Vikan - 12.05.1949, Page 3
'VIKAN, nr. 19, 1949
3
GULLNA LEIÐIN.
Revýa í 3 þáttum (5 sýningnm), eftir Jón snara
(Loft Guðmundsson). Leikstjóri Ævar R. Kvaran.
Frumsýnd af Leikfélagi Hafnarfjarðar föstudaginn
29. apríl.
Leikfélag Hafnarf jarðar, með
.Ævar R. Kvaran sem leikstjóra í
broddi fylkingar, hefur nú færzt
mikið og gott verk í fang. Það hefur
tekið til sýningar bráðskemmtilega
revýu eftir hugkvæman og fyndinn
höfund, sem kann vel til verka
sinna. Auðvitað er hægt að finna
að ýmsu i gerð revýunnar, en það
er ekki tiltökumál, margt er svo
skemmtilega sagt og gert í henni,
að ástæðulaust er að vera að hampa
.sérstaklega hinu.
Hlutur leikstjórans í þessari sýn-
ingu er líka ákaflega eftirtektar-
verður. Milli 30—40 manns koma
fram í revýunni og margt af því lítt
vant fólk á leiksviði. Það fer auð-
vitað misjafnlega með hlutverk sín,
■einsog gengur, þótt um vana leikara
sé að ræða, en sumsstaðar koma
fram skemmtileg tilþrif, sem gefa
góðar vonir um leik þessa fólks í
framtíðinni. Leikstarfsemin í Hafnar-
firði hefur því tvímælalaust komizt á
breiðari og öruggari grundvöll við
þessa sýningu, þó að revýuleikur
eigi í hlut.
Það er ef til vill tilgangslítið að
fara að lýsa hér gangi revýunnar,
því að slíkir leikir eru yfirleitt laus-
ir í sér og oftast mörg „hliðarhopp"
í þeim. En í þessari revýu er þráð-
urinn í stuttu máli sá, að norðlenzk
hjón setja á laggirnar sumargisti-
hús í Kothala og þar gerist fyrsti
og annar þáttur. Þar kynnumst við
strax hressilegu og skemmtilegu
fólki, heimamönnum og gestum.
Þar er Gvendur frábæri (Hafsteinn
Baldvinsson), sem alltaf er að setja
met, í kossum jafnt sem öðru og
öðlast strax samúð áhorfenda, þrátt
fyrir metadelluna. Hernáma, utan-
dyrafreyja (María Þorvaldsdóttir)
er þarna létt og leikandi og þau
Gvendur syngja fjörlega saman
Loftur Guðmundsson hefur samið aul<
fjölda minni leikþátta, sjónleikinn
,,Brimhljóð“, sem sýndur hefur ver-
ið í Rvik af Leikfélagi Reykjavíkur,
og auk þess allvíða um land, „Hlát-
ur bæklaða mannsins" harmleikur
(1939-45), og ádeiluleikritið „Undir
logandi sigurfána“ (1948-9), en hvor-
ugt þeirra hefur enn verið sýnt á
sviði. Vinsælustu gamanleikir hans
eru „Hreppstjórinn á Hraunhamri",
sem 25 leikflokkar og félög víðs-
vegar um land hafa tekið til með-
ferðar, og „Seðlaskipti og ástir“, sem
yfir 20 leikflokkar hafa sýnt á rúmu
ári.
Loftur er fæddur 7. júlí 1906 að
Þúfukoti í Kjós, sonur hjónanna
Guðmundar Hanssonar bónda þar
og Maríu Gottsveinsdóttur. Tók kenn-
arapróf í Rvík 1931. Dvaldist við
nám erlendis, en stundað'. lengi
kennslustörf í Vestmannaeyjum. Nú
um alllangt skeið hefur hann verið
blaðamaður hjá Alþýðublaðinu og
skrifar að jafnaði leikgagnrýni og
skopdálkinn „Brotna penna“. Loftur
má tvimælalaust teljast einn allra
færasti maður, sem blaðamanna-
stéttin hefur nú á að skipa.
legustu, einkum þó Jón, sem er prýði-
lega leikin. Hreppsstjórinn (Valdi-
Frá vinstri: Karl Guðmundsson sem þulur, Ævar R. Kvaran sem Guð-
bjartur Ga-landi og Sigurður Kristinsson sem stjórnmálamaður.
Frá vinstri: Hernáma, utandyrafreyja (María Þorvaldsdóttir) og Gvendur
frábæri (Hafsteinn Baldvinsson).
ágæta söngva, því að ljóðin í þess-
ari revýu eru prýðilega gerð. Frúin
(Guðrún Jóhannesdóttir) og Jón
(Ársæll Pálsson) eru hin skemmti-
mar Lárusson) stofnar þarna fegr-
unarfélag og er það atriði mjög
gott og ágætlega leikið. Hamstrína
(Jóhanna Hjaltalín) er og sérlega skemmtileg. Hjákátlegur mælinga-
maður (Valgeir Óli Gíslason) er á ferðinni
og eykur á gleðina með orðum sínum og
athöfnum og góðum leik. 1. móttökunefnd-
armaður (Stefán Rafn Þórðarson) og 2.
móttökunefndarmaður (Karl Sigurðsson)
koma með útúrdrukkinn útlending (Böðv-
ar Sigurðsson) og auðvitað er i fylgd með
þeim 1. blaðamaður (Ólafur Sigurðsson)
og 2. blaðamaður (Markús Kristinsson).
1. skáld (Böðvar Sigurðsson) og 2. skáld
(Lúðvik Hjaltason) hamast við að skrifa
og rabba heilmikið saman og auðvitað
siglir útgefandi (Sigurður Gíslason). í
kjölfari þeirra. 1. frú (Sólveig Guðmunds-
dóttir) og 2. frú (Soffía Björnsdóttir)
láta ekki á sér standa og „voðalegur"
rakari (Eiríkur Jóhannesson) til að auka
á skemmtilegheitin og ekki er hægt að
Verið að slá met í kossi! Hafsteinn Baldvinsson sem Gvendur frábæri
og María Þorvaldsdóttir sem Hernáma, utandyrafreyja.
i Ameríku, én til þess þarf hann gjald-
eyri og þau hjónin fara suður að hitta
þá, sem öllu ráða í þeim málum. Svarta-
markaðsbraskarinn (Ævar R. Kvaran) er
á hælunum á þeim, prýðilega leikin og
gerfið ágætt. Biðstofuþátturinn er skop-
stæling á þætti í Gullna hliðinu og mjög
gaman að honum. Þar hitta hjónin skrif-
stofustúlku (Vigdis Hermannsdóttir) og 1.
skrifstofustjóra (Þorkell Jóhannesson) og
2. skrifstofustjóra (Borgþór Sigfússon) og
fá úrlausn eftir skoplega baráttu, en
svartamarkaðsbraskarinn flýr af hólm-
inum. Lokasýningin gerist á flugvellinum
við komu Jóns heim aftur. Þar er skringi-
legur þulur (Karl Guðmundsson), sem
tekur á móti farþegunum og rabbar við
þá i útvarp og lætur þá lika láta ljós sit't
skína. 1 þessu atriði koma fram verka-
Ársæll Pálsson sem Jón bóndi og álfameyjarnar (Ránardætur):
Ragnheiður Sigurðardóttir, Sigrún Þórðardóttir, Engilráð Óskars-
.dóttir, Sæunn Jónsdóttir og Þóra Sigurjónsdóttir.
vera án innandyrafreyju (Inga Dóra Hú-
berts), að ógleymdum álfameyjunum.
Jón langar að heimsækja dætur sínar
maður (Gunnar Bjarnason), útienzkur
farþegi (Karl Sigurðsson), stjórnmála-
Framhald á bls. 7.