Vikan - 20.07.1944, Side 6
6
VIKAN, nr. 29,1944
þeasu,“ sagði fulltrúinn. „Hafi Ackroyd borgað
út þessa peninga sjálfur, getur það hjálpað okkur
að við ráðningu gátunnar um morðið. Þér grunið
engan af hinu þjónustufólkinu ?“
„Nei.“
„Einskis verið saknað áður?“
„Nei.“
„Það'er ekkert þeirra, sem er að fara héðan, er
það ? “
„Herbergisþeman er á förum."
„Hvenær?"
„Ég held, að hún hafi sagt upp í gær.‘
„Við yður?‘
„Nei, nei. Ég kem ekkert nálægt hússtjóminni
eða þjónustuliðinu. Ungfrú Russel sér algjörlega
um það.“
Fultrúin stóð hugsi um stund. Svo kinkaði
hann kolli og sagði: — „Ég held, að ég ætti að
tala nokkur orð í viðbót við ungfrú Russel, og
svo ætla ég að tala við stofustúlkuna, Dale, líka.“
Við Poirot fómm með honum til ráðskonunnar.
Ungfrú Russel tók kuldalega á móti okkur.
Elsie Dale var búin að vera á Femley í fimm
mánuði. Góð stúlka, fljótvirk og vandvirk. Góð
meðmæli frá fyrri húsbændum. Hún myndi sizt
allra leggja hönd á neitt, sem ekki tilheyrði henni.
Og hvað um herbergisþernuna ?
„Hún var lika ágætisstúlka. Mjög þögul og sið-
prúð. Vann verkin sin til fyrirmyndar vel.“
„Hvers vegna er hún þá á föruum?“ spurði full-
trúinn.
Ungfrú Russel kipraði saman varimar.
„Það var mér alveg óviðkomandi. Mér skildst,
að Ackroyd hafi fundið eitthvað að við hana í
gær. Það var hennar verk að sjá um skrifstofuna
hans, og hún hafði fært eitthvað til á skrifborði
hans, skildist mér. Hann reiddist mjög, og hún
sagði upp starfinu. Það skildist mér að minnsta
kosti á henni, en ef til vill þætti yður betra að
fá að tala við hana sjálfa?“
Fulitrúinn féllst á það. Ég hafði tekið eftir
stúlkunni er hún var að bera á borð fyrir okkur
hádegisverðinn. Hávaxin stúlka með sítt, brúnt
hár og stór, stöðug grá augu. Hún kom inn,
er ráðskonan hafði gert boð eftir henni og stóð
teinrétt og horfði á okkur með þessum stóru
gráu augum.
„Emð þér Ursula Boume?" spurði fulltrúinn.
„Já.“
„Mér skilst, að þér séuð á förum héðan?“
„Já.“
„Hvemig stendur á því?“
„Ég aflagaði einhver skjöl á skrifborði herra
Ackroyds. Hann reiddist mér mjög vegna þess,
og ég sagði við hann, að líklega væri mér bezt
að segja upp. Hann sagði mér að fara sem fyrst.“
„Komuð þér nokkuð inn í svefnherbergi
Ackroyds í gærkvöldi? Að laga til ?“
„Nei, það er verk Elsie. Ég kom aldrei í þann
hluta hússins.“
„Ég verð að segja yður, stúlka mín, að mikillar
peningaupphæðar er saknað úr herbergi
Ackroyds.“
Loks sá ég á henni einhver svipbrigði. Hún
roðnaði ákaflega.
„Ég veit ekkert um neina peninga. Ef þér
haldið, að ég hafi tekið þá, og það sé þess-
vegna, sem herra Ackroyd sagði mér upp, þá
skjátlast yður.
„Ég er heldur ekki að ásaka yður um neitt,
stúlka mín. Verið nú ekki svona æstar.‘
Stúlkan horfði á hann kuldalega.
„Þér getið látið leita í hirzlum mínum,“ sagði
hún fyrirlitlega. „En þér munið ekki finna neitt.“
Poi'rot greip skyndilega fram í.
„Það var í gær eftir hádegið, sem herra
Ackroyd sagði yður upp, eða þér sögðuð upp
sjálfar, var það ekki?“
Stúikan kinkaði kolli.
„Hve lengi töluðuð þið saman?“
„Töluðum saman?"
„Já, samtalið á skrifstofunni?"
„Ég — ég veit það ekki.“
„Tuttugu mínútur? Hálftíma?"
„Það var eitthvað um það bil.“
„Ekki iengur?“
„Vissulega ekki lengur en hálftíma."
„Þakka yður fyrir, ungfrú.“
Ég horfði forvitnislega á hann. Hann var að
flytja ýmsa hluti á borðinu. Augu hans ljómuðu.
„Takk fyrir, þetta er nóg,“ sagði fulltrúinn.
Ursula Boume fór út. Fulltrúinn sneri sér að
ungfrú Russel.
„Hvað hefur hún verið hér Iengi? Þér hafið
ef til vill afrit af meðmælum hennar?“
Án þess að svara fyrri spurningunni gekk ung-
frú Russel að veggskáp, opnaði eina skúffuna og
tók úr henni nokkur bréf, sem voru f’est saman
með stálklemmu. Hún valdi eitt úr bunkanum
og réttti fulltrúanum.
„Þetta virðist vera allt í lagi. Frú Folliot,
Marby. Hver er það?"
„Mjög velmetin heldri kona,“ sagði ungfrú
Russel.
„Jæja,“ sagði fulltrúinn og rétti henni aftur
bréfið. Mættum við fá að tala við hina, Elsie
Dale?“
Elsie Dale var stórgerð, ljóshærð stúlka, svip-
hrein, en fremur heimskuleg á svip. Hún leysti
vel úr spumingum okkar og virtist taka mjög
nærri sér peningahvarfið.
„Ég held ekki, að hún hafi komið nærri þessu,"
sagði fulltrúinn, þegar hún var farin. „Hvernig
er með Parker?“
Ungfrú Russel kipraði varimar, en sagði ekki
neitt.
„Mér virðist eitthvað ekki í lagi með þann
mann,“ hét fulltrúinn áfram íhugull. „Ég skii
bara ekki hvenær hann hefði áttt að hafa tæki-
færi til þess að fara inn til Ackroyds. Eftir
kvöldverð hefur hann verið að gegna skyldu-
störfum sinum, og hann hefur fullkomnar
sannanir fyrir þvi, sem hann segist hafa aðhafzt
allt kvöldið eftir á. Ég veit það, því að ég hefi
veitt því sérstaka athygli. Jæja, þakka yður
fyrir, ungfrú Russel. Við skulum nú ekki hugsa
meira um þetta sem stendur. Það er vel líklegt,
að Ackroyd hafi borgað út þessa peninga sjálfur."
Ráðskonan kvaddi okkur þurrlega og við
fórum.
Við Poirot fómm saman út úr húsinu.
„Mér þætti gaman að vita,“ rauf ég þögnina,
„hvaðá skjöl það voru, sem stúlkan aflagaði á
skrifborði Ackroyds, sem komú honum í svona
vont skap. Ef til vill liggur þar einhver lausn á
leyndarmálinu."
„Einkaritarinn sagði, að það hefðu ekki verið
nein þýðingarmikil skjöl á skrifborðinu," sagði
Poirot hægt.
„Já, en —“
„Yður finnst það ein'kenniíegt, að Ackroyd
skyldi stökkva upp á nef sér vegna slíkra smá-
muna?“
„Já, það finnst mér?“
„En voru það smámunir?"
„Við vitum að vísu ekki, hvaða skjöl þetta hafa
verið,“ viðurkenni ég, „cn Raymond sagði —.“
„Við skulum nú sleppa Raymond um stund.
Hvernig leizt yður á stúlkuna?"
„Hvaða stúlku?“
„Herbergisþemuna. Ursulu Boume."
„Hún virtist vera bezta stúlka," sagði ég
hikandi.
Poirot endurtók orð mín, en hann lagði
áherzlu á annað orðið, þar sem ég aftur á móti
hafði lagt áherzlu á fjórða orðið.
„Hún virtist vera bezta stúlka, já.“
Eftir stundarþögn tók hann miða upp úr vasa
sinum og rétti mér.
„Sjáið héma, vinur minn, ég skal sýna yður
svolítið. Athugið þetta.“
Bréfmiðinn, sem hann rétti mér, var miðinn,
sem fulltrúinn hafði samið um morgunin og látið
Poirot hafa. Ég tók eftir því, að lítill kross
hafði verið settur með blýanti út af nafni Ursulu
Boume.
Erla og
unnust-
inn.
Teikning eftir Oddur: Ég hefði heldur átt að vera í flotanum — ég hefi Oddur: Það verður gott að koma til Erlu og mega sitja og
Geo. McManus. ekki gert annað alla vikunna en að bera vatnsfötur. gleyma öilum vatnsburði —
Oddur: Hversvegna horfirðu svona á mig ástin mín? Ég á tvær eikarfötur
Erla: Því ertu svona fölur og þreytulegur — fáðu þér nú sæti — ég ætla og elska að bera vatn!
að spila fyrir þig nýtt lag. sem ég er búin að fá —