Vikan - 16.12.1948, Qupperneq 26
26
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1948
Nýstárlegur leikvöllur á Suðureyri í Súgandafirði
Ritstjóri Vikunnar var þrjá sólar-
hringa í Súgandafirði í sumar. Þar
var gaman að koma, einsog víðast
hvar á Vestfjörðum. Það er fallegt
í firðinum, þó að hann sé þröngur,
og í dalnum handan við Spilli, þar sem
prestssetrið Staður er, blasir mikil
fegurð við augum í góðu veðri. Þang-
að var verið að gera veg í sum-
ar frá Suðureyri og er það hið mesta
þarfaverk, því að undirlendi til rækt-
unar er lítið í firðinum sjálfum, en
mikið í dalnum. Það var lika verið
að vinna að myndarlegri bryggju,
sem jafnframt er öldubrjótur og
verður mikil bót fyrir Súgfirðinga,
en þeir eru miklir sjósóknarar.
Aðalsteinn Hallsson er skólastjóri
í Súgandafirði og nýkominn þangað.
Áður hafði hann getið sér ágætan
orðstír sem kennari í Reykjanesi og
Bolungarvík. Hann er þaulreyndur
fimleikakennari og mikill áhugamað-
ur á því sviði. Hann sýndi mér
módel að nýstárlegum leikvelli, sem
hann var með í skólahúsinu og hafði
sjálfur smíðað og ætlar hann sér
að vinna að því, að honum verði kom-
ið upp á Suðureyri. Jarðýta var
að undirbúa leikvallarstæðið, en það
er fyrir framan skólastjórabústað-
inn, milli fjörunnar og aðalgötu
þorpsins. Sagði Aðalsteinn áhuga
forráðamanna staðarins mikinn á
(Ljósm.: Vikan)
þessu máli, svo að búast má fullkom-
lega við, að þessi þarfa hugsjón
komist þar í framkvæmd.
Aðalsteinn kom síðan með módel-
ið suður og sýndi það fræðslumála-
stjóra, íþróttafulltrúa, umsjónar-
manni leikvalla og blaðamönnum í
Austurbæjarskólanum. Var ekki
annað að sjá og heyra en allir væru
hrifnir af því. I stuttu máli sagt
vakir það fyrir Aðalsteini að sam-
eina leiki barnanna og leikfimi á
vellinum og gera hann þannig úr
garði, að börnin vilji helzt ekki
annarsstaðar vera, þegar þau eru
ekki heima eða í skólanum. Á þessu
sést, hve hugmyndin er óskaplega
mikils virði og á hún sannarlega
skilið hinn fullkomnasta stuðning á-
hrifamanna og almennings.
Aðalsteinn skólastjóri Hallsson er
fæddur 11. febrúar 1903 á Koreks-
stöðum í Hjaltastaðaþinghá á
Héraði, sonur Halls Björnssonar
hreppstjóra og Þórunnar Björnsdótt-
ur, frá Dölum í Fáskrúðsfirði. Aðal-
steinn gekk fyrst í alþýðuskólann á
Eiðum. Hanp lauk prófi í Kennara-
skólanum 1928, fór um haustið til
Kaupmannahafnar og í Statens
Gymnastik Institut og tók þaðan
próf 1929. Þá um haustið hóf hann
kennslu í heilsufræði og fimleikum í
Kennaraskólanum og barnaskóla
Reykjavíkur. Kenndi í mörg ár við
Austurbæjarbarnaskólann. Vár þrjú
ár kennari við héraðsskólann í
Reykjanesi við Isafjarðardjúp og tók
við skólastjórastarfi á Suðureyri við
Súgandafjörð- haustið 1947.
A Leikvelli Aðalsteins Hallssonar verða tæki, sem ætluð eru til að sam-
eina leik og leikfimi: rennibrautir, grindur, kista, hestur, slár, rólur sand-
kassar og sölt, bátur og ef til vill bill og flugvél.
Orðsending
til
Húsráðenda og húsmæðra
frá
Brunabótafélagi Islands
Farið variega með eldinn. Jólatré eru bráðeldfim. Ef
kviknar í jólatré þá kæfið eldinn með því að breiða
yfir hann. Setjið ekki kertaljós í glugga eða aðra staði
þar sem kviknað getur í gluggatjöldum eða fötum.
Forðist að leggja heimili yðar í rústir og að breyta
gleði í sorg!
Gleðiieg jól! farsælt komandi ár!
Brunabótafélag Islands
í
í
V
V
V
4
4
*
V
$
*
V
4
9
*
V
V
9
9
V
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
í
9
4
*♦;
*
I
9
9
A^ ^Áff
ViT
vN’
if
4 ír':
Hefi ávalt f jölbreytt úrval af allskonar
tœkifœrisgjöfu m
Ennfremur ýmsar góðar og þarflegar
jólagjcifir
Gottsveinn Oddsson
úrsmiður.
Laugavegi 10, gengið inn frá Bergstaðastræti.
*
!
4
4
i
9
v
9
8
9
9
9
9
9
9
9
4
4
4
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
9
'í*»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>»
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.