Vikan - 04.07.2000, Page 60
pennasaga
Villtur í sundi
Síðastliðið sumar vann ég
óhemju mikið og var því
orðinn mjög þreyttur.
Ég ákvað að skreppa í sund
eftir vinnu einn föstudag-
inn til að liggja í pottinum
og reyna að hressa mig við
fyrir kvennafar seinna um
kvöldið. Sko, annað hvort
gerir maður hlutina ____JT*'
100% eða ekki!
En ég vissi
ekki þá hvað
mundi bíða mín í
sundlauginni.
Þegar ég var
búinn að liggjaí
pottinum í nær l jjv
klukkustund,
orðinn mátu- ^ f* (íSS
lega dasaður,
ákvað ég að tS ^ Q .
fara að koma 'VV ^ ''i
mér heim þar sem
að ég var alveg við
það að sofna. Eins og
venjulega fór ég inn í búnings-
klefa og fór auðvitað í sturtu.
Ég reif af mér sundskýluna og
makaði sápu í hárið. Umm,
hvílíkur ilmur. Ef stelpurnar
mvndu sko ekki
„fíla“
þessa
eplalykt
þá vant-
aði nú
eitthvað
meira en
lítið í þær.
Það leið
ekki á löngu
þar til að
hárið á
mér var
allt löðr-
andi í
sápu og á
því
augna-
bliki
heyrði ég
hlátur. Mér brá
svolítið þar sem
Hii'
Neyðarlegasta
mér þótti þessi hlátur frekar
kvenlegur og þegar ég opnaði
augun stóðu þarna beint fyr-
ir framan mig tvær stelpur á
aldur við mig og þær voru
ekki beint fýlulegar að sjá!
Því miður, mín vegna,
þekkti ég aðra þeirra. Skóla-
systir mín. „Bömmer“!
Á þessu augnabliki áttaði
ég mig á því að ég var í
kvennaklefanum. Það næsta
sem ég gerði var að grípa
sundskýluna mína eins hratt
og ég gat og reyna að komast
í hana. Það skrítna er að þetta
var eina skiptið sem ég hef átt
í einhverju basli með að kom-
ast í hana. Kannski var það
ekki svo skrýtið því ég var
með aðra höndina á djásnun-
um og hina á skýlunni.
Þegar skýlan var komin
upp að hnjám eða svo reyndi
ég að hlaupa út úr
klefanum en með
þeim afleiðingunum
SendU Okkur skemmtilega sögu úr
lífi þínu, hún má vera 1 vélrituð síða, í
léttum dúr og á að fjalla um eitthvert
minnisstætt atvik þar sem þú lentir í
vanda.
Við munum birta skemmtilegustu
sögurnar og þeir sem fá sögur sínar
birtar hljóta verðlaun sem eru ekki af
verri endanum; Sheaffer Prelude sjálf-
blekung.
Sheafferpennar eru gæðagripú
(eins og sjá má hér annars staðar á síð-
unni!) og Prelude línan er sú vin-
sælasta urn þessar mundir. Prelude
sjálfblekungurinn er einmitt rétti
penninn fyrir nútímafólk, hann er
hannaður sem sjálf-
blekungur og hægt er
að draga upp í hann
blek úr blekbyttu, en
einnig má nota blekfyll-
ingu ef það hentar eig-
andanum betur. Á Prelu-
depennanum er stáloddur,
húðaður með 23 karata
gulli og hann er sérstaklega
hannaður til að falla vel í
hendi.
Skrifaðu minninguna af
neyðarlegasta atviki lífs þíns og
sendu okkur hana. Við birtum
sögurnar undir dulnefni ef óskað
er. Heimilisfang Vikunnar er :
Vikan, Seljavegi 2,121 Reykjavík.
Hver veit nema þú eignist merktan
Sheaffer penna!
að ég datt og minnstu munaði
að ég rotaði mig á flísalögð-
um veggnum. Á endanum
komst ég út en mætti svo
stelpunum fyrir utan þegar ég
settist inn í bílinn minn. Þær
veifuðu til mín og brostu blíð-
lega þegar ég bakkaði út úr
stæðinu.
Hvað gat ég eiginlega gert
annað en að veifa á móti? Og
skólaballið um kvöldið ...
Enn í dag er ég að velta því
fyrir mér af hverju stelpurn-
ar voru eiginlega að hlæja.
Það má geta þess, svona
rétt til gamans, að ég er í sam-
bandi við aðra þeirra í dag en
hún vill ekki enn segja mér
hvað þeim fannst svona fynd-
ið!
Og vel að merkja, djásnin
mín standa sko fyrir sínu!
...eða þannig.
60 Vikan
Aðsend saga:
Höfundurinn, Emil,
fær sendan glæsilegan
merktan Sheaffer
penna frá Andvara.
ATH!: Munið að
láta fullt nafn og
símanúmer fylgja.