Vikan - 12.05.1949, Blaðsíða 7
NIKAN, nr. 19, 1949
7
Ég bíð og man . . .
Framhald af bls. Jf.
augum stúlku, sem er heilbrigð og vildi
láta kyssa sig. Og hin seiðmagna þrá
tregaþrungis hjarta kvelur mig og ýfir
sífellt sár hjartans.
Svo man ég eftir sveitabæ fjarri öllum
mannabyggðum og sem lá að sjó. Lítilli
stúlku, jafnöldru minni, sem var hæg og
draumlynd og þótti mest gaman að sitja
uppí gilinu fyrir ofan bæinn og horfa á
lækinn, þegar hann liðaðist niðureftir og
féll framaf syllunum með lágu suði.
Það var uppeldissystir mín, Húmvör, dótt-
ir bóndans, sem ég ólst upp hjá.
Svo man ég ár og daga, gleði og ar-
mæðu, starf, en aldrei iðjuleysi. Forlögin
hrekja menn þangað, sem þau hafa ætl-
að þeim að vera, — kyrrstaða hæfir eng-
um fremur en sífellt skiptist nótt og dag-
ur.
Þegar við erum orðin sautján ára gömul
og dimmur vetur er, erum við einusinni
.skilin ein eftir á bænum ásamt gamalli
konu, karlægri, og fólkið fer til kaupstað-
ar og ætlar sér þrjá daga til ferðarinnar.
Við tvö eigum að gæta búsins. Og eftir
kvöldverð annan daginn setjumst við inní
baðstofuna; þar liggur gamla konan.
Margbreytilegt ljósið frá olíulampanum
einsog flögrar um baðstofuna. Skuggi
myndast bakvið sperru, hverfur, en kem-
ur aftur, aflagast. Hægur vindurinn strýk-
ur þekjuna og hljóðið verður hljómlaust
suð. Við sitjum þegjandi og aðgerðarlaus,
gamalmennið virðist sofa. Bæði erum við
hálfhrelld, en reynum að dylja tilfinning-
ar okkar. Umhugsunin um það, hve fjarri
við erum öllum mannabyggðum hvílir
þungt yfir okkur. Aldrei höfum við fund-
ið eins til ömurleik einverunnar, tilveru
þess afskekta, einsog nú. Aldrei hefur
nóttin verið eins myrk og torræð og vind-
urinn aldrei gnauðað eins drungalega,
A-erið cins draugalegur. Og flökt olíuljóss-
ins einsog ógnar okkur. Það er sem vitum
bæði að eitthvað sé yfirvofandi og í
hjörtum okkar biðjum við um vægð frá
einhverri ókunnri ógn — komandi ógn,
sem þjarmar að okkur.
Unz við skyndilega hrökkum saman og
færrm okkur nær hvort öðru.
Gamla konan stundi — þungt og hryglu-
kennt.
Ömurleikur stundarinnar hvolfist yfir
Framhald á bls. Vf.
GULLNA LEIÐIN Framh. af bls 3.
maður (Sigurður Kristinsson, Dr. Wal Johnson
(Ragnar Magnússon), Guðbjartur Ga-landi
(Ævar R. Kvaran), sem skemmtir með ágætum
söng, og danspar (María Þorvaldsdóttir og
Kjartan Erynjólfsson), er sýna fjörugan dans.
Og svo eru landvarnarliðsmenn og söngmeyjar.
Leiktjöld og búningar: Lárus Ingólfsson, ljósa-
meistari: Róbert Biarnason, leiktjaldasmiðir:
Gunnar Bjarnason, Sigurður Árnórsson • og Sig-
urður Kristinsson, hárgreiðsla: Kristín Björgúlfs-
dóttir.
Einar Markússon sá um músikina.
I stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar eru: Sigurð-
ur Gíslason, formaður, Stefán Júlíusson, ritari
og Sigurður Arnarson, gjaldkeri.
11
Gullfaxi
66
Áætlaðar flugferðir í maí 1949.
f
1
i
Reykjavík—Kaupmannahöfn:
Kaupmannahöfn—Reykjavík:
Reykjavík—Prestwick:
Prestwick—Reykjavík:
Reykjavik—London:
London—Reykjavík:
Reykjavík—Osló:
Osló—Reykjavík:
Afgreiðslur erlendis:
Laugardaga 7., 14., 21. og 28. mai.
Frá Beykjavíkurflugvelli kl. 8.30.
Til Kastrupvallar kl. 16.15.
Sunnudaga 1., 8., 15., 22. og 29. maí.
Frá Kastrupvelli kl. 11,30.
Til Reykjavíkurvallar kl. 17,45.
Mánudag 2. og þriðjudaga 10., 17., 24.
og 31. maí.
Frá Reykjavíkurflugvelli kl. 8,30.
Til Prestwickflugvallar kl. 14,00.
Þriðjudag 3. og miðvikudaga 11., 18.
og 25. maí.
Til Prestwickflugvallar kl. 14,00.
Til Reykjavikurflugvallar kl. 17,45.
Mánudag 2. og þriðjudaga 10., 17.,
24. og 31. maí.
Frá Reykjavíkurflugvelli kl. 8,30.
Til Northoltflugvallar kl. 17,30.
Þriðjudag 3. og miðvikudaga 11., 18.
og 25. maí.
Frá Northoltflugvelli kl. 10,30.
Til Iteykja\íkurflugvallar kl. 17,45.
Miðvikudag 4. og fimmtudag 19. maí.
Frá Reykjavíkurflugvelli kl. 8,30.
Til Gardermoenflugvallar kl. 15,30.
Fimmtudag 5. og föstudag 20. maí.
Frá Gardermoenflugvelli kl. 12,15.
Til Reykjavíkurflugvallar kl. 17,45.
KAUPMANNAHÖFN: Det Danske Luftfartselskab A/S (DDL/SAS).
„Dagmarhus“, Raadhuspladsen. Sími: Centr. 8800.
PRESTWICK:
LONDON:
OSLÖ:
Scottish Airlines, Ltd., (SAL), Prestwick Air-
port, Ayrshire. Sími Prestwick 7272.
Rritisli European Airways Corporation, (BEA).
Pantanir uppl.: „Dorland Hall“, Lower Regent
St., London, S.W. 1. Sími GERard 9833.
Farþegaafgreiðsla (brottför bifreiða til flugvallar:
Kensington Air Station, 194—200 High St.,
Kensington, London, W. 8. Sími: WEStern 7227.
Det Norske Luftfartselskap A/S, (DNL), 8 Frid-
tjof Nansens Plass. Sími: Oslo 29874.
Allar nánari upplýsingar í skrifstofu vorri, Lækjarg. 4, Rvík,
símar 6608 og 6609.
Flugfélag íslands h.f.