Menntamál - 01.07.1928, Side 3

Menntamál - 01.07.1928, Side 3
MENTAMAL ÚTGEFANDi: ÁSGEIR ÁSGEIRSSON IV. ÁR Júlí - Ágúst 19-8 5. BLAÐ Myndun fræðslusjóða í sveitum. (Björn Gu'Önason, ungur bóndi á Stóra-Sandfelli í Skriðdal, ritar hjer merkilega grein um nýmæli i skólamálum, myndun fræðslusjóða, sem liann hefir sjálfur gerst frumkvöðull að í sinni sveit. En að mörgu fleiru er greinin athyglisverð, og ber vott um gjörhygli höfundar og skilning á því, hverja þýðingu mentunarskilyrðin hafa fyrir viðgang sveitanna. — H. Hjv.). SíÖan er landið Itygðist, hefir þjóÖin lifað mest í sveitunum á landbúnaÖi. Um tíma náði hún þar svo miklum þroska, að þær bókmentir, sem þá urðu til, eru taldar með þeim beztu, sem heimurinn á. Þrátt fyrir margra alda erfiðleika, sem þjóðin hefir átt við að búa í seinni tíð, halda góðir menn því fram, að dýrmætasta eign hennar, hæfileikarnir til andlegs og líkam- legs þroska, hafi varðveizt óskemdir eða jafnvel aukist. Það, að sveitirnar Itafa gctað geymt þennan dýrmæta arf feðranna, jafn lítið og fyrir þær hefir verið gert á liðnum öldum, bendir til þess, hvaða þroska þær hafi að bjóða, með aukinni rælct og bættum skilyrðum. Á seinni árum hefir verið gerbreyting á lifnaðarháttum landsmanna. Síðan að Ameríkuferðirnar hættu, hefir fólkið flutt úr sveitunum til kaupstaðanna, og nú er svo komið, að aðeins rúm 40% landsmanna lifa í sveitunum, á land- búnaði. Það er ekki óeðlilegt, þó að fólkið hafi flutt úr sveit- unum til kaupstaðanna, því að þeir virðast hafa ýmis þægindi að hjóða, fram yfir þær, sem menn sækjast einna mest eftir. Kaupgjald er þar að jafnaði hærra, húsakynni yfirleitt betri, skemtanir meiri og fjölbreyttari. En það, sem jeg hygg, að

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.