Menntamál - 01.08.1927, Side 11
MENTAMÁL
107
manneskjur. Ekki af því, að þær sjeu vondar; þvert á móti
eru þær oft gæðin sjálf. En einmitt þær hjartabestu eru oft
verstar viðfangs. Það vantar allar taugar í þær, allan vilja
og alla dáð. Margar vita í rauninni engin deili ills og góðs
í neinu því, sem siðferði heitir eða ráðvendni. Þær geta logið
hverju orði, nærri því án þess að vita það eða skilja. Þær
geta verið einlægar og velviljaðar á líðandi stund, en vantar
alla ábyrgðarvitund. Þær eru sörnu skepnurnar, óðar en hend-
inni er af þeim slept.
Eins og jeg hefi áður sagt, er venjulega um þ3 vandræða-
harna stúlkur, og þeirra mein er nærri eingöngu lauslæti, sem
á rót sina í afskaplegu istöðuleysi og hviklyndi, en ekki í
ástríðum. Alt sálarlíf þeirra er eins og eitt kviksyndi.
Miklu viðsjárverðara er að korna þessum stúlkum í vistir
heldur en strákunum. Verða ]rví tiltölulega fleiri þeirra í hæl-
um. Er ekki annað fangaráð en aö halda þeim til hússtarfa
og gæta strangrar reglu um lifnaðarháttu þeirra. Ekki er um
það að ræða, að beita þær neinni hörku eða refsingum, því
að afbrot þeirra eru sjaldnast þess eðlis. — Margar af stúlk-
um þessum batna þó skyndilega, er ]>ær nálgast fullorðins-
árin; verða margar þeirra góðar konur og húsmæður, erida
verður þeim það að jafnaði lielzt til bjargar, ef einhver mað-
ur festir við þær varanlega trygð og þær við hann.
Jeg er að tala um vandræðabörn, og skal því tala um þau
eingöngu, þó að í mjög mörgu gildi liið sama um fulltíða
vandræðamenn.
Eitt er það atriði, sem vel sk.yldi gæta í allri meðferð vand-
ræðabarna, og það er það, að þau finni sem minst til þess,
aö þau sjeu útilokuö eða höfð sjer, að þau sjeu öðruvísi og
miklu lakari en annað fólk. Þessi tilfinning ein getur orðið
ólæknandi mein. Brennimark miðaldarjettvísinnar á enni þjófs-
ins, hefir vafalaust forhert marga unga sál, sem annars hefði
átt sjer viðreisnarvon. Enn er annað, og það er hópsmitunin.
iínginn má vita það, hve viðsjárvert það getur verið, að safna
i einn stað mörgum þeim, sem hafa háskasamlega andlega