Vikan - 16.12.1948, Page 4
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948
4
IJÓLA-
I PÓSTURIIMN
\ llMmllllllllllllllmllllllllllll•l**l*l*••l‘*,,,,",,,
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð og birta fyrir
okkur erindi við lag eftir Chopin,
Etude opus, 10 no. 3. þetta er vöggu-
ljóð.
Við vonum að þú getir gert þetta
fyrir okkur.
Þrjár vinstúlkur.
Svar: Erindið heitir „Næturljóð“
og er eftir Jón frá Ljárskógum.
Kom, vornótt, og syng þitt barn í
blund!
Hve blítt þitt vögguljóð og hlý þin
mund
— ég þrái þig,
breið þú húmsins mjúku verndar-
vængi,
væra nótt yfir mig.
Draumljúfa nótt, fær mér þinn frið,
firr þú mig dagsins háreysti og klið,
ó, kom þú fljótt!
Elfur tímans áfram rennur,
ennþá hjartasárið brennur,
—- skapanorn, ó, gef mér stundar-
grið!
Kom, ljúfa nótt,
sigra sorg og harm,
svæf mig við þinn barm,
svæf glaumsins klið
og gef mér frið,
góða nótt . . .
Kæra Vika!
Heldurðu, að þú viljir segja mér,
hvort borga þarf tvö afnotagjöld,
ef tvö útvörp eru á sama heimili?
Viltu líka segja mér hvort á að
senda bréf til Alan Ladd?
J. G. B.
Svar: Ekki þarf að borga afnota-
gjald nema af einu tæki, þó að fieiri
séu á sama heimili. — Heimilisfang
Alan Ladd er: 9006 Sunset Blvd.,
Los Angeles, Calif.
Vikan, Reykjavík.
Ég var nýlega að lesa tvær skáld-
sögur: „Ævintýri sendiboðans" (út-
gef. Sögusafn heimilanna) og „Hinn
margliti dauði" (útgef. á Akureyri).
1 báðum þessum bókum rakst ég á
orðatiltækið „leita með dunum og
dynkjum" (leita vandlega), — og í
„Ævintýri sendiboðans" stendur á
tveimur stöðum: „hann vissi út í
hörgul".
Mig langar til að biðja þig að
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
ritgerðir og bráðsmellnar skop-
sögur.
10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pós<_ óif 75.
.l•llllllll•l••(•■•••••lll••l•••••ll••"■">ll••""""•,*l"*l'l'***lvV
segja mér, hvort þarna er rétt að
orði komizt. Ég hef heyrt sagt að
„leita í durum og dyngjum", og ég
hélt að hörgull væri sama og vönt-
un eða skortur.
Einnig langar mig til að vita, hvort
innflutningstoll þarf að greiða af
bókum, sem keyptar eru erlendis frá,
eða sendar að gjöf.
Með þakklæti fyrir svörin.
Kær kveðja.
Bjarni.
Svar: Hvorttveggja er rétt: að
leita einhvers með dunum og dynkj-
um“ og ,,að leita einhvers dyrum og
dyngjum". Hörgull þýðir skortur og
máltækið „að þekkja (eða vita) út
í hörgul" er til.
Enginn tollur er á innfluttum
bókum.
Kæra Vika min!
Þakka þér kærlega fyrir alla
skemmtunina, sem þú hefur veitt
mér. Nú langar mig til að biðja
þig að gera mér greiða. Viltu birta
orðin „Ég elska þig“ á eins mörg-
um tungumálum óg þú mögulega
getur. Meða fyrirfram þakklæti og
ég vonast eftir svari bráðléga þó
ekki sé í næsta blaði.
Bless Eva.
E. S. Hvernig er skriftin?
Svar:
1. 1 love you — enska.
2. Je t’aime — franska.
3. Ti amo — ítalska.
4. Te quiero — spænska.
5. Ich liebe dich — þýzka.
6. Ja lublu tebja — rússneska.
7. Mine rakastan sinua — finnska.
8. S’agabo. — gríska.
9. Ahibbik — hebreska.
10. Wo ai ni — kínverska.
Skriftin er ekki falleg.
Kæra Vika!
Ég er 16 ára og hæðin er 182 cm.
Hvað á ég að vera þungur í fötum ?
Geturðu gefið mér einhverjar upp-
lýsingar um tugþrautarmeistarann
frá Olympíuleikjunum ?
Með fyrirfram þökk fyrir væntan-
leg svör. Iþróttaunnandi.
P.S. Hvernig er skriftin?
Svar: 74 kg. nakinn. — Tugþraut-
armeistari á Olympíuleikunum var
R. B. Mathias, Bandaríkjamaður, að-
eins 17 ára gamall, og hlaut 7139 stig.
Skriftin er „grautarleg“.
Elsku Vika mín!
Viltu nú ekki vera svo góð að
svara fyrir mig eftirfarandi spurn-
ingum, sem allra fyrst.
1. Ég er 15 ára, 168 cm. á hæð og
57 kg. á þyngd. Er ég of létt eða of
þung?
2. Hvað eru margir leikskólar í
Reykjavik og hverjir hafa þá?
3. Með hvaða móti er hægt að fá
gljáa á hárið ?
4. Hvernig nær maður vörtum af
sér sjálfur?
5. Hvaða litir klæða mig bezt ?
Ég er há og grönn, með frekar
dökkt hár og grænblá augu.
6. Hvemig er skriftin.
Þinn aðdáandi S. H.
Svar: 1. Þú ert sennilega allt að
5 kg. of létt.
2. Okkur er kunnugt um þrjá leik-
skóla: Haraldar Bjömssonai', Lárus-
ar Pálssonar og Ævars R. Kvaran.
3. Vörtum má ná með ætilyfjum,
svo sem ísediki, en gallinn á slíkum
lyfjum er sá, að þau vilja láta eftir
sig ör. Stundum má ná þeim með
kvikasilfurssmyrsli eða arseniki.
4. Með því að þrífa það vel og
halda því hæfilega feitu.
5. Grænir og rauðir litir.
6. Skriftin er góð, jöfn og læsileg.
Kæra Vika min!
Getur þú sagt mér hvernig nýtízku
Venus á að vera. Ég er 165 cm. á
hæð og er 15 ára hvað á ég að vera
þung?
Hvérnig er skriftin?
Kisa.
Svar: Við treystum okkur ekki
til að lýsa því, hvernig nýtízku Ven-
us á að vera. 61 kg. Skriftin er
heldur ljót.
Kæra Vika mín ?
Viltu vera svo góð að segja mér
addressu rithöfundarins ameríska
Ernest Hemingway.
Með fyrirfram þökk.
Eva.
Svar: Heimilisfang hans er: 996
Hillside Ave., Plainfield, N. J. Skrif-
stofa hans: 350 Fifth Ave., New
York, N. Y.
Eins og gengur —
Sporarnir koma henni að góðum
notum þessari!
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
María Jóhannesdóttir (við pilt eða
stúlku 14—17 ára), Bæjum, Snæ-
fjallahr., N-Is.
Jóhanna Ingvarsdóttir (við pilt eða
stúlku 14—17 ára), Lyngholti,
Snæfjallahr., N-ls.
Lilja Helgadóttir (við pilt eða stúlku
14— 17 ára), Unaðsdal, Snæfjalla-
hr„ N-ls.
Margrét Sveinsdóttir (við pilt eða
stúlku 17—20 ára, æskilegt að
mynd fylgi), Tryggvagötu 8,
Selfossi, Árnessýslu.
Guðrún Ásbjörnsdóttir (við pilt eða
stúlku 17—20 ára, æskilegt að
mynd fylgi), Reynivöllum 3, Sel-
fossi, Árnessýslu.
Elías Gunnarsson (við pilt eða stúiku
15— 17 ára), Melkoti, Stafholts-
tungum, Mýrasýslu.
Þorgils Gunnlaugsson (við stúlku
16— 20 ára), Hvanneyri, Borgar-
firði.
Helgi Valdimarsson (við stúlku
16—20 ára), Hvanneyri, Borgar-
firði.
Guðmundur Þorgrímsson (við stúlku
16—20 ára), Hvanneyri, Borgar-
firði.
Þorgrímur Jónsson (við stúlku
16—20 ára), Hvanneyri, Borgar-
firði.
Sigríður Þorgeirsdóttir (við pilt 18
—20 ára), Túnsbergi, Hrunamanna-
hrepp, Árnessýslu.
Elín Jónsdóttir( við pilt 16—19 ára),
Hrepphólum, Hrunamannahrepp,
Árnessýslu.
Kristjana Sigmundsdóttir (við pilt
16—19 ára), Syðra-Langholti,
Hrunamannahrepp, Árnessýslu.
Herdis Árnadóttir (við pilt 16—19
ára), Galtafelli, Hrunamannahrepp,
Árnessýslu.
Garðar Vigfússon (við stúlkur 18—21
árs),
Gunnar Pálsson (við stúlkur 18—21
árs),
Eggert Ellertsson (við stúlkur 18—21
árs),
Vilhjálmur H. Eiríksson (við stúlkur
18—21 árs),
Vilmundur Jónsson (við stúlkur 18
—21 árs), allir á Bændaskólanum
Hólum, Hjaltadal, Skagafirði.
Guðmundur Þorsteinsson (við stúlkur
16—18 ára, mynd fylgi),
Ragnar Einarsson (við stúlkur 16—
18 ára, mynd fylgi),
Eggert Ellertsson (við stúlkur 16—
18 ára, mynd fylgi),
Erlendur Eysteinsson (við stúlkur
16— 18 ára, mynd fylgi), allir á
Bændaskólanum Hólum í Hjalta-
dal.
Kristín Karlsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—20 ára),
Erna Bergsveinsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—20 ára),
Hrefna S. Þorsteinsdót.tir (við pilta
eða stúlkur 16—20 ára), allar á
Reykjaskóla, V-Hún.
Margrét Bærings (við pilt eða stúlku
17— 20 ára), Aðalgötu 9, Siglufirði.
Pollý Baldvinsdóttir (við pilt eða
stúlku 17—20 ára), Hlíðaveg 1,
Siglufirði.