Menntamál - 01.10.1931, Síða 5
MENNTAMÁL
67
ur hundruð. En oft voru þrjú skólahús íi sönni lóÖ, eÖa í grend
hvert við annaÖ. Voru þá smáhörn i einu húsinu, telpur í
ööru og drengir í hinu þriðja.
Margir Englendingar eru þeirrar skoðunar, að hentugra sé
að hafa drengi sér og telpur sér, þegar hörnin stálpast. Telja
þeir, að annað eigi við drengi en telpur. Og þykir þeim, að
reynslan hafi staðfest, að telpum hæfi aðrir leikir en drengj-
um, önnur umgengni, önnur verkefni, önnur aðbúð og svo
framvegis. Þeir líta svo á, að drengjum og telpum l)íði ger-
ólíkt hlutverk í þjóðfélaginu, er fullorðinsárin koma. Aðrir
hyggja að sama eigi yfir hæði kynin að ganga, meðan hörnin
séu á barnsaldri.
X'itanlega eru margir samskólar í Englandi. I'eir eru venju-
lega fjölmennari en hinir skólarnir. liru þar tíðum upp að
þúsund nemendum, og jafnvel fleiri.
Nýju skólahúsin á Englandi eru stórkostlega myndarleg og
hentug. Leiksvæði eru stór. Skýli eru reist á leiksvæðunum,
svo að hörnin geti haft ])ar afdrep, þegar slæm eru veður.
Stærsta stofan i skólahúsinu er salurinn og höllin. Þar koma
öll börnin saman -á hverjum morgni.
Vanalega eiga skólastjórarnir ekki heima í skólahúsunum.
En þeim er ætluð þar skrifstofa. Karlmenn hafa kennarastofu
sér og kventnenn aðra. Viða er umsjónarmönnum skóla reist
íbúðarhús á skólalóðum. Hafa þeir umsjón með skólahúsun-
um og sjá um hreinlæti allt.
Sérstakar stofur eru ætlaðar fyrir náttúrufræðikennslu, mynda-
sýningar, handavinnu, matreiðslu og önnur heimilisverk. Sam-
söngur er í skólasalnum.
Eegla er ]>rýðileg í enskum skólum. Skólastjórar ganga á
undan með eftirdæmi og eru sífellt til taks. hvað sem í skerst.
Þeir koma í skólana á settum tíma. Inni í skrifstofum þeirra
eru hækur, sem ]>eir rita nöfn sín í á hverjum degi, ])egar
]>eir koma, og er þeir fara. Þetta gera einnig allir kennararnir.
Skal nákvæmlega tekið til á hvaða mínútu þeir koma í skól-
ana og fara úr þeim. Mun þetta eiga nokkurn þátt í þvi, að