Vikan - 27.01.1949, Blaðsíða 1
„Milli fjalls og fjöru66
Fimmtudagskvöldið 13. janúar var frumsýnd í Gamla Bíó
fyrsta talmyndin, sem tekin hefur verið á Islandi. Loftur ljós-
myndari Guðmundsson á heiðurinn af þessu brautryðjandastarfi,
því að hann hefur samið efni myndarinnar og annazt leikstjórn
og kvikmyndun, en sonur hans, séra Hákon Loftsson, aðstoðaði
hann við hljóðupptökuna. Innimyndirnar voru teknar í leikfimi-
sal St. Jósefs-systranna í Hafnarfirði, en útimyndirnar á Kjalar-
nesi, Hálshólum í Kjós og víðar í Kjósinni, við Arnarnes, sunn-
an Reykjavíkur, á Meðalfellsvatni og uppi í Esjú. Þótt sitthvað
megi að þessari kvikmynd finna, þá er samt ákaflega gaman
að sjá hana og taka hennar merkilegt afrek.
Loftur er þegar byrjaður á nýrri kvikmynd.
Efsta röð, talið frá vinstri: Inga Þórðardóttir sem Helga, dóttir sýslumanns og Lárus Ingólfsson sem Gvendur, vinnumaður sýslumannsins. Ingi-
björg Steinsdóttir sem Guðrún og Jón Leós sem Grímur bóndi, maður hennar. Gunnar Eyjólfsson sem Ingvar, sonur Grims, í slagsmálum við út-
lendingana (Grétar Árnason, Þórarinn S. Gunnarsson og Einar I. Jónsson leika þá). Anna Guðmundsdóttir sem Malla, ráðskona sýslumanns, Al-
freð Andrésson sem Hansen, danskur kaupmaður, og Brynjólfur Jóhannesson sem sýslumaðurinn. — I miðju, talið frá vinstri: Gunnar Eyjólfsson |
sem Ingvar. 1 búð Hansens kaupmanns, Einar Gimnarsson og Laila Andrésson sem viðskiptavinir, Gimnar Eyjólfsson sem Ingvar og Bryndís
Pétursdóttir sem Sigrún, fósturdóttir Hansens, Bryndís Pétursdóttir sem Sigrún. Nína Sveinsdóttir sem viðskiptavinur Hansens, Gunnar Eyjólfsson |
sem Ingvar og Alfreð Andrésson sem Hansen kaupmaður. — Neðst, talið frá vinstri: Brynjólfur Jóhannesson sem sýslumaðurinn og Alfreð And-
résson sem Hansen. Inga Þórðardóttir sem Helga, dóttir sýslumanns, og Gunnar Eyjólfsson sem Ingvar. Á hlaðinu fyrir framan Kot, verið að taka
Ingvar fastan: Sýslumaðurinn, Steini Guðmundsson og Gísli Andrésson sem bændur, (á milli þeirra) Gunnar sem Ingvar og Lárus sem Gvendur, 1
og Ingibjörg Steinsdóttir og Jón Leós sem Guðrún og Grímur bóndi. Lárus Ingólfsson sem Gvendur og Brynjólfur Jóhannesson sem sýslumaðurinn. ;