Vikan


Vikan - 02.06.1949, Síða 3

Vikan - 02.06.1949, Síða 3
VTKAN, nr. 22, 1949 3 L istm unasýn ing Unnar Olafsdóttur steinum frá Glerhallarvík, þar á meðal borðbúnaður, hin mesta listasmíði, eftir Leif Kaldal og vonar Vikan, að hægt verði að birta hér myndir af þeim mun- um innan skamms. Þar er og altarisdúkur, saumaður með hvítsaum í efni, sem ofið er af blindu fólki. Svo eru og á sýn- ingunni margskonar skartgripir með inngreyptum steinum úr Glerhallarvík, gerðir af Kjart- ani Ásmundssyni og Leifi Kal- dal. Unnur Ólafsdóttir hefur í mörg ár safnað listmunum, aðal- lega kirkjugripum, bæði íslenzk- um og erlendum og er safn henn- ar orðið hið merkilegasta. Áð- Um 300 hundruð ára gamall tré- kross. ’lökull í Bessastaðakirkju, unninn úr alíslenzku efni, að undanteknum gullvírnum. Steinn úr Glerhallarvík er í krossinum, fóðrið er úr hvítum hör, o*iJ i „Blindra iðn“ i Reykja- vík. Þesci hökull var tekinn í notk- un við vigslu Bessastaðakirkju eftir breytinguna. Tréskurðarmynd af Mariu guðs- móður með barnið. ur hefur hún haft sýningar í Háskólanum, en nú hefur hún fengið meira rúm í Sjómanna- skólanum og getur sýnt þar fleiri muni. Fyrsta verkið, sem frú Unn- ur gerði fyrir kirkju hér á landi, var altarisklæði og hökull í Akraneskirkju, er hún vann eftir beiðni Haraldar útgerðarmanns Böðvarssonar og frú Ingunnar konu hans. Það var árið 1944. Um þetta verk ritaði þá bisk- upinn yfir íslandi og fórust hon- um orð m. a. á þessa leið: „ . . . Kirkja íslands mun aldrei hafa eignazt jafn fögur messuklæði og er það ánægjulegt, hversu vel hefur tekizt bæði um efni í þau og verkið í heild sinni. List frú Unnar er þess eðlis, að mjög væri æskilegt, að hún fengi tæki- færi til þess að vinna sem lengst og mest á þessu sviði og auðga þannig sem flestar kirkjur að fögrum og góðum munum . . Um þetta altarisklæði segir m. a. frú Lalah Jóhannson, kona Vestur-lslendingsins Grettis Jó- hannssonar, en hún var hér á ferð, heimsótti kirkjur og skrif- Framhald af forsíðu. aði um það í enskt blað í Winni- peg, sem við höfum með hönd- um: „ . . . Það sýnir Krist. . . á krossinum og er maður sér það í fyrsta skipti, stendur mað- ur höggdofa af undrun . . . það er svo eðlilegt, að ekki er með góðu móti hægt að trúa öðru en hér sé um að ræða mann- legt hold. Vöðvarnir eru svo haglega gerðir, að lesa má út úr þeim þjáningu og kvöl dauða- stríðsins. Aldrei hef ég séð krossfestingunni lýst svo eðli- lega og átakanlega. Er maður stendur andspænis þessu lista- verki og virðir það fyrir sér í kyrrð kirkjunnar, virðist svo sem mann verki í eigin vöðva og hjarta manns ætlar að bresta af sannri meðaumkun með þján- ingum vors elskaða frelsara. Þetta er ein þeirra sjaldgæfu mynda, sem grópa sig svo nið- ur í hugskot vort, að aldrei mun hún afmást . . .“ Veggteppi, saumað eftir uppdrætti af Valþjófsstaðarhurðinni. Ramminn er skorinn höfðaletri og er það skýr- ing á uppdrættinum, en Unnur Ölafs- dóttir hefur skorið rammann. Vorið er komið! „Bláa stjarnan“ skín ekki síður skært á skemmtanahimni borgarinnar, þótt komið sé fram á sumar. Hún heldur áfram kvöldsýningum sínum í Sjálf- stæðishúsinu á miðvikudögum og sunnudögum og hefur nú komið með nýja efnisskrá, sem ber hið fallega heildarheiti „Vorið er komið!“ Þetta efni er yfirleitt allt skemmtilegt og sumt meira að segja bráðfyndið og meðferðin öll á atriðunum þannig, að hún kemur manni í gott skap og heldur manni í góðu skapi allan tímann. Það eru heldur ekki neinar klaufa- hendur, sem þar hafa ráðið efni Framhald á bls. 7. Soffía Karlsdóttir í gamanleiknum „Nú birtir í býlunum lágu“. Soffía stóð sig ágætlega, eins og við mátti búast af henni í þessu hlutverki. (Ljósm.: Vignir). Vorið — dans (frá vinstri): Sjöfn Hafliðadóttir, Guðný Pétursdóttir. Irmy Toft og Björg Bjarnadóttir. (Ljósm.: Vignir).

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.