Vikan


Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 11

Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 19, 1946 11 ^mmimmmimmimiimmhimmiiiimimmmmimiiiihmmmiiiiiiimiiimii mimiiiMMmtimiimtMmMMmMiiiHiMttmmmmmmmMMmiimiHii 32 Framhaldssaga: imiiiiiMinmiiiiiiMMimiUMu Ættfaðirinn Eftir NAOMI JACOB. ■mMiiMimmii miimmmmiiiiMiiMimiiMiiMiiMMiiMiiiimiimiMiiiiiimiimmmimimmiinimiimiMmi „Ég hefi fengið nýjan nemanda," sagði fröken Brightwin, dag nokkum. „Mjög göfuga konu — hvorki meira né minna en Dietrich prinsessu." „Dietrich prinsessu ?“ át hann upp eftir henni, og allt i einu mundi hajnin, að hann hafði ekki séð hana síðan á hirðdansleiknum, þegar hann hélt Caroline í síðasta sinn í faðmi sér. Minning- in um þann atburð vakti hjá honum sorgartilfinn- ingu. Caro var horfin, og hann hvorki vissi né þorði að spyrja, hvert hún var farin. Hún hafði valið að fara ein leiðar sinnar, og eftir fyrstu örvæntingarköstin hafði hann smátt og smátt sætt sig við það, sem komið var. Caro taldist til fortíðarinnar, og það gerði Emanuel sér fyllilega ljóst, þótt það væri honum sársaukafullt. En hann var ungur og æskan yfirvinnur ætíð vonbrigði, af þessu taginu. Pramtíðin blasti við honum, björt og fögur. Þar sem hann sat þama • i herberginu, sem var yfirfyllt af skrautöskjum, ullarábreiðum, klunnalegum húsgögnum úr hnotuvið og ymsum smámunum, er hvorki voru snotrir né höfðu nokk- urt listrænt verðmæti, fann Emanuel til eftirvænt- ingar, þegar hann heyrði nafn Marie Dietrichs. Að vísu reyndi hann ekki að blekkja sjálfan sig, hann vissi, að henni geðjaðist að honum af þvi, að hann snerti einhverja rómantíska strengi í sál hennar. Honum var ljóst, að hún var ekki sérlega gáfuð kona, þótt hún væri skemmtileg, en hann var það ungur, að hann var hreykinn — á móti vilja sínum — af þvi, að hún skyldi muna að hann fékk kennslu í ensku og gera sér þá fyrir- höfn að fá að vita, hvar það var. Hún vildi sjá hann aftur, því að hún laðaðist að honum á ein- hvern rómantískan hátt! Caroline Lukoes hafði kastað honum frá sér, en Marie Dietrich vildi hitta hann aftur. Hann var ungur, fríður og hræðilega tilfinninganæmur fyrir lítilsvirðingu, sem honum var sýnd. En sú hugs- un, að hin fagra, aðlaðandi og eftirsótta kona, prinsessa Dietrich, óskaði, að þau héldu áfram daðri sínu, var eins og græðandi smyrsl á sært hjarta hans. Hann sneri sér brosandi að fröken Brightwin. „Eg þekki prinsessuna litið eitt. Ef til vill mynd- uö þér leyfa mér að hitta hana einhvern tíma hjá yður? Hennar hátign hefir verið mjög vin- gjarnleg við mig; hún er mjög fögur og ,“ — hann brosti, „það er alltaf skemmtilegt að hitta að- laðandi fólk.“ „Mér er það síður en svo á móti skapi, að þér hittið prinsessuna hérna,“ hún brosti framan í hann. „Hún kemur í fyrstu kennslustundina ekki á morgun heldur hinn daginn.“ „Þá á ég einnig að koma,“ sagði Emanuel. „Prinsessan verður hér klukkan fjögur, en þér eigið að koma klukkan hálf fimm. Segjum þá, að þér komið tuttugn minútur yfir fjögur, og þá á Annie að tilkynna mér komu yðar. Það mun veita prinsessunni tækifæri til að biðja um að heilsa yður — ef hún kærir sig þá um það.“ Þegar Emanuel kom að húsi Marion Brightwin hinn umrædda dag, var hann í mjög góðu skapi. Hann hafði vandað klæðnað sinn, sem var nú, eins og ætíð, samkvæmt nýjustu tízku. Hann var að vísu hræddur við, að hann myndi vekja of mikla athygli og þykja hlægilegur í þessum víðu, köflóttu buxum, stutta jakka og með þetta litskrúðuga hálsknýti, bundið um háan flibba. Áðru en hann fór að heiman, gekk hann inn í myndasalinn, þar sem Simon var að vinna. Ditli maðurinn leit upp og rýndi á hann í gegnum þykk gullspangagleraugun. „Emanuel," hrópaði hann. „I hverju ertu?“ „Þetta er nýjasta tízkan, Simon minn. Ég kom til að sýna þér mig og til að hlýða á viðurkenn- ingu þína eða aðfinnslur." Hann var hreykinn, þegar hann sýndi honum litla, kringlótta hattinn. „Verður þú móðgaður, þótt ég segi, að þú gerir mig næstum því hræddan, Emanuel. Það var eitt- hvað virðulegt við síða jakann, háa hattinn og þröngu buxumar. Þetta — er spjátrungslegur og ljótur búningur." Cohen andvarpaði. „Þetta ber vott um aldarandann, sem ríkir núna.“ „Þetta getur vel verið," svaraði Emanuel bros- andi, „en samt vil ég heldur drepast en ganga með hatt frá fyrra ári. Vertu sæll, Simon!" Hann kom að húsinu og var vísað inn í stofuna. Marie Dietrich — klædd samkvæmt tízku, sem hafði verið innleidd af Mettemieh furstafrú, því að furstafrúin hafði sagt „krinolinunum" strið á hendur — rétti honum hönd sína, sem hann beygði sig djúpt yfir. Augu þeirra mættust, og hann fann gleðistraum fara um sig allan, þegar hann sá hina ljósu fegurð hennar. „Það gleður jnig að sjá yður aftur, herra Gollantz!" „Það er mér mikill heiður, yðar hátign." „Þessi kona,“ hún kinkaði kolli til fröken Brightwin, „hefir verið svo vingjarnleg að reyna að kenna mér að tala ensku.“ Marion Brightwin roðnaði lítið eitt i kinnum. „Það er enginn vafi á því, að yðar hátign munið taka skjótum framförum." Emanuel var það ljóst, að Marie ætlaði að vera eins skemmtileg og henni var framast unt. Hún talaði fjörlega um París, þaðan sem hún var ný- lega komin; hún sagði sögur um Mettemich, fögru keisarafrúna og glaðværðina við hirðina. Marion hlustaði hugfangin, augnaráð hennar hvildi á litlu, hvítu höndunum, sem vom á lát- lausu iði, skrautlegu fötunum og sk’artgripunum. Emanuel hlustaði glaður á hana, en var þó vel á verði. Hann vissi, að Marie var ákveðin að reyna að ná valdi yfir honum, og hún leitaðist við á allan hátt að vera skemmtileg og virðast mikill listunnandi. „„KrinoIinin“ em dauð — ég var við útför þeirra og var það sönn ánægja fyrir mig, því að ég hefi alltaf hatað það, sem er án listfræðilegrar fegurðar. Paris er töfrandi, en allt, sem er yndis- legast, telst þó til fortiðarinnar." Þannig óð hún elginn og sparaði ekki spakmælin. „En hvað hún getur talað, en sagt þó lítið í raun og vem," hugsaði Emanuel. „En falleg er hún.“ Hún hélt áfram að tala um austurrisku keisara- hirðina, og í fyrstu var hún mjög orðvör, en síðar tók hún að tala um hana með meiri hrein- skilni. Hún ræddi um keisarann og yppti öxlum yfir kulda hirðlífsins. Talið barst að keisara- drottningunni og sagði Marie, að hún væri vitur sem kona, en heimsk sem keisarafrú. „Hvernig á að skilja það, yðar hátign?" spurði Emanuel. „Hún elskar frelsið," svaraði Marie og mætti augnaráði hans, sem hún hélt föstu með undra- verðri þrjózku. „Það á vel við konuna, því að hún verður eins og eiginmaðurinn að hafa frelsi og rétt til að elska — þegar hún er ástfangin af einhverjum. En ef maður elskar frelsið, er ótækt að giftast keisara. Það er mjög heimskulegt. Að vera keisarafrú og um leið frjáls — er ógjörn- ingur eða að minnsta kosti erfitt." „Þér eigið við, að konur eigi að vera frjálsar — þegar þær verða ástfangnar?" „Þegar slíkt hendir þær, má drottinn vita, hvað þær gera og ganga langt." Henni virtist vera fullkomin alvara. Enn þá einu sinni varð Emanúel hugsað til Caro. Þau höfðu oft rætt um ástina, en aldrei með svona mikilli alvöru og hræðilegri ákveðni. Þetta var hættulegur leikur, sem fór þarna fram á milli þeirra. Litla klukkan á arinhillunni sló fimm högg. Marie þaut upp með lágu ópi. „Klukkan orðin fimm, og ég héma ennþá! Hvað hugsið þér um mig fröken Brightwin, þegar ég tek svona tim- ann frá herra Gollantz?" „Verið rólegar, yðar hátign, ég hefi lært svo mikið mn heiminn á þessum hálftima." „Hann hefir lært að slá gullhamra, er ekki svo?“ spurði Marie fröken Brightwin, en hélt síðan áfram og pataði ákaft: „Hvemig á ég nú að komast heim ? Ætli það sé hægt að ná í vagn ? Ég sendi ökumanninn minn í burtu, þegar ég kom, þvi að ég vissi ekki, hvað ég yrði hér lengi." „Ég er bezti þjónninn í allri Vín,“ sagði Emanú- el og þaut út. Að fáum mínútum liðnum kom hann aftur með þá frétt, að hann hefði náð í vagn. „Þér komið aftur og fáið kennsluna hjá mér, þegar þér hafið fylgt prinsessunni út í vagninn," sagði fröken Brightwin. Emanuel hristi höfuðið: „Ég get það ekki, því að ég verð að fara heim og afgreiða einn góðan viðskiptavin rninn." Marie, sem þóttist vera áhugalaus, spurði, hvort hún mætti láta aka honum heim, — vagninn færl hvort sem væri þar fram hjá. „Það er mér að kenna, að þér urðuð af kennslunni, og þá verð ég að reyna að gera einhverja uppbót." 1 vagninum sat Emanuel þögull og lét hendum- ar hvíla á gullreknum stafnum, en Marie hallaðí sér aftur í horninu. „Emanuel", sagði hún að síðustu. „Þér hafitt breytzt." Hann sneri höfðinu og brosti til hennar: „Það er ekki nein alvarleg breyting, hún er aðeins á yfirborðinu." Hún andvarpaði aftur. „Ég hefi saknað yðar." „Jafnvel í París?" „Skiptir nokkru máli, hvar maður er?“ „Nei, það getur verið." Hann rétti fram hönd- ina og lagði hana á hönd hennar. „En hvað hönd yðar er mjúk og fíngerð!" Hann sat og horfði á hana. „Það er dásamlegt að aka aftur með fagurri konu,“ hugsaði hann með sér. En hvað konur gátu verið aðlaðandi með mjúkt, ilmandi hár og smágerðar, sléttar hendur. Rödd hennar var fögur, þegar hún talaði ekki of hratt. Hún var ímynd fegurðarinnar og auðæfanna og það hvort tveggja hafði mikil áhrif á hann. Bros hans varð breiðara. „En hvað það er dásamlegt að vera aftur með yður, yðar hátign!" „Marie," hvíslaði hún. „Fyrir yður er ég aðeins Marie, Emanuel." Aftur varð þögn um stund. Hann þrýsti hönd hennar fastar. „Theodore er ekki heima — hann fór til Egyptalands eða Sýrlands, þar sem er heitt og söndótt," sagði hún hirðuleysislega, að því er virtist. „Þér eruð þá einar heima?" „Já, ég hefi verið hræðilega einmana. 1 kvöld

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.