Vikan


Vikan - 16.12.1948, Side 9

Vikan - 16.12.1948, Side 9
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948 9 I. Xímaspursmál um vörubíl. Á meðfylgjandi fjórum myndum sjáið þið, ásamt fleiru, vörubil sem við skulum gera ráð fyrir að standi fyrir framan stórt pakkhús. Tveir menn, er ekki sjást á neinni myndanna, eru annaðhvort að taka vörur af bílnum eða láta vörur á hann. Þótt við sjáum mennina ekki, né vitum hvort heldur þeir eru að taka af bílnum eða láta á hann, getum við svarað eftirfarandi spurningum algerlega rökrétt, ef við aðeins einbeitum athygli okkar að myndunum. Spurningarnar eru þessar: 1. I hvaða tímaröð voru myndirnar teknar? 2. Var mikill vindur, þegar myndirnar voru teknar ? 3. Var maðurinn, er sést á efstu myndinni og næstneðstu, að fara upp í fólksbílinn, eða var hann að fara úr honum, og hefur þá aðeins snúið sér að samfarþegum sín- um til þess að kveðja. 4. Var verið að taka vörur af vörubílnum, eða var verið að setja vörur á hann? 5. Var um sama fólksbílinn að ræða á báðum neðstu myndunum ? 6. Var vörubíllinn fullhlaðinn, þegar fólks- bíllinn ók af stað ? 7. Hvaða mynd var tekin lengstum tima á eftir næstu mynd á undan? A R R A p P P P A R A R II. A, R og P. Reýnið að skipta þessum ferhyrningi í fjóra parta sem vera skulu. 1) jafn stórir, 2) eins að lögun, og 3) með bókstöfunum A, R og P, hver um sig. ÆÞt&gra- tlvi'ti III. 1 umsátursástandi. Á stríðsárunum var afar víða komið fyrir allskonar tálmunum á vegum sem lágu að hern- aðarlega mikilvægum stöðum og borgum. Páir eða engir munu þó hafa gengið eins rösklega fram í þessu og borgarstjórinn í ZXCVY (nafn borgarinnar er hernaðarleyndarmál). Hann lét meira að segja koma fyrir hindrunum á öllum strætum borgarinnar sjálfrar. Og alveg sérstak- lega á leiðinni frá járnbrautarstöðinni að ráð- húsinu. Eitt sinn var borgarstjórinn staddur á járn- brautarstöðinni og þurfti að flýta sér á borgar- stjórnarfund, sem auðvitað var haldinn í ráð- húsinu. En þá mundi hann alls ekki hvaða leið hann ætti að fara án þess að þurfa að klöngrast yfir götuvígin, sem var þó tvísýnt um að hann kæmist yfir. Getið þið bent borgarstjóranum á hindrunar- lausa leið? WrHDow M/NDO My IV. Það er gert með speglum. Fred nokkur Catt er hræddur við allt og alla, jafnvel sinn eigin skugga. Hann er einsetumaður og býr á fyrstu hæð i húsi, sem hann á sjálfur. Teikningin, sem hér fylgir með, er af herbergja- skipan á íbúðarhæð Catts. Til þess að geta fylgzt með, og séð þá, er fara ætla inn í húsið hefur hann komið fyrir fjórum speglum, flötum, á veggjum herbergjanna, þannig, að liggjandi á rúmi sínu og með höðuðið á koddanum merktum X á myndinni, getur hann séð, hver er á ferð- inni áður en sá hinn sami hefur stigið upp í tröppurnar. • Hvernig hefur Catt komið speglunum fyrir? V. Atliyglisverðir búnaðarhættir. Lífið á Læk er alveg einstakt, og þar fer ýmislegt fram með öðrum hætti en allsstaðar annarsstaðar. Láki bóndi á Læk er líka heim- spekilega hugsandi maður, er hugsar meira um að brjóta hin flóknustu vandamál lífs og dauða til mergjar, heldur en um afkomu bús síns. Myndin hér að ofan var tekin morgun einn fyrir skömmu á áðurnefndum bæ, og undir venjulegum kringumstæðum þar. Hvað getið þið komið auga á mörg óvenjuleg atriði á þessari mynd ? 7 ? 10 ? 14 ? eða fleiri ? VI. Um víða veröld. Hvað getið þið nefnt mörg þessara ey-landa ón þess að bera ykkur saman við landabréfið ?

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.