Vikan


Vikan - 12.06.1941, Blaðsíða 1

Vikan - 12.06.1941, Blaðsíða 1
# Roosevelt sver forsetaeiðinn í þriðja sinn. Einstæður atburður í allri sögu Bandaríkja Norður-Ameríku. Forsetakosningin í Bandaríkjunum á síðast liðnu hausti var fyrir margra hluta sakir merkileg. En mesta at- hygli vakti hún fyrir það, að hefð, sem George Washington, fyrsti forseti Banda- rikjanna, skapaði fyrir 250 árum, var með henni að engu gjör. Þegar hið unga lýðveldi valdi sér fyrsta forsetann að afloknu frels- isstríðinu 1788, var Washington einróma kjörinn forseti þess sakir afburða hæfi- leika og vinsælda, sem hann hafði aflað sér í stríðinu. Hann var endurkosinn í lok kjörtímabilsins, en þegar átti að kjósa hann í þriðja sinn, neitaði hann að taka við kosningu, og skapaði með því hefð, sem aðeins einn forseti á undan Roosevelt hef- ir sýnt vilja til að brjóta. Það var Grant hershöfðingi, sem aflaði sér mikilla vin- sælda og frægðar í þrælastríðinu og var kjörinn forseti í næstu tvö kjörtímabil á eftir. Þrátt fyrir vinsældir hans þorði flokkur hans ekki að láta að vilja hans um að hafa hann í forsetakjöri í þriðja sinn, og síðan hefir enginn forseti gert tilraun til að sitja lengur en tvö kjörtímabil, þang- að til Roosevelt nú við síðustu kosningar. Og samt var það svo, að fram til þess síð- asta neitaði hann að iáta nokkuð uppi um það, hvort hann ætlaði að gefa kost á sér í þriðja sinn. Myndin hér að ofan er af hinni hátíðlegu og sögulegu eiðtöku. Roosevelt er lengst til hægri, alvarlegri en maður á að venjast á mynd. Hann leggur höndina á biblíuna, og er sú biblía búin að vera í eigu Roose- velt-ættarinnar í tvær aldir. Eiðtökunni stjórnar forseti hæstaréttar Bandaríkj- , anna, Charles Evans Hughes, lengst til vinstri á myndinni, og fór hún fram á sama stað og allir forsetar Bandaríkjanna hafa svarið eiðinn allt frá dögum Monroe (1817 —1825), en við hann er Monroe-kenningin kennd, sú sem mjög er umtöluð nú í sam- bandi við afstöðu Bandaríkjanna til stríðs- ins í Evrópu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.