Menntamál - 01.07.1928, Qupperneq 10
72
MENTAMÁL
Fræðslumál á þingi 1928.
Þa'S heíÖi þótt ótrúlegt fyrir nokkruin árum, þegar við sjálft
lá, þing eftir þing, að fræðslulögin væri numin úr gildi, að þessi
hin sömu fræ'Öslulög gengi fram, stórum hætt, fám árum síðar.
En svo varð 1926. Og lögin gengu þá fram mótstöðulaust i
rauninni. En bak við þann atburð liggur hörð barátta, og mun
síðar tækifæri til að rifja upp þá sögu.
Enn meiri fyrirsögn hefði það þótt á þessúm árum, að á einu
og sama þingi gengi fram margvisleg ákvæði um bættan hag
og aukin rjettindi kennarastjettarinnar, eða að verulegt tillit væri
tekið til óska hennar og tillagna um fræðslumál.
En svo var á siðasta þingi. Og gamla mótstaðan og óvildin ljet
varla á sjer bæra. Þrjár höfuðástæður liggja að þessum um-
skiftum. Það fyrst, að menn eru nú ekki eins bölsýnir og fyr á
fjárhagslega afkomu þjóðarinnar; það annað, að þingiS snýst nú
öðruvísi við þessum málum. En um þriðju ástæðuna er mest vert
fyrir sjálfa kennarastjettina, en hún er sú, að stjettin fer vaxandi
í áliti; hún heíir unnið sjer það traust með starfi sínu, að
menn leyfa sjer síður en áður að níða niður verk hennar og
sóma. Þeir menn, sem það hafa gert, finna nú betur en áður,
að ekki mun tjá að spyrna gegn broddunum. —
Utanfararstyrkur handa barnakennurum var fyrst upp tekinn
1915, og var tvö árin fyrstu veittur tilgreindum mönnum. Síðan
var um mörg ár veitt ákveðin fjárhæð i fjárlögum í þessu skyni,
sem fræðslumálastjórnin ráðstafaði handa einum manni í senn.
— Þessi styrkur var af tekinn á sparnaðarárunum, sem vænta
mátti, og stóð svo lengi. 1927 var á ný tilgreindum manni veitt-
ur nokkur styrkur (1600 kr.), og mátti þá vænta, að hirin gamli
styrkur fengist ef til vill tekinn upp aftur, áður langt liði. En
þrásinnis var búið að fella hann.
í fjárlagafrv. því, sem núverandi stjórn lagði fyrir þing,
tók hún upp 3000 k r. utanfararstyrk handa Ijarnakenn-