Vikan - 24.08.1944, Qupperneq 15
VIKAN, nr. 34, 1944
15
Þegar amma var ung
Hér á myndinni sést 36 ára gömul
amma (í miðjunni) með dóttur
sinni, 19 ára, dótturdóttur og
móður.
Kona landnemans.
Dag einn í september árið 1867 sá frú Stevens,
er var gift landnema, sem sezt hafði að í frum-
skógum norður-Arizona, grunsamlega hreyfingu
í runna skammt frá húsinu. Hún lagði hiklaust
frá sér deigið, sem hún var að hnoða, og náði S
byssuna sína.
Húsið hristist, þegar hún hleypti af byssunni,
en úti í runnanum féll Indiáni dauður til jarðar.
1 sömu svipan gerðu 50 Indíánar árás, en í hús-
inu voru aðeins þessi kona, böm hennar og gam-
all maður.
Gamli maðurinn gætti framhliðar hússins, en
konan varði hina hliðina, og í sex klukkutíma
vörðust þau áhlaupum Indíánanna. Þá heyrði
flokkur kúreka, er var þama á ferð, skothríðina,
reið heim að húsinu og rak villimennina á flótta.
Þegar það var um garð gengið, spurði foringi
kúrekanna: „Hvar er maðurinn þinn, frú Stev-
ens?“
„Hann átti erindi til borgarinnar," svaraði
hún.
„Ég ætla að ríða þangað og segja fréttimar.
Þú skalt skrifa það, sem þú vilt segja honum,
ég skal afhenda honum það sjálfum.“
Um kvöldið fékk maður hennar bréfmiða frá
henni. Á honum stóð:
„Kæri Henry.
Indíánamir komu. Ég er næstum búin með
stóru skotin. Viltu gera svo vel að senda mér
eitthvað af skotum.
Þín elskandi eiginkona."
Tímarnir breytast —
Um aldaraðir hefir arabiska konan í Norður-
Afríku verið lágt sett. Þegar hjón hafa verið á
ferðalagi hefir maðurinn riðið asnanum þeirra, en
konan gengið á eftir og borið það, sem þurfti til
heimilisins. En stríðið og koma brezkra og
amerískra hermanna hefir mörgu breytt. Að vísu
ríður maðurinn enn þá asnanum, en konan geng-
ur nú á undan. Það er vegna þess, að jarð-
sprengjur geta orðið á vegi þeirra!
Kviltmyndagerðin fimmtíu ára.
Framhald af bls. 7.
teknar að ofan, að neðan, frá ölum hliðum og
í allri hreyfingu. Aðra stundina var það áhorf-
andinn, hina einn af leikendunum, sem sá með
augum myndavélarinnar.
Á þessu tímabili voru það Douglas Fairbanks,
Rudolph Valentino, Harold Lloyd, Barrymore,
Ronald Colman, Gary Cooper, Joan Crawford og
Greta Garbo, sem voru í mestu upáhaldi sem
leikarar, og vinsældir Mary Pickford og Charlie
Chaplin uxu enn.
Svo var það 1927, að „byltingin" kom á sviði
kvikmyndaiðnaðarins — fyrsta talmyndin.
Skyndilega mættu framleiðendum, stjómendum
og leikendum nýir erfiðleikar, — að sameina
hreyfingar og samtöl.
Það varð að byggja nýja, fullkomnari kvik-
myndatökusali, nýtt fyrirkomulag varð að hafa
á ljósum og nýjum vélum varð að bæta við, ekki
einungis í Hollywood, heldur og I hverju einasta
kvikmyndahúsi um allan heim.
Hið erfiðasta var, að leikarar og leikkonur
urðu að læra að leika á nýjan hátt. Mörg þeirra,
sem ekki gátu aðlagað list sina hinu nýja um-
hverfi, féllu í gleymsku, aðrir juku enn vinsældir
sínar, og ný nöfn komu og hurfu á „stjömuhimn-
inum". En einn galli var á þessum fyrstu tal-
og hljómmyndum. 1 þeim var of mikið af sam-
tölum og oflítið af leik, svo að þær urðu lítið
annað en ljósmynduð leikrit. Kvikmyndafram-
leiðendumir höfðu stigið einu skrefi og langt —
kvikmyndir þeirra urðu of daufar og fábreyttar.
Sú formúla, sem loks var unnið eftir, og er
ennþá i heiðri höfð, er um það bil 2/r, samtöl á
móti SA hreyfingu.
Nú voru kvikmyndimar, eins og þær eru i
dag, komnar á núverandi þroskastig. Frumstæðu,
litlu „töframyndirnar" frá 1894 hafa vaxið og
þróazt; þær hafa orðið að voldugri list, sem
getur flutt mannkyninu boðskap sinn með fyrsta
flokks leikurum, eins og Bette Davis og Paul
Lukas í „Vörðurinn á Rín“ og grimmar þjóðfé-
lagsádeilur eins og „Þrúgur reiðinnar", fegurðina
og yndisþokkan i „Fantasíu" og „Bambi". Fyrsta
fréttamyndin, „Ur ævi amerísks slökkviliðs-
manns", hefir vaxið upp í stórmyndir eins og
„Baráttan um Stalingrad" og „Sigur í eyðimörk-
inni.“
En þótt fimmtíu ára þróunarsaga kvikmynd-
anna sýni okkur furðulegar framfarir á ekki
lengri tíma, þá er það sannast mála, að kvik-
myndatæknin hefir verið unglingur, sem nú er
að byrja að komast til vits og ára. Framtíðin og
tæknislegar framfarir munu gera kvikmyndirnar
ásamt sjónvarpinu að þýðingarmiklum þætti í
menningarlifi allra þjóða.
EsssssS!
V 7jL ■■■■■■■»
EÍsssssi
Dráttarvextir
Dráttarvextir falla á tekju- og eignaskatt
ársins 1944 hafi gjöld Jtessi eltki verið
greidd að fullu í síðasta lagi föstudaginn
8. septcmber næstkomandi. —
Á Jiað sem J»á verður ógreitt, reiknast dráttarvcxtir frá
gjalddaga, sem var 15. júní síðastliðinn.
Reykjavílr, 15. ágúst 1944.
Tollstjóraskrifstofan
Ilafnarstræti 5.
Auglýsið í VIKUNNI,
útbreiddasta heimilisblaði landsins.
RUÐUGLER
Ilöfum fyrirliggjandi RÚÐUGLER, enskt og
amerískt í þykktum 24 og 26 ounces, ennfremur
5 og 6 m.m gler.
Gróðurhúsagler í stærðmn 45x60 cm.
Verðið stórlœkkað
Eggert Krirstjánsson & Co. h.f.
Sími 1400.