Menntamál - 01.03.1933, Page 8

Menntamál - 01.03.1933, Page 8
40 MENNTAMÁL leikföngunum. Ennfremur má benda á þaÖ, aÖ börn, sem eru á batavegi eftir þunga sjúkdómslegu, byrja að leika sér i rúm- inu löngu áður en þau eru búin að ná sér sv'o, að þau hafi orku aflögu. Þá kemur næst til greina kenning sú um leikina, sem Stan- ley Hall kom fram með 1902. Samkvæmt hans skoðun ættu leikirnir aðeins að vera leifar af athöfnum horfinna kynslóða, leifar, sem hafa haldist við hjá barninu, í samræmi við hið fræga líffræðilögmál Haekles: Þroskaferill barnsins er stutt upprifjun á þróun kynslóðanna. Skoðun sína liyggði Hall á fjölda athugana á leikjum barna. Athuganir þessar leiddu í ljós, að leikirnir þróast eftir því, sem börin eldast, hér um bil á sama hátt og samsvarandi athafnir hafa þróast í lífi kyn- slóðanna. Þannig er það t. d., að veiðileikirnir eflast á aldrin- um 7—9 ára, en verða svo síðar fágætari, en ýmiskonar félags- leikir koma í staðinn. Iiugmynd Halls er sú, að leikurinn sé nauðsynlegur til þess að útrýma öllum þessum leifum frá göml- um tímum, sem orðnar eru ógagnlegar. Eftir því ætti barnið að gera æfingar „eins og froskurinn hreyfir halann til þess að hann hverfi“. Þessar athuganir Halls, sem eru að finna í „Some social aspects of education“ 1902, eru vafalaust réttar að því leyti, að niargt í leikjum barna minnir á áfanga á þró- unarbraut mannkynsins, en liitt telja sálarfræðingar nú yfir- leitt hæpið, að jafn stöðugar og víðtækar æfingar og leikirnir koma af stað, miði til þess eins að veilda og nema í burtu, enda virðist Hall síðar hafa snúið í áttina til þeirrar skýring- ar, sem nú er í grundvallaratriðum talin hin rétta, og sem nú skal vikið að nokkrum orðum. Skoðun þessi er í stuttu máli sú, að leikirnir séu til þess, að æfa ungviðin og búa þau undir hin alvarlegu störf lifsins. Hún kemur fyrst fram hjá ensk- um lækni, Jolm Stratchan, í lítilli bók, „What is play“, sem kom út 1877. En það er Þjóðverjinn Karl Groos, sem ryður henni braut og rökstyður hana ýtarlega frá líffræðilegu sjónar- miði. Rannsóknir hans og ályktanir er að finna í þrem bókum r Leikur dýranna, sem út kom í Jena 1896, Leikir mannanna,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.