Vikan


Vikan - 16.12.1948, Síða 19

Vikan - 16.12.1948, Síða 19
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948 19 1illiimutið Smásaga eftir Mark Twain Svo bar við á langferð okkar suður Nevada, að eitt hjólið brotnaði undan vagninum okkar, svo að Við urðum að fá gert við það á næstu stöð, áður en hugs- anlegt væri að komast lengra. Talið var að þetta mundi valda. 5—6 stunda töf, svo að við tókum feginshendi boði um að vera þátttakendur í veiðiför, sem verið var að undirbúa til þess að skjóta villinaut. Og það var líka óblandin ánægja að þeysa á eftir villidýrunum þennan daggarhreina morgun. En ánægjan varð þó blendin að lokum fyrir suma, því að einn félagi okkar, Bemis að nafni, sem átti það til að sniðganga sannleik- ann, var sjálfur eltur af ólmum bola að minnsta kosti í tíu mílna vegalengd, þar til hann í örvæntingu sinni tók það fanga- ráð að fleygja sér af hestbaki og klifra upp í tré eitt afskekkt, er varð á vegi hans. Fyrir þetta varð hann að almennu athlægi og var súr sem edik næsta sólar- hring. En svo fór að brá af honum og málbeinið liðkaðist á ný. ,,Jæja,“ sagði hann. ,,Ætli þið hefðuð hlegið eins hátt í mínum sporum. Að minnsta kosti var mér ekki hlátur í hug um tíma. Og þessi langi sláni, sem þið kallið Hank, ætti ekki að vera að glenna sig. Ég skyldi hafa barið hann í klessu hefðum við verið tveir einir. En ég sá fram á að þið hinir mynduð hafa komið honum til hjálpar fimm eða sex, og ég kærði mig ekki um að fara eins með ykkur alla. En í staðinn vildi ég bara óska þess, að þið hefðuð allir verið komnir upp í tréð til mín. Hver veit nema gleiddin hefði þá farið af ykkur. Og hefði ég nú bara haft almennilegan hest! En það var nú eitthvað annað. Um leið og þessi tindabikkja, sem ég sat á, sér hvar tarf- urinn kemur æðandi og öskrandi á móti henni, þá rís hún — sem ég er lifandi maður — upp á afturfótunum og prjónar með framfótunum út í loftið. Við þessar aðfarir tók hnakkurinn að renna undan mér, svo að ég varð að þrífa báðum hönd- um um hálsinn á truntunni, til þess að halda mér á baki, um leið og ég byrjaði að lesa ,,faðir vor“, skiljið þið?“ „Já, þó nú væri!“ ,,En hvað haldið þið! Á næsta vetfangi var merin komin með framlappirnar niður á jörð aftur og jós nú sem ákafast, en bolinn gleymdi að bölva og öskra og spæna upp jörðina af tómri forundran og stóð bara í sömu sporum og starði á að- farir merarinnar. En bráðlega fékk hann nóg af slíku og tók nú þar til, sem fyrr var frá horfið, hóf nýja árás gegn okkur og rak um leið upp svo ægilegt öskur, að það sópaði sýnilega síðustu leifum heil- brigðrar skynsemi úr merinni og gerði hana að alfullkomnasta erkifífli heims- ins. Þó að ég ætti að detta niður stein- dauður hér á stundinni, þá get ég ekki sannara orð talað en það, að merarskratt- inn stakk sér beint á hausinn og grét söltum tárunum af skelfingu, sjálfsagt einar 15 sekúndur. Hún var alveg af göflunum gengin, svei mér þá, og bar ekki skyn á það fremur en nýfætt barn, hvað hún var að gera. Svo geystist fjandans blótneytið fram til nýrrar árásar, og um leið komst bikkjan á fjóra fætur aftur og djöflaðist nú á harðastökki allt hvað hún orkaði næstu tíu mínúturnar, en á hvern hátt, haldið þið? I hring, drengir mínir, hvern hringinn af öðrum á slétt- unni, og það með slíkum hraða, að allt hringsnerist fyrir tarfinum, svo að hann gat ómögulega reiknað út hvaða stöðu hann ætti helzt að taka til að stanga okkur svo dygði. Hann stóð því bara kyrr másandi og bölvandi, rótaði mold og sandi yfir bakhlutann á sjálfum sér, öskraði við og við og var nú að komast á þá skoðun að þarna væri líklega kominn 1500 dollara cirkushestur handa honum til að gæða sér á. En af mér er það að segja, að fyrst hékk ég á makkanum — á merinni, ekki bolanum! — því næst rann ég aftur á við í áttina að taglinu og stakkst á Enska kvikmyndaleikkonan Susan Shaw kveik- ir á jólatrénu sínu. ýmsum endum fram og aftur þar að auki. Og þó — það get ég margsvarið — þó fannst mér eitthvað hrífandi og jafnvel hátíðlegt við þennan þrotlausa tryllings- sprett og þessi æðisgengnu loftköst á sjálfum mér, þarna í návist dauðans sjálfs. En nú var villinautið komið á hreyfingu á nýjan leik, komst nú í högg- færi við okkur og snerti víst eitthvað til- heyrandi afturparti merarinnar — ja, ég held það að minnsta kosti, því að ég var þá stundina með hugann of mjög bundinn við sjálfs mín ástæður til þess að geta sagt um það með vissu. En svo mikið er víst, að eitthvað hlýtur allt í einu að hafa fyllt merartruntuna brennandi löng- un eftir einveru, því að hún tók geysihart viðbragð og rauk af stað. Og þið hefðuð bara átt að sjá, hvað þessi beinagrind með köngullóarlappirnar gat þanið sig! Og þið hefðuð átt að sjá nautið í þessu kapp- hlaupi, með hausinn niður við jörð, tung- una lafandi út úr kjaftinum eins og rauða druslu, halinn lóðrétt upp í loftið, öskrin dundu eins og þokulúður, en illgresi, mold og sandur stóð í strókum aftur af honum, rétt eins og hvirfilbylur væri á ferðinni. Það var nú kapphlaup í lagi! Ég hékk í hnakknum aftur á lend á mer- inni, tauminn hafði ég milli tannanna, en hélt mér með báðum höndum dauðahaldi í hnakkkúluna. Fyrst drógust hundarnir aftur úr, svo náðum við kanínu, fórum því næst fram úr sléttuúlfi og vorum í þann veginn að draga uppi antílópu, þegar hnakkgjörðin, sem var fúin, hrökk í sundur og ég slöngvaðist um 100 fet aftur á bak til vinstri. Við þetta flæktist hnakkurinn um afturlappirnar á merinni, en hún sparkaði honum 8 eða 9 hundruö fet beint í loft upp, sem ég er lifandi maður! Sjálfur skall ég niður við ræt- urnar á eina trénu, sem til var á margra mílna svæði (eins og hver maður hefði getað séð með eigin augum), og á næstu sekúndu þreif ég um stöfninn og mjakaði mér upp á við með nöglum og tönnum, þar til ég að lokum sat klofvega á einni stærstu greininni. Púh! Loksins gat ég kastað mæðinni, vegsamað heppni mína og hresst upp á hugrekkið með nokkrum kröftugum blóts- yrðum, enda var ég nú öruggur fyrir tarfinum, svo framarlega sem honum dytti bara ekki þetta eina í hug, sem ég var hræddastur um. Að vísu var sá mögu- leiki fyrir hendi að dýrinu dytti þetta ekki í hug, en óneitanlega voru meiri líkur til þess, að einmitt þetta væri bolsi nú að hugleiða. En ég hafði þegar hugsað upp varnarráðstafanir, ef svo skyldi fara. Það voru full 40 fet til jarðar frá grein- inni, sem ég sat á, og nú losaði ég með mestu rósemi snöruna mína frá hnakkn- um —“ „Hnakknum —? Höfðuð þér þá hnakk- iún með yður upp 1 tréð “ „Með mér upp í tréð? Nú þykir mér týra! Það mundi enginn hafa getað, ekki Framhald á bls. 30.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.