Vikan - 06.07.1950, Side 6
6
VIKAN, nr. 26, 1950
hlut. Hann á heima í tveim herbergjum á Sir-
lowe Court og hefur aðeins einn karlmann sér til
aðstoðar. Hann ræktar nægilega mikið grænmeti
fyrir sjálfan sig og lifir að öllu leyti á þessum pen-
ingum, sem hann fékk fyrir búgarðinn sinn í
Ástralíu, og á þeim litlu tekjum, sem hann hefur
af ættaróðalinu. En auðvitað vonar hann stöðugt
að hann fái einn góðan veðurdag peningana eftir
frænda sinn. Fólkið hér í nágrenninu kærir sig
eakert um að umgangast hann. 1 fyrstunni var
það að vísu nógu vingjarnlegt, en það var af
einskærri forvitni. En nú vill enginn heimsækja
hann. Fólkinu geðjast ekki að lifnaðarháttum
hans, því finnst hann vera fráhrindandi og dulur
— „mjög bitur maður,“ svo að ég noti orð frú
Twitchell. En mér lízt samt sem áður vel á
hann.“
„Já,“ viðurkenndi Alison. „Mér leizt einnig
vel á hann. Hann leit einnig út fyrir að vera vel
upp alinn og svo er hann ákaflega sviphreinn.“
„Hann fékk líka gott uppeldi. Hann var í skóla
í. Sydney. Það sá frændi hans um. /Hann hefði
líka orðið einkaerfingi gamla mannsins, ef þessi
stúlka hefði ekki verið til. Hún býr ásamt móður
sinni og yngri systur 1 stóru húsi. Ættarnafn
þeirra er Grange. Eldri systirin, Gwen, giftist
fyrir tveim árum, og hún á son, sem var uppáhald
gamla mannsins. Það voru þau, sem fengu meiri-
hluta peninganna. En Esmé, yngri systirin, fékk
einnig þó dálítið. Hún er mjög reið vegna þess,
að „ástralski bóndakurfurinn" erfði óðalið og tit-
ilinn. — Ég hygg, að hún hafi vonað, að hún
yrði eiginkona einkaerfingja Bowisdale lávarðar.
Hún og móðir hennar hafa æst alla í bænum upp
á móti Larry."
„Ætli hann gefist ekki upp á þessu öllu saman
og fari aftur til Ástralíu," sagði Alison. „Það
hlýtur að vera mjög óþægilegt að búa hér undir
þessum kringumstæðum."
„Ég býst tæplega við því. Frú Twitchell segir,
að hann sé mjög ákveðinn."
Á þessu augnabliki kom Frank til baka og Ali-
son fór með honum út í garðinn. En við kvöld-
verðarborðið bað hún Kitty um að segja sér fleira
um umræddasta fólkið í sveitinni.
„Án efa er lafði Tamford áhrifamesta mann-
eskjan. Hún er ættuð frá Bandaríkjunum og er
gift baróni, sem býr á herragarði Primsworth.
Hún er mjög vinsæl og þykir sjálfsögð í öllum
meiri háttar veizlum. Svo er auðvitað regin
firn af uppgjafahermönnum eins og alls stað-
ar. Bridshaw ofursti býr hér hjá miðaldra syst-
ur sinni í Chestnuts, og svo er Kydwyn herfor-
ingi og kona hans og tvær dætur búa í Pine-
leigh. Svo er það auðvitað séra Blanworth og
frú. Hann er mjög vinsæll, en hún ekki. En við
komum Hklega ekki til með að umgangast þau,
því að í fyrsta lagi erum við fátæk, og í öðru
lagi höfum við ekki vinnustúlku. Ég býst við,
að þau sýni okkur bara megna fyrirlitningu.
Það er það versta við að búa í sveit."
„Hver býr í stóra húsinu, rétt hjá járnbraut-
arstöðinni?"
„Ó, ég hafði alveg gleymt honum. Býlið heit-
ir „Lappins Holt“, og Piers Lockingham á það.
Hann er rithöfundur og landkönnuður og elskar
einsetulíf."
„Er hann giftur?" spurði Alison.
„Nei, glerharður piparsveinn, sem kýs það
helzt að vera í kyrrð og ró. Eftir því, sem frú
Twitchell segir, er frú Fansell, sem er „glaða
ekkjan" hér um slóðir, stöðugt á höttunum eft-
ir honum, en hún hefur enga von. „Lappins Holt“
er yndisleg eign með um það bil þúsund hektara
landi. Meiri hlutinn er skógur, sem ég hef hugs-
að mér að ganga um, þó að hann sé einka eign.
Það er reyndar allar jarðir hér um slóðir, og það
finnst mér ekki réttlátt. Mér, sem finnst svo
gaman að ganga mér til skemmtunar, hvers-
vegna á ég alltaf að vera á rykugum vegin-
um?“
„Þú verður samt að vera varkár, þvi annars
geturðu' átt von á því, að þú fáir einn góðan
veðurdag skriflega ákæru og miklar sektir. Sum-
ir þessara óðalseiganda og höfðingja eru mestu
fúlmenni,“ sagði Frank aðvarandi.
Kittý leit á hann, án þess að segja orð. „Ég
passa mig áreiðanlega," sagði hún síðan.
„Við skulum fara í kirkju á morgun, og sjá
eitthvað af þessum furðufuglum," sagði Álison.
Daginn eftir fóru Kitty, Alison og Frank til
kirkju. Móðirin hafði of mikið að gera, til þess að
hún gæti komið með. Joan var slæm í höfðinu,.
og varð að liggja fyrir, og Kosa Veronica vildt
heldur ganga um og skoða nágrennið, en að
hlusta á guðsorð. Það hefði getað verið of hættu-
legt að taka yngstu börnin með, þó að Willie
hefði verið þægari en venjulega, eftir flenging-
una hjá Larry Kestonville. Hann hafði meira að
segja verið svo þægur, að móðir hans var al-
arlega hrædd um, að hann væri lasinn.
Litla sveitakirkjan var nýtizku bygging. Að
utan var hún ekki mjög skrautleg, en glugga-
rúðurnar, sem lafði Tamford hafði gefið til
minningar um eina son sinn, sem hafði dáið
af slysförum fyrir nokkrum árum, voru mislit-
ar. Systurnar og Frank urðu þess brátt vör, að
fólk starði alveg ófeimið á þau, þegar þau höfðu
sezt, og Alison varð fegin, að hún var vel tiL
fara. Alison elskaði falleg föt, og háði oft, sér-
staklega á vorin, harða baráttu við þennan eigin-
leika sinn, því hún varð að spara til þess að
geta einhverntíma stofnað heimili. 1 þetta skipti
hafði hún þó látið undan girnd sinni, og hún
hafði fengið sér gráa, klæðskerasaumaða tweed-
dragt; Kitty fannst allt í einu hún vera aum-
kunarverð í brúnu, snjáðu kápunni sinni. Hún
hafði gefið Alison peningana fyrir dragtinni. En
hve það var líkt Alison, að vera sú fyrsta til.
þess að færa sér arfinn í nyt.
Þau komu það snemma, að þau gátu athugað
fólkið, sem kom. Það var ekki erfitt að gera
sér grein fyrir hver var Bridshaw ofursti, því
hann hafði mjög hermannlegan svip. Þar að auki
var hann með systur sinni. Þær urðu ásáttar um
að útitekinn náungi með fjarrænt augnaráð hlyti
að vera Kydwyn herforingi. Kona hans var með
honum. Síðan kom velklædd, miðaldra kona í
fylgd með ungri, fallegri stúlku. Þær gátu sér
þess til, að þetta væri lafði Tamford og dóttir
hennar, Evadne Tamford. Þrátt fyrir hinar ýtar-
legu lýsingar frú Twitchell gátu þær ekki áttað
sig á öllum, sem komu. Hár maður í gráum,
velsaumuðum fötum kom síðastur, áður en guð-
þjónustan byrjaði. Hann settist á auðan stól
þrem bekkjum framar en þær.
„Hver skyldi þetta nú vera?“ sögðu Kitty
og Alison báðar í einu.
Teikning eftir
George McManus.
Blessað
barnið!
Kunninginn: Ó, það var gott, að þú leizt inn. Ég er í
standandi vandræðum með son minn, ég get ómögulega
fengið hann til að hætta að gráta.
Pabbinn: Láttu mig taka við honum!
Pabbinn: Sjáðu! Ég kann lagið á börnunum! Það er sérgáfa.
Það er eitthvað i persónuleikanum, sem veldur því!
Kunninginn: Það er dásamlegt að hafa svona lag á börnum!
Drengurinn er núna í sjöunda himni!
Kunninginn: Blessaður og þakka þér kær-
lega fyrir!
Pabbinn: Láttu mig bara vita, ef hann græt-
ur mikið, ég lít þá inn aftur!
Pabbinn: Hvað er að litla vininum?
Mamman: Hann hefur grátið í allan dag, ég ræð
ekkert við hann.
Pabbinn: Hættu nú, Lillí minn. Klukkan er
orðin þrjú. Eitthvað verður pabbi að fá að
sofa og mamma er líka úrvinda af svefnleysi!