Vikan - 02.06.1949, Síða 8
8
VIKAN, nr. 22, 1949
Heima er bezt!
Teikning eftir George McManm,
Herra Alvegbit: Nei, Gissur. Ég ætla að vera
heima í kvöld, það er ekkert jafnindælt og sitja
þar í góðum stól með alla f jölskylduna i kringum
sig.
Gissur: Ef til vill hefur herra Alvegbit rétt
fyrir sér. Ég ætla líka að vera heima í kvöld.
Eg hef ekki verið nógu skyldurækinn við
mitt fólk. Mikið held ég þau verði glöð og
hissa.
Dóttirin: Góða nótt, pabbi. Eg ætla á bridgefund
og svo ætla ég að biðja þig að demba ekki öllu um
koll, þegar þú kemur í nótt.
Gissur: Rasmina, ég hélt---—
Rasmína: Fástu ekki um það, ég er alveg að
sálast. Ég á að syngja i kvöld í veizlu hjá önnu
Páls.
Gissur: Hvað fáum við að borða í kvöld, Betúel?
Betúel: Eg á frí í kvöld og ætla að borða úti.
Ég veit ekki, hvað húsbóndinn fær í gogginn.
Eldabuskan: Góða nótt, Gissur. Ég ætla ekki að
elda neitt í kvöld, þar sem frú Rasmína borðar
úti. f>að er til soðin sild í ísskápnum handa yður.
F'.pr. IV-íy, Kin£ F.n.u,ir-.-i Symlirntn, Inc.. World rrnlitn rcscrvcd.
Gissur: Langar þig ekki út líka, kisa ?
Kisa: Mjá — mjá — mjá!
Gissur: Þú ferð þína leið og ég mína. Ég ætla
að heimsækja herra Alvegbit og sjá, hvernig hann
fer að.
Gissur: Sælar frú Alvegbit. Ég var einmitt á
leiðinni til þess að hitta manninn yðar heima hjá
sér.
Frú Alvegbit: Það er til einskis. Hann er ekki
heima. Hann þóttist ætla út með yður og nú er ég
að leita að honum. Hann er aldrei heima -------