Menntamál - 01.07.1928, Page 12

Menntamál - 01.07.1928, Page 12
74 MÉNTAMAL starf fyrir ungmennaskólana eins og til er tekiö i 2. gr., a'5 því er snertir barnaskóla landsins. 4. gr. Fræöslumálanefndir starfa launalaust, en fá endur- greidd nauösynleg útgjöld til síma, brjefaskrifta og aöstoöar. 5. gr. Nú brýtur skóli í verulegum atriöum í bága við fyrirskipanir þær, sem gefnar eru eftir lögum þessum, og skal þá landsstjórninni skylt að halda eftir styrk eða launa- greiðslum til hans, þar til úr er bætt. 6. gr. Með lögum þessum eru úr gildi numin eldri lög og fyrirmæli, er fara í bága við þessi lög. 7. gr. Lög þess öðlast gildi þegar i stað. Öll undanfarin ár hefir á kennaraþingum verið hreyft þeim málinn, að meira og mirma leyti, Sem þessi lög fjalla um. F.ink- um hefir hvað eftir annað verið skorað á fræðslumálastjórnina að koma á sameiginlegum skriflegum prófum, en í öðru lagi að koma skipulagi á útgáfu kenslubóka og eftirliti með vöndun þeirra; loks hafa hin seinni ár komið fram eindregnar raddir um það, að samræma kenslu í barnaskólum landsins, eftir því sem föng eru á, eða setja námsskrá fyrir skólana. Hinn 19. felrr. 1923 skrifaði stjórn kennarasambandsins langt erindi til kenslumálaráðuneytisins, þar sem hún leggur það til, að þá þegar verði byrjað á að undirbúa skrifleg barnapróf um land alt. Síðan hefir það mál verið á döfinni, og mikið verið rætt á kennaraþingum. Ýmsir ytri erfiðleikar eru á þessu, einna mest það, hve mislangur námstíminn er i skólunum. Sumir far- skólar hætta á miðjum vetri, en föstu skólarnir standa fram í maí. Um kenslubækurnar er það að segja, að mörg atriði þess máls eru glögg og einföld; en skortur er mikill á góðum bók- um, svo að vandræði eru í sumum greinum, og tekur sinn tíma að bæta úr því. En lang-vandasamasta verkið verður sjálf námsskráin. Bæði er það, liversu hjer er í mörg horn að líta, hve ólíkir og marg- víslegir skólarnir eru og kensluhættirnir margir. Svo er hitt.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.