Vikan


Vikan - 16.12.1948, Page 7

Vikan - 16.12.1948, Page 7
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948 7 27. maí. Drukkum kaffi hjá fólki í nágrenninu, hjá fiskimanni, sem heitir Óli, og fjölskylda hans. Hús þeirra er eitt hinna nýju, steinsteyptir veggir og báru- járn á þakinu. Við sitjum í lítilli stofu eins þriflegri og þokkalegri og bezt gerist í Reykjavík, með góðum nýtízkuhúsgögnum, rafmagni, miðstöð og hinu venjulegu safni af fjöl- skylduljósmyndum - á veggjunum. Mér geðjast vel að þessum táhreinu stáss- stofum, sem maður rekst á allstaðar á íslandi, þó þær virðist ef til vill gamal- dags og smáborgaralegar í augum Eng- lendinga. Þær eru einskonar tákn þeirrar hreykni og ástar, sem íslendingar bera til heimila sinna. Óli og fjölskylda hans eru vingjarnlegt og glaðlegt fólk og virðast öll hin hraust- ustu, þrátt fyrir tilfinnanlegan græn- metisskort á þessum slóðum. Dætur hans eru meðal fallegustu stúlkna, sem ég hef séð á íslandi. Það er fyrsta fjölskyldan, sem ég hef hitt á Grímsey fyrir utan prestsfjölskyld- una, þó M. og B. hafi komið í eitt eða tvö hús áður. Ég hef tekið eftir því, meðal annarra orða, að fólk hér, eins og í Öræfunum, veitir ókunnugum vingjarn- lega eftirtekt án þess þó að sýna nokkurn sérstakan áhuga. Ef útlendingur kemur á afskekkta staði eins og þessa, skyldi maður ætla að glápt yrði á hann eins og tvíhöfðaðan kálf eða eitthvað því um líkt, en það er léttir að manni skuli tekið svo blátt áfram. Um kvöldið fór ég að horfa á M. mála niður við sjó með hóp af aðdáunarfullum ungum drengjum fyrir aftan sig. Skarp- yddir klettar, skínandi blátt haf og sköflug fjöllin á bak við. Það hlýtur að vera gott að vera listamaður: orð geta aldrei alveg lýst svo fögru sviði. Eftir kvöldmat var ég svo óvarfærinn að taka þátt í knattspyrnu. Ég er hræddur um að þjóðarheiður Englands hafi orðið fyrir alvarlegu áfalli vegna þess, hve lé- lega ég lék,,en það verðyr ekki við því gert og hvað sem öðru líður, þá var það skemmtileg reynsla. Áður en Róbert kom kunnu eyjarskeggjar ekki einu sinni knattspyrnureglurnar, svo mér var for- vitni á að vita, hvað honum hafði tekizt að kenna þeim. Yfirleitt eru þeir honum til sóma og leika eins vel og knattspyrnu- sveitir í smáþorpum mundu gera víðast hvar á Englandi. Það var þó ekki ó- skemmtilegur mismunur í einu eða tveiin- ur atriðum: I fyrsta lagi voru margir þátttakendanna, en þeir eru flestir karl- menn á eyjunni innan við þrítugt, með hatta eða húfu á höfðinu meðan þeir léku, nema þegar þeir skölluðu boltann. 1 öðru lagi: Þó að markstengur væru á sínum stað, voru jaðrar mjög óljósir og leik- endur eltu boltann út um móa og þúfur; og í þriðja lagi var enginn á sínum stað, en örkuðu óskipulega fram og aftur eftir vellinum. Þeir sýndu samt fágaðan leik og greindarlegan og mundu eflaust gefa enskri sveit með svipaðri reynslu nóg að gera. Róbert segir mér, að íslendingar séu ólíklegir til að verða verulega góðir knattspyrnumenn um ófyrirsjáanlegan tíma vegna þess, hversu þeir eru miklir einstaklingshyggjumenn og skilja ekki nægilega vel anda samheldninnar. Það verður fróðlegt að sjá, hvernig þessi íþrótt þróast hér. 28. maí. Vika í dag síðan við komum. I kvöld höfðum við svartfugl, sem Óli hafði gefið okkur, til kvöldverðar. Ég var tortrygginn gagnvart honum, þar eð ég hafði aldrei bragðað hann áður — bjóst við að hann mundi smakkast af úldnum fiski, en reyndist ágætur á bragðið. Yrði ég einhverntíma Robinson Crusoe, skyldi ég verða ánægður, þó ég hefði ekkert annað að borða. En loftslagið hefur sín áhrif. Loftið er svo frískandi hér, að matarlystin verður ótakmörkuð. Systir mín hefur verið að reyna að fita mig eins og verðlaunagrís: ég hlýt að hafa þyngst um 10—20 pund síðan ég kom til íslands. I dag hefur verið kalt slydduveður, en í kvöld létti til og ég gekk norður á eyna með Robert til að tína egg. Klukkan var yfir ellefu, svo við biðum til að sjá mið- nætursólina, sem ég hafði séð einu sinni áður, er ég var hertúlkur í Norður-Noregi í maí 1940. Kringum gullinn skjöld sólar- innar, er stóð spannarlengd frá sjóndeild- arhringnum, var loftið bleikt, sem lofar góðu á morgun. Þegar ég hugsa til Noregs, verður mér einnig- hugsað til þess, hvað komið hefði fyrir Island, hefðum við ekki sent her- sveitir hingað árið 1940. Að sjá hermanna- skálana og önnur vegsummerki um brezk- ameríska hernámið snertir samvizku mína illa: mér hefði verið illa við nærveru er- lendra hersveita í mínu eigin landi. Samt veit ég, eftir að hafa verið sjónarvottur að því sem stríðið olli Norðmönnum, og er sannfærður um að nákvæmlega það sama hefði átt sér stað hér, hefðum við ekki komið í tæka tíð. ísland hefði orðið orustuvöllur og mörg þúsund íslendingar látið lífið, svo ekki sé minnst á áhrif loft- árása á íslenzka bæi og þorp. Hvort það, sem við Englendingar hugð- umst að berjast fyrir — frumrök lýðræð- isins — er það sama og íslendingar leitast við að viðhalda, veit ég ekki enn, hefi ekki Torfkofi á Grímsey. dvalið nógu lengi í landinu til að dæma um það, en ég er næstum viss um að svo er. 29. maí. Hjálpaði Róbert að sækja hey frá öðrum bæ. Hann var orðinn uppi- skroppa og varð að kaupa í viðbót. Við bárum pokana á bakinu. Hann hefur einnig keypt nokkra poka af tilbúnum áburði. Það vakti áhuga minn, því að ég vissi ekki, hvort íslenzkir bændur notuðu mikið af „tilbúningi“. Á Englandi eru margir bændur á móti því að nota hann, því hann „reynir of mikið á moldina“, eins og þeir segja. Mér skilst að phósphatið, sem sjófugla- driturinn inniheldur, sé einnig áburður í eðlilegu ástandi, sem hjálpi til að halda grasinu á Grímsey í góðu ásigkomulagi. Um kvöldið kom einn nágrannanna með snjóuglu, sem hann hafði skotið þá um morguninn. Hún var miklu stærri en nokk- ur ugla, sem ég hafði séð áður, alveg snjó- hvít og með klær eins ógurlegar og á tígrisdýri. Grímsey er það sem kalla mætti para- dís fuglafræðinganna, þ. e. a. s. hér eru allskonar fuglar. En ég er nú enginn fuglafræðingur, svo það er hætt við að sú hlið lífverunnar fari fyrir ofan garð og neðan hjá mér. En jafnvel þó maður leggi sig ekki í líma til að athuga fuglana, þá er varla hægt að komast hjá að taka eftir hinum mismunandi tegundum. Sú sem mest lætur á sér bera er krían, grá-hvítur fugl, áþekkur svölu með fallega straumlínuvængi og hvellan og ljótan róm. Þær virðast dvelja lengstum stundum á landi á þessum árstíma, fljúga fram og aftur í tilgangslausu hringsóli yfir breiðum högunum ofan við túnin. Kliður þeirra er áþekkur hópi æstra barna. Þeim er illa við nærveru manna á Grímsey og nálgistu þær fljúga þær yfir höfði þér eins og vængjaður árásarher, garga æðislega og steypa sér stundum yfir Pramh. á bls. 43. Fjárhús á Grimsey.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.