Menntamál - 01.10.1931, Síða 3
MENNTAMAL
ÚTGEFANDl: ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
V. ÁR Október 1931. 5. BLAÐ
Ensk skólamál.
(Frh.)
Bókfræðsla. NnkkuÖ er það misrnunandi og komiÖ undir
næini barnsins, Jiroska ])ess og aldri, hve nær þaÖ fer aÖ lesa
á bók. En bókin er notuÖ svo fljótt sem unnt er. Barnabækur
Englcndinga eru margar ágætar. Letrið cr stórt, fallegt og skýrt,
myndir. ágætar og efni valið. Eiga Englendingar mikið úrval
lesbóka. Er efni þeirra margvislegt, æfintýri, sögur, kvæði, nátt-
úrufræði, landafræði og þættir úr mannkynssögu. Frásögnin er
oft svo prýðileg, að börnin fýsir mjög að lesa. Gera þau það
sem þau geta, til ])ess að skilja efnið. Sagnablær og æfintýra-
ljómi fegrar eíni og frásögn. Myndir eru margar og góðar í
bókum þessum. Þráfaldlega, eyða kennarar miklum tima í að
láta börnin athuga myndirnar og læra af þeim. 1 Ivert barn hefir
eina bók. Engar bækur þurfa börnin að kaupa. l'tíkið leggur
skólunum til allar bækur i öllum greinum. Þegar börnin eru
læs orðin,. byrjar venjulegt fræðanám. Lesgreinir eru ])essar:
enska, kristinfræði, reikningur, saga Englendinga, landafræði.
náttúrufræði og mannkynssaga. Síðar er námsgreinum fjölgað.
Eins og áður er sagt, eru kennslustundir smábarnanna aðeins
tuttugu mínútur. Miðdeildirnar, sjö til ellefu ára börnin, sitja
ekki lengur við nám í senn en þrjátíu mínútur. Kennslustundir
í efstu deildum skólanna eru fjörutíu til fjörutiu og fimm mín-
útur.
Englendingar leggja mikla stund á að kenna börnum sínum
móðurmáliÖ. Er all erfitt að kenna þeim sæmilega enska tungu.