ýmsir aðrir menn andlegrar stéttar fengu sinn hluta af þessu atvinnubótafé. Nýtízku byggingarlist, sem þróast hafði ört fyrir árið 1929, rétti listamönnunum engin tækifæri í hendur. Ef þeir þá fengu að skreyta einhvern vegginn 1 opinberri byggingu, var látið bera sem minnst á öllu slíku. En svo minnkaði andúð arkitektanna gegn veggmálverkunum. Og það er ekki sízt [Framh. á bis. 3. Aldrei síðan í fornöld hefir verið gert jafn mikið að því að láta listina ná út á meðal fólksins, eins og í Ameríku á undanförnum ár- um. En á fyrri tímum var mikil velmegun orsök þessa — nú er það vegna atvinnuleysis og neyð- ar. Það hefir verið þáttur í kreppuráðstöfunum hins opinbera að láta listamönnunum í té vinnu, og hefir þetta orðið til þess að sköpuð hefir verið einstæð list, hvað veggmálverkin snertir.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.