Vikan - 16.12.1948, Page 44
44
JÓLABLAÐ VTKUNNAR 1948
fólk í Grímsey, og þegar gigtin verður
honum of þungbær, og hann hefur ekkert
ákavíti til að drekkja henni í, þá fer hann
í rúmið og reynir að sofa hana úr sér.
Það var merkilegt að sjá, hvað þe'ssi
lítilfjörlegi timburskúr var einstaklega
hreinn og þrifalegur, þó að fátt væri um
innanstokksmuni. Engin kona hefði getað
haft hann hreinni. Á borði við rúmið
hans, sem var nærri fimm feta langt tré-
rúm, var búnki af tímaritsheftum, sem
gefin eru út af hinni íslenzku deild
Rutherfordhreyfingarinnar. (Þaðan hefur
hann að líkindum áhugann á Englandi).
Svo virtist sem þetta væri einasta lesning
hans, því að engar bækur voru neins
staðar sjáanlegar.
31. maí. Dýrlegur sólskinsdagur. Sjór-
inn glitrar af miljónum gimsteina. Máv-
arnir á klettunum virðast eins og glans-
andi hvítir snjódílar. Ég horfði á, þegar
kýr J. var látin út í fyrsta sinn með kálf-
inum sínum eftir hið langa vetrar-fang-
elsi. Hún eigraði um hálf rugluð, eins og
hún gæti varla áttað sig á þessu skyndi-
lega frelsi. Um kvöldið, þegar hann ætlaði
að láta hana inn í fjósið í kjallara íbúðar-
hússins, vildi hún hvergi fara, og hann
átti í mestu vandræðum með hana,
kjallarinn hrundi að nokkru leyti og
skemmdist í viðureigninni.
1. júní. Kaldara. Hvassviðri. Fjöllin á
strandlengjunni hulin þoku. Þetta gefur
nokkra hugmynd um, hversu Grímsey
hlýtur að vera afskekkt og einmana í haf-
inu vetrarmánuðina.
I morgun voru karlmennirnir að safna
rekaviði í fjörunum. Þeir ætla að nota
hann í girðingar. Eins og annars staðar á
íslandi hefur hver bóndi rekarétt á vissu
svæði á strandlengjunni. J. á langar
rekafjörur, og nú er búið að flytja heim
til hans meira af viði en hann getui
notað. Fróðlegt væri að vita, hvaðan allur
þessi rekaviður kemur, og hvaða ævintýri
eða kannski sorgarsögur eru bundnar við
hverja spýtu.
Smástrákarnir í Grímsey líkja eftir
eldri mönnunum. Þeir eru allir að leika
sér að því að safna eggjum, — þeir síga
í kaðalspottum niður lágan klett á
sunnanverðri eynni. Auðvitað er V. með
þeim, en móðir hans virðist ekki óttast
um hann að óþörfu. Víst er um það, að
börnin eru alin upp við mikið frjálsræði
á íslandi.
2. júní. Kaldur rigningardagur. Ei-
ríkur, Stefán og einn maður enn hjálpuðu
J. til að setja upp gaddavírsgirðinguna.
Þeir voru undra fljótir að því, og nú er
land hans á eynni jafn vel varið og hjá
hverjum enskum gósseiganda, sem vera
skal. Þetta eykur heyfenginn hjá honum,
því að áður komu alltaf margar kindur
óboðnar inn á túnið og bitu það.
í morgun, þegar ég var að sækja vatnið
(en vatnsbólið er um það bil mílufjórð-
ung í burtu), var ég svo óheppinn að
missa fötuna ofan í brunninn, sem er sjö
eða átta feta djúpur. Engin leið virtist
að ná henni upp úr, og ég örvænti um
að það væri hægt, en M. settist við brunn-
inn með fiskilínu og öngul og sýndi þá
einstöku þolinmæði að sitja þar heila
klukkustund, og að lokum náði hann föt-
unni upp.
4- júní. J. gaf mér körfu með hér um
bil 200 teistueggjum og öðrum sjófugla-
eggjum í „kaup“ fyrir það, sem ég hef
unnið fyrir hann. Ég ætla að fara með
þau til Reykjavíkur, ef ég get komið
þeim án þess að brjóta þau, og gefa þau
vinum mínum þar.
Af því að þetta var síðasti dagurinn
minn, gaf B. mér indælar pönnukökur um
hádegið. Eggin eru áreiðanlega góð í
pönnukökur.
Nú sést Drangur við sjóndeildarhring-
inn, og ég verð enn að búa mig undir
sjóveiki í tólf klukkustundir á leiðinni til
Akureyrar.
Vertu sæl, Grímsey. Ekki vildi ég dvelja
lengi hér, -— jafnvel þótt allar laglegu dæt-
urnar hans Óla séu teknar með í reikn-
inginn, — en hálfsmánaðar dvöl var mjög
skemmtileg.
Íiemtskfatahreínsun og titun
* 34 1300
Sœkjum - Sendum
Síðastliðið sumar voru teknar í notkun, hjá okkur,
nýjar hreinsunarvélar af fullkomnustu gerð. Vélar
þessar eru framleiddar í Ameríku, og hafa til að bera
allar beztu tæknilegar nýjungar, sem komið hafa
fram á þessu sviði.
En ekki er allt fengið með því, vélarnar einar geta
ekki unnið verkið fullkomlega, þar verður manns-
höndin einnig að vera að verki.
Hjá okkur starfar þaulvant starfsfólk, sem unnið
hefir við sín sérstörf árum saman, og hefir því öðlazt
þá reynslu, sem til þarf, til þess að geta ásamt vél-
unum skilað beztum fáanlegum árangri. Sendið okk-
ur því fatnað yðar og annað til hreinsunar og við
munum kappkosta, eins og hingað til, að gera yður
ánægða.
Nýtízku hreinsunarvél.