Vikan


Vikan - 14.11.1946, Page 14

Vikan - 14.11.1946, Page 14
J 14 VIKAN, nr. 46, 1946 ELTUR! Framhald af bls. 4. En nú var öllu lokið, það hafði komizt upp um hann. Hann drakk viskýið óblandað. Þægileg- an yl, lagði um hann allan, en nú varð hann að halda áfram. Hann nam staðar stundar korn við útidyrnar, tilaðkveikja sérísíga- rettu. Allt í einu fann hann, að hönd var lögð á öxlina á honum. Hann hrökk við, sneri sér við í skyndi og stóð þá augliti til auglits við annan af þeim, sem höfðu veitt honum eftirför, háa, dökkhærða manninn með brúnu augun. ,,Má ég fá að tala við yður örfá orð?“ spurði maðurinn. ,,Prestinum“ fannst verið að kyrkja sig. ,,Ég er forstjóri Marvel-kvikmynda- félagsins,“ hélt sá dökkhærði áfram. ,,Við höfum verið að leita að manni, sem hefði þannig útlit, að hann gæti leikið enskan prest. Ég tók strax eftir yður inni í veit- ingahúsinu, en yður virtist ekki vera neitt um okkur. Þér eru víst ekki fáanlegur fyr- ir góða borgun að koma með okkur í kvik- myndastofuna og láta kvikmynda yður til reynslu?“ Konur og hjónaband. (Aðeins fyrir karlmenn). Mér finnst ekki úr vegi að vara karl- kynslesendur blaðsins við hinu veika en hættulega kyni. Þegar menn eru kvongaðir er of seint að gefa þeim viðvaranir, og þar eð konur eru yfirleitt afar slungnar, þá er ekki nema eðlilegt að við karlmenn höldum saman. Af þessum ástæðum hefi ég safnað sam- an nokkrum viturlegum setningum, sem nokkrir meira og minna frægir menn hafa skrifað, sem voru þó allir svo léttúðugir að kvongast, og sem bera því talsvert skyn á hjónabandið og konurnar. (Ég skal þó ekki nefna nöfn höfundanna, svo að þeir verði ekki fyrir hefndum eiginkvenna sinna): „Mormónar mega kvongast fleiri en einni konu hver, og Múhamedstrúarmenn trúa því, að konur komist ekki til himna- ríkis. Dásamlegt hlýtur því að vera að lifa sem Mormóni og deyja sem Múha- medstrúarmaður. ‘ ‘ „Fögur kona er paradís augans, helvíti sálarinnar og sannkallaður hreinsunareld- ur fyrir peningaveskið.“ „Aldrey skyldu menn trúa þeirri konu, sem segir manni hinn raunverulega aldur sinn, því kona sem slíkt gerir getur fund- ið upp á öllum f jandanum.“ „Tízkukonan er aðeins máluð brúða. Eini munurinn á henni og brúðunni er sá, að konan segir ekki mamma, þegar hún er klipin.“ „Um konur og sardínur er það jafn- 351. krossgáta Vikunnar V Lárétt skýring: 1. óhreyfanleg. — 5. mæða. —T 7. rjúfa. — 11. þæfir. — 13. saga. — 15. tunga. ■— 17. lek___- 20. hlass. — 22. skapara. — 23. fjall á Reykjanesi þf. — 24. ráðvönd. — 25. saur. — 26. ambátt. — 27. bein í homi. — 29. angan. — 30. tak. — 31. vængur. — 34. hnýta. — 35. saga. — 38. fata. — 39. hneigðu sig. -— 40. kassa. — 44. afturköll- un. -— 48. nytjaland. — 49. ófögur. — 51. op. — 53. kvika. — 54. hvolf. -— 55. fauti. — 57. láðs og lagardýr. — 58. þak- s'kegg. — 60. annars. — 61. álitinn. 62. kýtir sig. — 64. við. — 65. slóði. — 67. handsamast. — 69. sorg. — 70. gröf. ■— 71. glaða. Lóffrétt skýring: 2. viðartegund. — 3. friður. ■— 4. bein. — 6. liðamót. — 7. söngvar. — 8. tenging. — 9. lína. — 10. suma. — 12. vogrek. — 13. hagleikur. — 14. myrk. — 16. gámar. — 18. koma að. — 19. aumur í fótum. — 21. sívalning. — 26. geymi í minnum. — 28. fjarlægs hljóðs. — 30. finna. — 32. vinahót. — 33. ílát. — 34. stía. — 36. fé. — 37. mun. — 41. máttarviður. •— 42. snígil. — 43. elgur. — 44. tímabil. — 45. næst sjónum. — 46. rúm. — 47. veg. — 50. lofs. — 51. áræða. — 52. frost. — 55. slétt. — 56. lélegt. — 59. far. — 62. roð. — 63. strik. — 66. tveir eins. — 68. leit. Lausn á 350. krossgátu Vikunnar. Lárétt: 1. bóla. —■ 5. egndi. — 8. ólga. — 12. ágæta. — 14. slark. — 15. læk. — 16. tré. — 18. lak. — 20. för. — 21. af. — 22. slóttugar. — 25. na. — 26. afnot. — 28. grein. — 31. lit. — 32. ask. — 34. agn. — 36. rjál. —■ 37. ullin. — 39. labb. — 40. lund. — 41. sápu. — 42. svei. — 44. gróum. — 46. Loki. — 48. Ing. — 50. ilm. — 51. lek. — 52. angra. — 54. vogar. — 56. m, n. — 57. sakargift. — 60. af. — 62. odd. — 64. far. — 65. ætt. — 66. kul. — 67. krata. ■— 69. salla. — 71. sáld. — 72. listi. — 73. lóan. Lóðrétt: 1. bála. — 2. ógæfa. — 3. læk. — 4. at. — 6. grét. -—• 7. dulu. — 8. ól. — 9. laf. — 10. grönn. — 11. akra. ■— 13. atlot. — 14. skara. — 17. rót. — 19. agg. — 22. snillings. — 23. tasl. — 24. reglulegt. —• 27. flá. ■—■ 29. ina. — 30. hrósa. — 32. aldri. — 33. kisum. —- 35. óbeit. ■—- 37. ung. — 38. nám. — 43. ein. — 45. ólar. — 47. oka. — 49. grafa. — 51. lofts. — 52. andrá. — 53. aka. — 54. vit. •— 55. raula. ■—■ 56. moks. — 58. arfi. — 59. gætt. — 61. flan. — 63. dal. — 66. kló. — 68. t. d. — 70. al. gilt, að þær eru því betri sem þær eru smærri.“ „Þegar giftum mönnum einstaka sinn- um tekst að hafa síðasta orðið, þá er það einvörðungu vegna þess að þeir þurfa að segja: „Fyrirgefðu.“ „Karlmaðurinn eyðir oft beztu árum ævi sinnar í það að leita að fyrirmyndar lífsförunaut. Og meðan á þessu stendur kvongast hann venjulega.“ — Nú hafið þið fengið aðvörun. Svör viö Veiztu—? á bls. 4: 1. „Guðdómlega" Sara. 2. Um miðja 18. öld, undir Jökli vestra. 3. Kúakeytu — og reyndist vel. 4. TJr grísku og þýðir högg. 5. Amerískur, uppi 1876—1941. 6. Hákarlinn gýtur ekki hrognum, heldur lif- andi afkvæmum. 7. 1 IV. Mósebók. 8. Uran. 9. 18 núll. 10. Það er litlaust. Frumstæð sálarfræði. Framkvæmdarstjóri verzlunar nokkrar, sem þurfti að fá sér nýjan einkaritara, ákvað að láta sálfræðing velja úr umsækj- endunum. Þrjár stúlkur voru prófaðar í senn. — Hvað eru tveir og tveir? spurði sál- fræðingurinn hina fyrstu. — Fjórir. Það stóð ekki á svarinu. Önn- ur í röðinni svaraði sömu spurningu á þessa leié: — Það gæti verið 22. Þriðja stúlkan svaraði: — Það gæti verið 22 og það gæti verið 4. Þegar stúlkurnar voru famar út úr her- berginu sneri sálfræðingurinn sér sigri hrósandi að framkvæmdarstjóranum. — Þarna sjáið þér. — Þetta er verk sálfræð- innar. Fyrsta stúlkan sagði það sem lá í augum uppi. önnur var varari um sig. Sú þriðja ætlaði að vera viss í sinni sök. Jæja, hvaða stúlku ætlið þér að taka? Framkvæmdarstjórinn hikaði ekki eitt augnablik. — Ég ætla að taka þá ljós- hærðu með bláu augun, svaraði hann.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.