Vikan


Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 3

Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 19, 1946 3 Sig. Skagfield, óperusöngvari. (Framhald af forsíðu). leikhúsið varð að ráða annan leikara, Eirki, frá Berlín. Félagar mínir við leik- húsið, sem flestir voru nazistar, óskuðu mér til hamingju með það að vera Skandi- navi, vegna þess að nú væri Noregur orð- inn þýzkur að fullu og öllu. Ég svaraði því ekki, en spurði félaga minn: „Veiztu það, að norrænu guðirnir munu hefna þess grimmilega, að Þjóðverjar, sem eru 80 milljóna þjóð, skuli hafa ráðizt á óvopn- aða þjóð, sem telur aðeins 2% milljón.“ Strax sama kvöld kom Gestapomaður, og bað mig vinsamlega að koma með sér til aðalbækistöðva Gestapo. Þar var ég settur í járn í 24 klukkustundir. Síðan tók Gesta- po mig til yfirheyrslu, og spurðu mig, hvort ég hefði sagt að norrænu guðirnir myndu hefna sín-o. s. frv. Ég var spurður og spurður, og svo varð ég að skrifa undir það, að það væru engir „special“ norrænir guðir, sem myndu Sigurður Skagfield sem Florestan í Fidelio eftir Beethoven. hefna sín á Þjóðverjum. Einnig var ég neyddur til þess að skrifa undir það, að ég skyldi aldrei segja neitt gegn „Þriðja rík- inu“ og Gestapolögreglan í Oldenburg til- kynnti mér, að ég myndi verða undir ströngu eftirliti í framtíðinni. n. 1943—1944 var ég ráðinn sem fyrsti tenór við þýzka óperuhúsið í Osló. 1 leik- húsinu var ég undir nokkurs konar eftirliti áf öllu starfsfólkinu þar, því það var allt æstir nazistar. Einnig var stjórn leikhúss- ins, Zindler, Carsten, Frued og Winkler Sigurður Skagfield sem Faust í Numberg 1943. nazistar. Þeir urðu ríkari og ríkari á kostn- að Norðmanna. Þetta sama ár 1943, var mér skipað af þessum mönnum að tala að- eins þýzku við norska embættismenn. En ég svaraði því til, að á meðan ég væri í Noregi, þá mundi ég aðeins tala norsku við Norðmenn. Forstjórinn sagði mér þá, að ef ég héldi þessu til streitu, þá myndi verða litið á mig sem óvin ríkisins. Ég svaraði því að ég hataði þýzka sosialismann af öllu mínu hjarta, og að ég væri sannfærður um það, að sameinuðu þjóðirnar ynnu sigur. Forstjóri leikhússins hringdi strax á Gestapo, og skipaði þeim að handtaka mig vegna þess, að ég ynni á móti Þýzkalandi. Þjóðverjar söfnuðu ýmsum gögnum á móti mér, t. d. frá dönskum kórsöngvara, Lar- sen að nafni, sem var brjálaður nazisti, og skrifaði hann undir það, að ég væri einn af verstu mótstöðumönnum nazista, sem hann hefði nokkurn tíma þekkt, og eftir það var ég hafður undir strangasta eftir- liti, sem einn „af verstu föðurlandsvinun- um“. 1944 var ég handtekinn af Gestapo, og án nokkurra réttarhalda eða yfirheyrslna var mér stungið í Grini. Mér leið vel þar, vegna þess að ég kynntist nokkrum ágæt- is Norðmönnum, og mér líkaði betur að vera í fangabúðunum með þessum Norð- mönnum, heldur en að syngja í þýzka óperuhúsinu. 1 apríl 1944 var ég fluttur til Þýzkalands með flugvél. Var mér ætlað að vera í þýzkum fangabúðum, en með hjálp góðra vina í Bavaría, sem voru engir nazistar, heppnaðist mér að losna úr vist- •inni í fangabúðunum, en varð að skrifa undir eftirfarandi skilyrði. 1. Hrópa „Heil Hitler“ tíu sinnum á dag. 2. Segja engum það, sem ég hafi heyrt eða séð. 3. Ekki skrifa bréf, nema póstkort. 4. Ekki fara úr Þýzkalandi. Síðan fékk ég leyfi til að halda áfram að leika sem óperusöngvari. III. 1 september 1944 var ég handtekinn enn einu sinni af Gestapo, vegna þess, að ég Sigurður Skagfield sem Don Carlos, 1941 í Danzig. komst yfir enskan bækling, sem einhver hafði séð. En ég var aðeins sektaður um 100 Rm. af héraðsréttinum í Göttingen. IV. Sem vitað er, var öllum þýzkum leik- húsum lokað í september 1944. Verkalýðs- félagið í Göttingen skipaði mér að vinna í skotfæraverksmiðju. En ég lýsti því yfir, að ég myndi aldrei framleiða skotfæri eða sprengjur, vegna þess, að ég væri íslend- ingur, hlutlaus útlendingur. 3. febrúar 1945 kom Gestapomaður í hús mitt, Fried- lánderveg 61 í Göttingen, og sagði mér að ég væri óvinur ríkisins. Hann þóttist geta sannað að ég hefði alltaf unnið á móti „Þriðja ríkinu". Eftir stuttan tíma komu tveir aðrir Gestapomenn og fyrirskipuðu húsrannsókn. Þetta var framkvæmt, og Framhald á bls. 14.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.