Menntamál - 01.03.1926, Síða 7
MENTAMÁL
«5
geri eigi öSrum rangt til. Jeg skal forðast hleypidóma, svo að
jeg viti heldur rjett en hyggi rangt.
2. jeg skal fylgja sannleikanum, hvort sem mjer fellur Iret-
ur eða ver, og láta eigi ginnast til aS ljúga mjer í vil eða vin-
unr mínum. Eigi skal jeg heldur dylja sannleikann fyrir þeim,
sem hafa rjett til aö vita hann.
3. Jeg vil leita sannana, og gæta nákvæmni i aS taka rjett
eftir því, sem jeg sje eða lieyri. Jeg skal læra aS hugsa, svo að
jeg finni ný sannindi.
IX. Lög um verklag.
Góður Islendingur reynir að gera þaS sem rjett er á rjettan
hátt. Heill ættjarðar vorrar hvílir á þeim, sem lært hafa að
vinría rjett þau störf, er til menningar horfa.
1. Jeg skal afla mjer svo góðrar mentunar sem jeg get, til
undirbúnings undir fullorðinsárin og æfistarf mitt, og vinna
að umbótum eftir megni.
2. Jeg skal leggja alúS viS verk min og láta mjer ekki lyrída
aS leysa þau þolanlega af hendi eöa vítalaust. Jeg skal gera
mjer að vana, að vinna vel og kappsamlega. Mistök og- handa-
skol auka fyrirhöfn, valda slysum og spilla árangri.
3. Jeg skal leysa hvert verk rjett af hendi með rjettri að-
ferð, svo að þaS sé bæði fallegt og í fullu gildi, eins fyrir því,
])ó aS enginrí sjái eSa hrósi mjer fyrir. En '])egar jeg hefi gert
svo vel sem jeg gat, þá skal jeg eigi öfunda aSra, ])ó aS þeim
hafi tekist betur eSa fengið verk sitt betur borgaS. Öfund spill-
ir bæði vinnu og vinnumanni.
X. Lög um samvinnu.
GóSir Islendingar unna vinsamlegri samvinnu. Ekki byggir
einn maSur brú yfir á nje leggur langan veg. Til ])ess að jeg
fái l)rauð hafa aðrir menn plægt og sáð og skoriS upp korn,
en aðrir smíöað plóga og þreskivélar, o. s. frv. Því betur sem
vjer læ-rum að vinna saman, því meir mun land vort blómgast
og öllum líða betur.