Vikan - 02.06.1949, Síða 7
YIKAN, nr. 22, 1949
7
Vorið er komið!
Framhald, af bls. 3.
og halda í taumana. Leikstjóri
er Indriði Waage, sem þjóð-
kunnur er fyrir smekkvísi sína
og leikstjórnarhæfileika. Har-
aldur Á. Sigurðsson er kynnir
og þarf ekki annað en sjá hann
bregða fyrir á sviðinu, til þess
að brúnin á manni léttist. Alfred
Andrésson er svo vinsæll leik-
ari og gamanvísnasöngvari, að
það er bókstaflega „hættulegt“
fyrir hann að láta sjá sig á svið-
inu, því að illmögulegt er fyrir
Valdimar Helgason og Auróra
Halldórsdóttir í g-amanleiknum „Nú
birtir í býlunum lágu“, sem þótti hinn
skemmtilegasti (Ljósm.: Vignir).
hann að losna þaðan í hvert
sinn vegna fagnaðarláta fólks-
ins! Og bakvið allt saman eða
yfir vötnunum svífur svo skáld-
ið góða, sem af smekkvísi hef-
ur farið höndum um efni. Þeg-
ar slíkir menn eru samstilltir og
hafa fengið mikla reynslu í
starfi sínu er ekki að furða að
vel takist.
Þeir félagar halda enn áfram
1 biðsal lífsins, gamanleikur (frá
vinstri): Baldur Guömundsson og
Jón Gíslason. Þátturinn var smellinn,
einkum þó endirinn (Ljósm.: Vignir).
því ágæta starfi að safna undir
sitt þak nýjum kröftum og eyk-
ur það auðvitað f jölbreytni sýn-
inganna, auk þess sem það er
sjálfsögð „endurnýjun lífdag-
anna“.
Atriðin í „Vorið er komið!“
eru þessi: Forspjall (Haraldur
Á. Sigurðsson), Vorið — dans
(Björg Bjarnadóttir, Guðný
Pétursdóttir, Yrma Toft, Sjöfn
Hafliðadóttir). Um daginn og
veginn, gamanþáttur, bráðfynd-
inn og skemmtilega meðfarinn
(Alfred Andrésson og Haraldur
Á. Sigurðsson). Danslagasöng-
ur (Haukur Morthens). Nú
birtir í býlunum lágu, gaman-
leikur, sem kafnar ekki undir
nafni (Auróra Halldórsdóttir,
Soffía Karlsdóttir, Jón Gíslason
og Valdimar Helgason). Gam-
anvísnasöngur (Alfred Andrés-
son), sem vekur mikla kátínu.
Merkir samtíðarmenn, eftir-
hermuþáttur (Karl Guðmunds-
son). Mexikanskur dans, sumu
lipru og skemmtilegu dansmeyj-
arnar og í Vordansinum og
Haukur Morthens „syngur und-
ir“ til „bragðbætis“. Rússnesk-
ur söngur og dans (Anna Zem-
anek), skemmtilegt atriði. 1
biðsal lífsins, gamanleikur
Llexikanskur dans (frá vinstri): Yrma Toft, Björg- Bjarnadóttir, Hauk-
ur Morthens, söngvari, Sjöfn Hafliðadóttir, GuSný Pétursdóttir.
(Ljósm.: Vignir).
(Baldur Guðmundsson, Harald-
ur Adolfsson og Jón Gíslason),
prýðileg lausn í endanum!
Spæ.nskur dans Guðný Péturs-
dóttir og Haraldur Adolfsson).
Bætt rúm, gamanþáttur (Þóra
Borg Einarsson og Valdimar
Helgason). Harmonikuleikur
(Bragi Hlíðberg). Hljómsveitar-
stjóri er Aage Lorange, en Sif
Þórs og Sigríður Ármann hafa
samið og æft dansana, nema
hinn rússneska.
Slíkar skemmtanir eru prýði-
legar, hvort sem er vetur, sum-
ar, vor eða haust.
Bragi Hlíðberg harmonikuleikari.
(Ljósm.: Vignir).
Veiztu þetta — ?
Mynd t. h.: Meðal frumstœðra þjóða eru til menn, sem reyna að
særa fram regn úr skýjunum. Þeir sjúga skeljabrot og hrækja síðan
út í loftið og segja, að þá muni rigna. Mynd að ofan t. v.: Plugfiskar
geta flogið nær 300 metra spöl yfir sjávarfletinum. Þeir „fljúga" stund-
um upp á skip. Mynd að neðan t. v.: 1 New York er meira um demanta-
slípun en annars staðar í heiminum.