Vikan


Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 14

Vikan - 09.05.1946, Blaðsíða 14
14 VTKAN, nr. 19, 1946 Sigurður Skagfield. Framhald af hls. 3. allar eigur mínar, vegabréf og öll mín ís- lenzku og sænsku plögg voru tekin af þessum Gestapómorðingjum. Ég var svo settur í járn og fluttur úr íbúð minni til fangelsisins. Þar var ég í járnum í 24 tíma, en þessi járn voru með göddum, sem stung- ust inn í hörundið. Síðan er ég hálf mátt- laus í hendinni. 9. febrúar 1945 fór Gestapo með mig til Weenderlandsstrazee. Þar voru þrjár manneskjur, sem höfðu ákært mig og aðal- ákærandinn var kona skósmiðs nokkurs. En hún ásakaði mig fyrir að hafa sagt í íbúð hennar að Þjóðverjar ætluðu sér að sigra allan heiminn, en þeir myndu aldrei vinna sigur. Síðan las Gestapo upp öll mín afbrot: Ákæra frá Verkalýðsfélaginu í Göttingen, vegna neitunar minnar í því að vinna í verksmiðjunni. Einn af félögum mínum hafði ákært mig fyrir Gestapo. Deildarstjórnin hafði kært mig sem óvin nazista. Ennfremur sögðu þeir, að ég hefði breytt út innihald brezka bæklingsins. I Oldenburg og í Noregi hafði mér verið refsað vegna hegðunar minnar sem „anti nasisti“. Vegna peninga minna varð ég að skrifa undir plagg, sem ég átti að vita um, (sem ég í rauninni ekkert vissi um) að það mætti ekki safna peningum, vegna þess, að ríkið þyrfti þeirra við. Gestapo lýsti því yfir skýrt og skorinort að ég væri óvin- ur ríkisins, vegna hegðunar minnar og vegna þess að ég hafði safnað pening- um . . . 12. apríl var mér svo bjargað úr fanga- búðunum við Osterode í „Hjartafjöllum", af ameríska hernum.“ 324. Krossgáta Vikunnar varandi hljóð. — 16. sneiptur. — 18. ættarfylgja. — 19. maður. — 21. borðuðu. — 26. strengur. — 28. vá. — 30. fé. -—• 32. ástundunarsama. •— 33. fiskur. — 34. rúm. — 36. sefi. — 37. títt. — 41. maður. — 42. pendúl. — 43. störf. — 44. hryllti. — 45. stærðfræðisheiti. — 46. svara. — 47. skip- aði. — 50. afhita. •—• 51. kyrrð. —- 52. snöltra. — 55. beygi. — 56. felli saman. — 59. heiti. — 62. fæða. — 63. umferð. — 66. fisk. — 68. komast. Lárétt skýrlng: 1. fiskirækt.. -4- 5. hlass. — 7. dagstund. — 11. styrkt. — 13. unun. — 15. atviksorð. — 17. úr hópnum. —• 20. andi. — 22. mið. — 23. stríðna. — 24. örvaði. — 25. bragð. — 26. flón. — 27. frjó. 29. ber. — 30. meðkonu. — 31. farar- tæki. — 34. laskast. — 35. framar. — 38. við. — 39. autt. ;— 40. sjó- fugl. — 44. fát. — 48. farin. — 49. víða. — 51. háttur. — 53. I húsið. — 54. leiða. — 55. hús. —- 57. lund. — 58. rofum. — 60. dylja. — 61. kvika. — 62. nurlari. —- 64. son. — 65. verkfæri (gamalt). — 67. jörð. — 69. hælbein. — 70. sár. — 71. lítur. Lóðrétt skýring: 2. teygt. — 3. forsetning. — 4. á segli. — 6. svalt. — 7. falleg. — 8. bor. — 9. stokk. — 10. hæð. — 12. tefja. — 13. drápstækið. — 14. við- Lausn á 323. krossgátu Vikuimar. Lárétt:— 1. blak. — 5. ami. — 7. logi. — 11. óð- an. — 13. þaga. — 15. hof. — 17. fornleg. — 20. Lea. — 22. ætar. — 23. ranar. — 24. klyf. — 25. far.-— 26. ung. — 27. urg. — 29. iðn. —30. arin.— 31. mauk. — 34. fuðra. — 35. armar. — 38. frið. — 39. rómi. — 40. tunga. — 44. áföll. — 48. reit. -— 49. sala. — 51. örk. — 53. ill. — 54. ati. — 55. sár. — 57. skyn. — 58. doska. — 60. skrá. — 61. las. — 62. gutlaði. — 64. eim. — 65. skær. — 67. andi. — 69. stúf. — 70. ógn. — 71. náða. Lóðrétt: — 2. lófar. — 3. að. — 4. kaf. — 6. munn. — 7. lag. — 8. og — 9. galli. — 10. óhæf. — 12. nornir. — 13. þerrar. — 14. safn. ■— 16. otar. — 18. ragna. — 19. lauma. — 21. eyða. — 26. urð. — 28. gum. — 30. auður. — 32. karla. — 33. æfa. — 34. fit. — 36. ról. — 37. gil. — 41. nei. — 42. gildur. — 43. atlot. — 44. ásaka. — 45. fataða. — 46. öli. — 47. orka. — 50. gári. — 51. ösla. — 52. kysst. — 55._skeið. — 56. ráma. — 59. slæg. — 62. gæf. — 63. inn. — 66. kú. — 68. dá. Stúlkan: Heyrið þér, skrifstofustjóri, nær það nokkurri átt, að hún heldur alltaf símanum og ég kemst aldrei í hann ? * Maðurinn: Hatturinn fauk af mér. Má ég ekkl sækja hann? Lögregluþjónninn: Og hlaupa svo burtu! Nei, þakka þér fyrir góði, þú bíður hér meðan ég sæki hann! * 1. vegfarandi: Afsakið, getið þér gert svo vel og sagt mér, hvort þetta er sólin eða tunglið ? 2. vegfarandi: Ég er einmitt að velta þvi sama fyrir mér og kemst ekki að neinni niðurstöðu. Eóndinn, reiður: „Hesturinn, sem þér selduð mér datt niður dauður." Hestasalinn: „Eg get ekki gert að þvi, hann hefir aldrei gert þetta fyrr.“ • Kennarinn: „Ritgerðin þin um hundinn er alveg eins og ritgerð bróður þíns.“ Nemandinn: „Já, því að þær eru báðar um sama hundinn." Hann: Það er von að maður sé úrillur á morgn- ana, þegar þú heldur fyrir manni vöku alla nótt- ina með því að vera að hrópa upp úr svefninum i fyrri menn þína! Stórkaupmaðurinn: „Þegar dætur minar trú- lofast verða mannsefni þeirra að hafa heimilis- vini hjá mér; það met ég mikils.“ ' • Ungi jarðeigandinn: „Pappi segir lika, að beztu kýmar kaupi maður einnig í sjálfu fjósinu.“ Svör við Dægrastytting á bls. 13. 1. Sigurður er 24 ára, en Gréta 3 ára. 2. Það hljóta að vera þrjár stúlkur og fjórir karlmenn, annars væri ekki hægt að skipta þess- um 30 flöskum eftir því, sem gefið er i dæminu.. Það er ekki hægt að segja um, hvað fröken Hansen og Per Olsen lögðu til, hver fyrir sig. Hinar stúlkumar tvær útveguðu 3 og 4 en karl- mennimir 2, 3 og 4. 3. Ragna hlýtur að hafa rangt fyrir sér. Svör við Veiztu—? á bls. 4: 1. Hún bráðnar við 356° á Fahrenheit. 2. Niethzche. 3. Ankara. 4. Elgurinn. 5. Innocent III (1160—1216). 6. I Kaukasus (Elbrus). 7. Nei, í Afríku eru 146 milljónir íbúa, en í Ameriku 263 milljónir. 8. Bygg. 9. 1698—1720. 10. Átján ára.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.