Vikan - 16.12.1948, Síða 22
22
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
* HEIMILIÐ * I
Tízkumyndir
Hrísgrjónagrautur.
2500 gr. mjólk, 250 gr. hrís-
grjón, 2 matskeiðar sykur, 1 te-
skeið salt, 1 heil mandla.
Bnska kvikmyndaleikkonan Margar-
et Lockwood í kvikmyndinni „Look
before you love“.
Margaret Lockwood notar þennan
fallega hatt í kvikmyndinni „Look
before you love“. Er hann úr ljósu
strái og skreyttur blómum og svört-
um flauelisböndum. (Myndirnar eru
báðar frá J. Arthur Rank-kvik-
myndatökufélaginu i London).
Þegar mjólkin sýður, eru grjónin
sett í, og er alltaf hrært í við og
við, meðan þau eru að soðna.
Grauturinn er borðaður með saft.
Mandlan er sett í rétt áður en graut-
urinn er borinn fram.
Kalt hangikjöt.
Grænar baunir og gulrætur bornar
með í jafningi.
Frosin rjómafroða.
% 1. rjómi, y2 st. vanille, 50 gr.
sykur, 100 gr. sætir ávextir eða
íslenzk ber.
Rjóminn er þeyttur vel. Vanille-
stöngin er steytt ásamt sykrinum.
Því næst er vanille, sykri og ávöxt-
unum blandað saman við rjómafroð-
una. Pryst i 3—4 kl.st. Framreitt
með makrónum eða ísvöflum.
Skraut á jólaboröiö.
IJr sveigjanlegum, þykkum pappír
er klippt meters löng og 20 cm.
breið ræma og önnur, sem er aðeins
60—70 cm. löng. Lengri ræmuna á
að nota í hæðótta braut, með þvi
að sveigja pappírinn, og leggja hana
ofan á styttri ræmuna (sjá myndina).
Hæðirnar og dældirnar eru búnar til
á þann hátt að endar ræmanna eru
límdir saman og þar sem dæld á
að vera er settur þungur hlutur og
látinn standa þar um stund.
Þið sjáið hvernig á að búa til
sleðana og jólasveinana á mynd B,
C og D. Eru þeir klipptir úr þykkum
Um jólatrésskraut.
Sjá bls. 21.
pappír og málaðir með vatnslitum.
Á sjálfa brautina er borið litlaust
lím og bórsýrudufti stráð á, svo að
hún líti út sem hjarn. Pyrir endana
eru settar jólagreinar. Dýrið, sem
beitt er fyrir sleðann, er búið til úr
leir og eldspýtum. Þetta getur orðið
ljómandi snoturt á jólaborðinu með
kertaljósum sitt hvoru megin.
Skemmtileg kaka á jólaboröið
Þessa köku er auðvelt að búa til, er hún gerð úr hringum og mis-
munandi stórum stjörnum. Stjörnunum er raðað eftir stærð, sú
stærsta neðst, og hringirnir á milli. — Deigið: 420 gr. rúgmjöl,
270 gr. sykur, 3 egg, 120 gr. hunang, iy2 teskeið natron, engifer,
allrahanda og negull eftir smekk, 70 gr. sætar möndlur og 1 egg
til skrauts. — Mjölið, sykurinn, eggin, hunangið, natrónið og
kryddið er hnoðað í deig. Síðan geymt í 2 klukkustundir. Tekið
utan af möndlunum og þær skornar í tvennt. Deigið er flatt út
i 4 mm. þykkt og skornar út stjörnur í mismunandi stærðum.
Egg borið á og mandla sett hvern odd og örlitlu af sykurbráði
sprautað á. Bakað á smurðri plötu í vel heitum ofni.