Vikan - 12.06.1941, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 24, 1941
9
Frétta
, i
myndir.
Georges Robert aðmíráll er yfir-
maður og raunverulega einvaldur
yfir öllum nýlendum Frakka í
Vesturálfu. Vichy-stjórnin skipaði
hann og er aðalhlutverk hans að
annaðs landvarnir nýlendnanna,
en eins og kunnugt er, má búast
við átökum milli Bandaríkjanna
og Frakklands um þessar nýlend-
ur, vegna þess að Bandaríkin ótt-
ast, að Þjóöverjar kunni að ná þar
einhverri fótfestu.
Robert B. Williams, major, erind-
reki flugflota Bandaríkjanna í
London, særðist nýlega í loftárás
á London. Hann hefir undanfárna
fjóra mánuði .verið í Englandi til
að kynna sér lofthernaðinn og afla
sér reynslu, sem gæti orðið lönd-
um hans að liði.
Þetta er nýjasta gerð af steypiflugvélum Bandaríkjafiotans, sem
sagt er að séu þær fullkomnustu í heimi. Curtiss-Wright verksmiðj-
urnar framleiða þær. Þær ganga fyrir 1700 hestafla vél og geta
flogið um 350 mílur á klukkustund. Sprengjunum er komið fyrir
innan í bolnum, en. ekki neðan á honum eða undir vængjunum, til
þess að loftmótstaðan verði minni.
Jerry, litli, hvíti rottuhundurinn á myndinni virðisj: alveg ósnortinn
af alvöru lífsins, sem birtist í reyndum svip félaga hans til beggja
hana. En hann er heldur ekki nema átta vikna og alvaran kemúr
með aldrinum.
Þessir þremenningar stjórna efsta bekk í flotaháskóla Bandaríkj-
anna í Annapolis. Burtfararprófið var haldið í janúar í stað júní,
af því að þörfin á nýliðum handa flotanum er svo mikil. Þeir eru
að skoða líkan af sprengjuflugvél, sem flotinn væntir sér mikils af.
Þetta eru tveir af frægustu knattspyrnuþjálfurum Bandaríkjanna,
Charlie O’Rourke (til vinstri), sem starfar við Boston College og
Dennis Edward Myers, sem starfar við Brown University.
v