Vikan - 10.09.1942, Síða 2
2
VIKAN, nr. 32, 1942
Pósturinn
Svar til Lóló Ingveld.
1. Bursta þær kvölds og morguns
og helzt líka eftir hverja máltíð.
2. Ef þér hafið dökkt hár, er það
heillaráð að þvo það upp úr eggja-
rauðu og skola það upp úr vatni með
nokkrum dropum af safa úr sítrónu
saman við. Ef þér eruð ljóshærðar,
skuluð þér reyna kamillute.
3. Margir álíta að laxerolía geri í
þessu efni mikið gagn, ekkert væri á
móti þvx að reyna hana.
Kæra Vika!
Geturðu sagt mér, hvort drykkur-
inn „Coca CoIa“, sem verið er að
auglýsa í Reykjavík, sé áfengur.
Drykkjurútur.
Svar: Ónei, við verðum því miður að
hryggja yður með því að segja yður,
að hann er alls ekki áfengur, heldur
eins konar gosdrykkur.
Kæra Vika!
Mig langar svo til þess að spyrja
þig, hvort ekki fáist í bókaverzlun-
um í Reykjavík einhver ensk blöð,
sem eru sérstaklega ætluð kvenfólki,
og hvað þau heita. Laufey.
Svar: Jú, það eru til mörg blöð,
sem eru aðallega ætluð kvenfólki,
t. d. Woman, Woman and Beauty,
Modern Woman, Vogue og mörg
fleiri.
Svar til Ragga.
1. Þér ættuð vitanlega að leita til
læknis með þetta sem allra fyrst, ef
þér haldið að það ætli að verða mjög
áberandi. Það gæti átt sér stað, að
einhver meinsemd væri hér á ferð-
inni. Annars fer það mjög eftir
smekk manna, hvort þeim þykir
fallegri bein nef eða bogin.
2. Því miður er ekki til annað ráð
en að lita það, en væri ekki ráð fyrir
yður að bíða og vita, hvort það
dökknar ekki aftur í vetur. Margir
halda því fram, að gott sé að bera
laxerolíu á augnabrúnirnar tií þess að
auka hárvöxtinn.
3. Vörtur taka læknar í burtu með
rafmagnsgeislum og er það mjög
fljót og góð aðferð. Filapensa getið
þér sjálfur átt við. Látið dálítið
bómullarstykki um fingurgómana og
þrýstið filapensunum út,- gætið þess,
að þeir snerti ekki húðina. Þvoið
staðinn vandlega með spritti, blönd-
uðu nokkrum dropum af karbol.
Verður að sýna mikið hreinlæti í
baráttunni gegn filapensunum.
4. Það er ekkert óvenjulegt við
það, þótt sautján ára gamall piltur
sé ástfanginn. Það ætti ekki að vera
mikill vandi fyrir yður að komast í
kynni við hana, fyrst þér hafið skrif-
azt á við hana. Þér getið í það
minnsta farið að þakka henni fyrir
bréfin og fitjað svo upp á nýjum
samræðuefnum.
5. Minnizt þess, að „æfing skapar
meistarann11.
Svar til „Dulur“.
1. Við teljum okkur ekki fær um
það, að dæma um, hver sé allra
snjallastur. En hins vegar er t. d. Sig-
urður Birkis álitinn mjög góður söng-
kennari.
2. Fá sér góðan söngkennara og
þjálfa rödd sína vel.
Svar til „Fermingarbarn".
Þú getur, ef þú villt hafa það veru-
lega „flott“, haft fjóra rétti, fyrst
einhverja kraftsúpu, síðan fiskrétt,
svo kjötrétt og að lokum einhvem
ábæti. Fyrst þú ert fermingarbamið,
finnst mér þú, í samráði við mömmu
þína, ættir að velja um, hvaða rétti
þú kjósir helzt að hafa.
llllillllllllllllllllllllllllllllUIIIIIIIIIIIIIIIU
Gleymið ekki
yngstu börnunum
Þessar bækur fást í
bókaverzlunum:
Litla bókin mín:
1. Villi og Pési
2. Æfintýri Díönu litlu
3. Litla káta mýsla
4. Töfrasleðinn
5. Lítill Kútur
6. Labbi hvítaskott
7. Stubbur missir skottið
8. Litli græni froskurinn
9. Töfrapípan
10. Siglt í strand
Verð 50 aura.
Ennfremur:
Aumingja Iitla ríka stúlkan
Verð 1,90
Broshýr Verð 1,80
Bækurnar eru prýddar
mörgum myndum.
'lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
AUGLÝSIÐ
I VIKUNNI.
Allir, sem hafa ánægju af
leiklist, þurfa að lesa og
eiga
Skrúðsbóndann,
hið nýja leikrit Björgvins
Guðmundssonar, sem allir
ljúka lofsorði á.
Fæst hjá bóksölum.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
Saga Reykjavikur
eltir Klemenz iónsson
II hefti, 296 bls. prýdd 76 '
myndum og uppdráttum.
Nokkur eintök óseld.
Verð kr. 15,00.
Steindórsprent h.f.
Kirkjustrœti 4
lllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Erla og
unnust-
inn.
Skrifstofumaðurinn: Vertu ekki svona mikill aumingi. Gleymdu
Erlu bara. Mundu það, að það er nóg til af öðrum stúlkum í heiminum.
Bókarinn: Notaðu skynsemina, maður. Hún vill ekki tala við þig,
þegar þú hringir til hennar, svo þér er fyrir beztu að þurrka hana
út úr huganum.
Oddur: Þið hafið á réttu að standa, piltar, ég ætla að gera þetta.
Oddur: Jæja, nú er ég búinn að átta mig. Það er
allt búið milli okkar Erlu. Ég vil ekki sjá hana
framar — ég vil ekki einu sinni heyra nafn hennar
nefnt.
Skrifstofustjórinn: Það var rétt, Oddur.
Erla: Ég hefi kannske verið of grimm Sendisveinninn: Oddur, Erla Skrifstofumaðurinn: ?
við hann. Ég ætla að hringja til hans og er í símanum. Oddur: Erla — ástin mín!
biðja hann að fyrirgefa mér.
títgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.