Vikan - 12.06.1941, Blaðsíða 8
8
VIKAN, nr. 24, 1941
Gissur og Rasmína.
Dóttirin: Það var dásamlegt að fara þessa leið í bíl.
Tengdasonurinn: Að vísu — en mér finnst það hafa verið hyggilegt af Gissuri að fara með
lestinni á undan okkur hingað í gær.
Rasmína: Varstu ekki einmana í gærkvöldi, Gissur minn?
Gissur: Jú — ég las dálítinn tíma, en svo fór ég í rúmið klukkan eitt. Ég þorði ekki út, því
að ég var ekki viss um að rata um borgina.
Rasmína: Erla og maðurinn hennar eru of þreytt til að fara
út, en við getum farið og fengið okkur mat og haft það skemmti-
legt.
Gissur: Við getum borðað — en að við skemmtum okkur —
það er annað mál!
Dyravörðurinn: Fyrirgefið —• viljið þér fá sama bílinn
og í gærkvöldi ?
Rasmína: Þessi dóni þykist þekkjá þig . . .
Gissur: Já, það er skrítið, hve mörgum er gjarnt á að
taka feil á mér og öðrum mönnum.
Maður á gangstéttinni: Jæja, fél'agi, þú hefir náð
alla leið heim — ég kom þér eins langt og ég gat.
Rasmina: Við hvað á maðurinn?
Gissur: Hann heldur, að ég sé einhver sem hann
þekkir.
Blaðsöludrengurinn: Halló, gamli! Þakka
þér fyrir síðast. Það eru ekki allir, sem gefa
manni fimmkall fyrir svona lítið eins og í
gærkvöldi.
Rasmína: Þú fórst ekkert út í gærkvöld?
Gissur: Þú skalt ekki vera að hlusta eftir
því, sem strákurinn segir — þetta er þeirra
háttur á að selja blöð hérna.
Yfirþjónninn: Velkominn aftur! Hér er sama borðið og þér höfðuð i gær.
Gissur: Það er góða veðrið núna!
Rasmína: Ég vit ekki sjá þetta borð!
Sölustúlkan: Fyrirgefið, herra! En nú hefi ég vindlana, sem
þér vilduð fá í gærkvöldi.
Rasmína: Við höfum ekkert að gera við vindla, við erum
að fara!
Drukkinn náungi: Hikk — halló! — tra-la-la — Ertu
að fara? Við ætlum á sama næturklúbbinn og í gær-
kvöldi og skemmta okkur — hikk — Þú kemur líka!
Rasminar GISSUR! Náðu í hattinn þinn samstundis.
Þjónninn í glugganum: Snúið þér við maðurÞ
Langar yður til að drepa yður?
Gissur: Mig langar til að lifa — þess vegna
flý ég!
Járnbrautarmaðurinn: Vitið þér, hvert lestin er að
fara?
Gissur: Mér er alveg sama um það, bara að hún
haldi áfram.