Vikan


Vikan - 17.07.1947, Blaðsíða 9

Vikan - 17.07.1947, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 29, 1947 9 Fréttamyndir Truman Bandaríkjaforseta var nýlega gefinn kalkúnhaninn, sem sést hér á myndinni. Samband alifuglaræktenda í Bandaríkjunum sendi honum hanann, og er myndin tekin, þegar verið er að afhenda forsetanum hann. Þegar kassinn var opnaður, flaug haninn upp úr honum og stefndi á for- setann. Það sló felmtri á alla viðstadda, en forsetinn gerði sér lítið fyrir, greip um hálsinn á hananum og keyrði hann í gólfið. Víða um Bandaríkin hafa verið stofnuð félög „til vemdunar náttúruauð- æfa landsins“. Á myndinni sést hópur barna vera að sverja félagsskapn- um hollustueið. Litlu munaði, að til árekstrar kæmi milli Rússa og Bandaríkjamanna fyrir skömmu í borginni Dairen í Mansjúríu. Borgin er á hemámssvæði Rússa, og hafa bandarísk herskip því ekki leyfi til að dvelja þar í höfn lengur en tvo sólarhringa. Eitt slíkt herskip kom til borgarinnar, og þegar tveir sólarhringar liðu án þess að það færi á brott aftur, fekk skipstjórinn „munnlega úr- slitakosti" frá yfirmanni rússneska setuliðsins: Ef þeir yrðu ekki famir innan 20 mínútna bæru þeir ábyrgð á öllu, sem fyrir kynni að koma. Myndin er frá höfn borgarinnar. Þetta er mynd af tveim kvenflug- nemum. Þær em að byggja módel- flugvél, sem á að vera á flugsýningu i New York. Marc A. Mitschener, flota Bandaríkjanna. flotaforingi í Þetta er mynd af sjö mánaða fjórburasystrum í Bandaríkjunum. Þær vom allar sjö merkur, þegar þær fæddust, en em nú 17 til 18 pund. Móðir þeirra er mállaus og heyrnarlaus.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.