Menntamál - 01.01.1928, Blaðsíða 6
'JO
MENTAMÁL
mestu máli, hvernig þaS er af hendi leyst. AöalatriðiS er upp-
eldi til almennrar mentunar. Námsgreinirnar eru lei'öir a'S
því takmarki, en ekki takmarkið sjálft. Þegar börnin byrja
skólagöngu sína, hafa þau dálitla rödd, næmt eyra og kunna
ef til vill nokkur lög, en aö þau kunni a'ð syngja, skyldi eng-
inn láta sjer detta í hug, og að ekki þurfi annaö en aö birgja
þau upp meö sönglögum í eitt skifti fyrir öll. Sömuleiöis er
þa'ö álíka fjarstæða, aö þau, sem ekki eru reiðubúin til að
láta rödd og söngnæmi í ljós, þurfi að vanta þá hæfileika, þó
aö til sjeu undantekningar.
Þegar bamiö kemur í skólann, kann þaö ólíkt meira í ís-
lenzku en i söng. Samt er byrjaö aö kenna því, eins og þaö
kunni ekki neitt. Því eru kend hljóö og tákn lesmálsins, látiö
gera grein fyrir efni, bæöi munnlega og skriflega, segja frá
og lesa á bók. Því er kent, eins lengi og þaö er í skólanum.
Þannig er þaö vitanlega i öllum námsgreinum. Uppeldisfræöi-
legum reglum er fylgt, eins og hver hefir bezt vit á, og þaö
vita allir aö gefur beztan árangur, hinn hægi vaxtarþroski,
sem engu gleymir og ekkert vanrækir.
Ritæfingar, reikningsdæmi, leikfimisæfingar og lesælfingar
o. s. frv. alt eru þetta að eins verkefni til að þroska hæfileika,
til aö byggja upp líkamlega og andlega mentun neniandans.
A 1 m e n n m e n t u n og 1 e i k n i, fengin meö skynsam-
legum vinnubrögðum, er takmarkið, sem allir hinir mörgu
þættir fræöslunnar stefna aö. Þaö er jjessi skynsamlega og
viðurkenda uppeldisregla, sem einnig verður aö heita í þeirri
námsgrein, sem heitir söngur.
Hvaö er þá markmið söngkenslu? Takmarkiö er þaö sama
og í öörum námsgreinum, börnin veröa áð fá undirstöðuatriði
söngmentunar — þekkingu og leikni, sem samtíöin krefur
af mentuðum l^orgara jjjóðfjelagsins, geta tekið þátt í aljjýöu-
og kirkjusöng og notið þess bezta og göfugasta i söng og
„musik". Þetta markmiö er í samræmi við aðrar námsgreinir
og tilgang barnaskólans í heild. Þaö eru nemendurnir, sem
eru aöalatriöiö í kenslunni. Kennarinn má hvorki vera upp-