Vikan


Vikan - 24.08.1944, Blaðsíða 14

Vikan - 24.08.1944, Blaðsíða 14
VTKAN, nr. 34, 1944 14 fyrir framan kirkjudymar, svo-að þegar prestur- inn ætlaði út eftir messuna, þá komst hann það ekki. Sér hann þá, hvað um er að vera, stefnir til sín kölska og lætur hann nauðugan viljugan bera burtu aftur alla mykjuna frá kirkjudyrum og á sinn stað. Gekk séra Sæmundur svo fast að honum, að hann lét hann seinast sleikja upp leif- amar með tungunni. Sleikti þá kölski svo fast, að það kom laut í helluna fyrir framan kirkju- dymar. Þessi hella er enn í dag í Odda, og nú þó ekki nema fjórðungur hennar. Liggur hún nú fyrir framn bæjardymar og sér enn í hana laut- ina. Heyhirðingin. Einu sinni átti Sæmundur fróði mikið af þurri töðu undir, en rigningarlega leit út. Hann biður þvi allt heimafólk sitt að reyna að ná heyinu saman undan rigningunni. Kerling ein var hjá honum i Odda mjög gömul, er Þórhildur hét. Prestur gengur til hennar og biður hana að haltra út á túnið og raka þar dreifar. Hún segist skuli reyna það, tekur hrifu og bindur á hrífuskaftsendann hettu þá, sem hún Var vön að hafa á höfðinu, og skjökti svo út á túnið. Áður en hún fór, segir hún við Sæmund prest, að hann skuli vera í garðinum og taka á móti heyinu, þvi að vinnumennimir verði ekki svo lengi að binda og bera heim. Prestur segist skuli fylgja ráðum hennar í því, enda muni þá bezt fara. Þegar kerling kemur út á túnið, rekur hún hrífuendann undir hverja sátu, sem sett var, og segir: „Upp í garð til Sæmundar!" Það varð að áhrínsorðum, því að hver baggi, sem kerling renndi hrífuskaftinu undir með þessum ummæl- um, hvarf jafnóðum heim í garð. Sæmundur segir þá við kölska og ára hans, að nú sé þörf að duga að hlaða úr. Að skömmum tíma liðnum var allt heyið komið í garð, undan rigningunni. A eftir sagði Sæmundir við kerlingu: „Eitt- hvað kannt þú, Þórhildur mín.“ Hún segir: „Það er nú lítið orðið, og mest allt gleymt, sem ég kunni í ungdæmi mínu.“ 246. KROSSGÁTA Vikunnar Lárétt skýring: 1. silungur. — 5. sleipa. — 9. yfir- gefna. — 10. troða. — 12. meðali. — 14. yfirbyggður vegur. — 16. lægja. — 18. viður. — 20. kæti. — 22. munn- fylli. — 23. forsetning. — 24. sjór. — 26. skóflu. — 27. frændi. — 28. fjötr- aður. — 30. undirvöxtur. — 31. skyggja. — 32. spora. — 34. kind. — 35. léit. — 37. óska. — 40. Alföður. — 43. á fingri (þg.). — 45. hryggð- in. — 46. skrautjurt. — 48. illt um- tal. — 50. gangflötur. — 51. á nótum. — 52. sleipur. — 53. ílát. — 55. elska. — 57. hrausta. — 58. veika. — 60. eld. — 61. dæld. — 62. verk. — 63. vanskapnað. — 64. auðkenna. Lóðrétt skýring: 2. rýi. — 3. hreyfist. — 4. álpist. — 5. stillt. — 6. ósköp. — 7. heysátu. — 8. glata. — 11. fald- ur. — 12. lyppa. — 13. tvíhljóði. — 15. glugga- efni. — 17. himinn. — 18. búa til. — 19. hæð. — 21. bjó til. — 23. veslingur. — 25. þrældómurinn. — 28. lausafé. — 29. tala. — 31. ósoðin. — 33. flýtir. — 36. hæðir. — 38. kyrrð. — 39. heila. — 40. vitskertan. — 41. ónefndur. — 42. menn. — 43. raunir. — 44. skrafa. — 46. ganga. — 47. linka. — 49. verða. — 52. ágóði. — 54. hvellir. — 56. komast. — 57. þrá. — 59. tóm. — 60. klístur. Lausn á 245. krossgátu Vikunnar. Lárétt: — 1. skáldir. — 6. þröstur. — 11. erli. — 12. rótt. — 13. stóls. — 14. astar. — 16. Illugi. — 19. aukana. — 21. tóar. — 22. rámur. — 25. anir. — 26. tug. — 27. nám. — 28. aða. — 29. amar. — 33. árar. — 34. ösku. — 35. glas. — 36. verk. — 40. agni. — 44. æfa. — 45. blá. — 47. ról. — 48. sama. — 50. væfla. — 52. garm. — 53. krassa. — 55. neinir. — 57. rakna. — 59. ógild. — 60. náir. — 61. sagi. — 62. leysing. — 63. krangar. — Lóðrétt: — 1. sveitta. — 2. letur. — 3. dróg. — 4. illir. — 5. ris. — 6. þrá. — 7. rósar. — 8. öttu. — 9. staka. — 10. rakarar. — 13. slaga. — 15. ranar. — 17. lóum. — 18. smár. — 20. niða. — 23. án. — 24. um. — 30. rök. — 31. æki. — 32. kló. — 33. ása. — 36. væskill. — 37. efar. — 38. ramar. — 39. elfi. — 41. grand. — 42. móri. — 43. ilmreyr. — 45. bæ. — 46. ál. — 49. asans. — 50. vanin. — 51. angar. — 52. gilin. — 54. skái. — 56. eiga. — 58. arg. — 59. ósk. JBrennivínskúturinn. Einu sinni komu vermenn til séra Eiríks i Vogs- ósum. Þá var kalt veður og frost mikið. Þeir báðu prest að gefa sér í staupinu, en hann sagð- ist ekkert vín eiga. Þeir báðu hann því ákafar og sögðu, að ekki- mundi vínlaust í Vogsósum, ef vel væri leitað. Eiríki leiddist nauðið í þeim og sagðist ekki muna, hvort hann ætti svolítinn laggardreitil í kútnum sem hann hafði fengið um daginn. Fór hann þá og sótti kútinn og fékk þeim. Hann bað þá vita, hvort nokkuð væri í kútholunni, Og kúga hana. Þeir tóku við og heyrðu, að dálítið gutlaði í á kútnum. Glöddust þeir við og supu á allir, en einatt gutlaði viðlíka mikið í kútnum, og það, eftir að allir höfðu þó sopið á honum eftir vild sinni. Eiríkur spurði, hvort t,' -1' vildu ekki ljúka þessum seytli, en þeir sögðurt ekki geta það svona allt i einu. Hann spurði þá, hvort þeir vildu ekki hafa kútinn með sér. Það það þágu þeir og þökkuðu presti mikillega fyrir. Þar næst héldu þeir af stað. Drukku þeir úr kútnum, þegar þá lysti og þó var ekki að heyra, að neitt minnk- aði á honum. Þegar þetta nafði lengi gengið, segir einn þeirra, að þetta sé ekki einleikið, og muni Eirikur nú hafa haft einhver brögð í tafli við þá. Hann þrífur þá kútinn og kastar honum niður á stein. Brotnaði þá kúturinn sundur, og var hann hvítur innan af myglu. Var ekki að sjá, að neinn deigur dropi hefði í hann komið langa lengi. (Þjóðsögur J. Ám.) Fylgdarmaðurinn (sönn saga). Hjúkrunarkonan hringdi snemma kvölds til Rutgers Beekman, ofursta í her Bandaríkjanna, og sagði, að syni hans liði vel eftir atvikum og að skera ætti hann upp undireins. Lausn á orðaþraut á bls. 13. Sjómannadagur. SÓLAR JÁHNI ÓS JÓR M U N N I ASK AR NÆLIR N AGLI AFINN dUfur AFLÓ A GÆSIR UN AÐS ROKIÐ Þeir feðgamir voru á Englandi; faðirinn í þjónustu Eisenhowers, en sonurinn liðsforingl í sjóhemum. Sá síðarnefndi hafði verið fluttur þennan dag illa særður í spítalann. Þegar ofurstinn bað um leyfi til þess að sjá son sinn, var honum sagt, að það kæmi ekki til mála. Honum var jafnvel bannað að koma í spítalann. Sagt var, að það gæti orðið til þess að valda syni hans geðshræringu. „Hann mundi ekki þurfa að vita neitt um það," sagði ofurstinn. „Hann finnur nærveru yðar,“ sagði hjúkmnar- konan. „Við sklum hringja til yðar skömmu eftir uppskurðinn." Beekman beið i litlu íbúðinni sinni og gekk þar um gólf, fram og aftur, eirðarlaus. Loksins hringdi síminn. Uppskurðinum var lokið. Ætlaði ofurstinn að koma? Hann hljóp niður stigana. Þegar hann kom út Svör við Veiztu—? á bls. 4: 1. Orðhákur (gifur: tröllkona). 2. Orðið geysir. 3. Erindið er eftir Þum í Garði. 4. Byron, og Matthias Jochumsson þýddi á íslenzku. 5. 995—1000. 6. Sjórinn. 7. Arabiskt konungsríki, Mesópótamía. 8. Þjóðemisflokkur i Kina. 9. Thomas Edison. 10. 1 Pétri Gauts svitunni eftir Grieg. á götu, lá þétt Lundúnaþoka yfir öllu. Það var örstutt i spítalann, en Beekman viltist, þótt þetta væri ekki langur vegur. Þokan, studd af myrkv- uninni, sveipaði götumar, byggingamar og hinar fáu manneskjur, sem hann heyrði i, en gat tæpast séð, og gerði hann mglaðan. Hann kallaði: „Ég er amerískur liðsforingi. Sonur minn er í St. Gregory spítalanum. Vildi einhver .... “ Þá var tekið undir hönd hans og einhver sagði: „Komið með mér, herra!“ Ókunni maðurinn leiddi hann áfram — til vinstri, hægri, vinstri, fyrir hom. Hann sá grilla í stóra byggingu gegnum dimmuna. „Héma er það, herra," sagði röddin. Beekman þakkaði hinum miskunnsama Sam- verja. Á leiðinni upp spítalatröppumar, sneri hann sér við og kallaði: „Hvemig gátuð þér ratað hingað?" „Það var auðvelt," heyrði hann svarað. „Ég er blindur. Misstl sjónina á báðum augunum í Dunkirk." Og ókunni maðurinn hvarf út í þokuna.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.