Vikan - 17.04.1941, Qupperneq 9
VIKAN, nr. 16, 1941
9
Myndasíða.
'
Brezkur hermaður, sem stjórnar skrjðdreka, kyssir á krossinn,
þegar biskupinn af Canea leggur blessun sína yfir fyrstu brezku
vélahersveitimar, sem stíga á gríska grund.
Skömmu eftir að nýtt ljónabúr var opnað í dýragarðinum í New
York var Brutusi — þriggja ára gömlu karl-ljóni — hrint ofan í
þessa djúpu gryfju, af fjórum félögum sínum. Gryfjan aðskilur
ljónabúrið og áhorfendasvæðið. Ljónatemjarinn James N. Haynes
er að reyna að fá Brutus til að fara upp rennu, sem rennt hefir
verið niður til hans, en Brutus neitar, og nú bíða verðimir eftir
því að hungrið reki hann upp úr. Brutus vegur 350 pund.
Flugmaður úr brezka flughemum setur kross, sem búinn er til úr
leifum af italskri sprengjuflugvél, yfir gröf fimm flugmanna, sem
létu lifið í Ioftorustu yfir Mersa Matmh í vestur-eyðimörk Afríku.
Bretar segja, að átta flugvélar hafi verið skotnar niður i þessari
orustu.
Maður, sem ég þekki, hefir fundið upp vekjaraklukku úr gúmmí,
sem er tilvalin handa svefnpurkum. Þó að maður fleygi henni út í
hom, heldur hún áfram að hringja og hoppar aftur upp í stólinn
hjá rúminu og segir „góðan daginn!"
Pokahlaupiö mikla.