Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 9

Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 9
MENNTAMÁL 4i Jena 1899 og Lífsgildi leikjanna, Jena 1910. Groos bendir á ]iá staÖreynd, aÖ leikirnir eru með ýmsu móti eftir því um hva'ða flokk dýra er að ræða, og að leikir ungviðanna líkjast mjög starfsháttum fullorðinna dýra sömu tegundar. Það eru, með öðrum orðum, hér um bil jafn margskonar leikir og eðlis- hvatir, t. d. baráttuleikir, veiðileikir, ástaleikir o. s. frv. Kett- lingur stekkur t. d. á bandhnykil eða pappírsblað, sem hreyfist* fyrir framan hann, á sama hátt og hann seinna stekkur á mús eða fugl, uppáhaldsbráð sína. Kiðlingar og hrútlömb leika sér að því að stangast og æfa þannig hornin, sem síðar verða þeim til varnar og sóknar. Aftur á móti sjást aldrei í leikjum sér- staks dýraflokks athafnir, sem einkenna eðlishvatir annarrar tegundar dýra. Það þýðir lítið að hreyfa pappírsblað eða draga tvinnakefli á undan kiðlingi. Hann stekkur ekki á það til þess að hremma það, fremur en kettlingarnir taka upp á þvi að stangast. Það liggur því beint við að líta á leikina sem æfingar til undirbúnings alvarlegum lifsstörfum. Við fæðingu er meiri hluti meðfæddra eðlishvata allt of vanþroska, sérstaklega hjá æðri dýrum og manninum, til þess að geta fullkomnað hlutverk sitt í þjónustu lífsins. Eðlishvatirnar þurfa þá ýmist að æfast eða fá uppbót gegnum utanaðkomandi lærdóm. Það eru leik- irnir, sem hafa þetta hlutverk að vinna. Eins og það þarf vel og lengi að æfa brögð til þess að verða góður glímumaður, þarf einnig að hafa verið ungur til þess að verða hæfur fullorðinn maður. Hjá hinum lægri dýrum er undirbúningurinn undir fullorð- insárin mjög litilfjörlegur og einfaldur. Ánamaðksafkvæmi t. d. þarf ekki lengi að leika ánamaðk til þess að verða útlærður ánamaðkur. En eftir þvi sem ofar dregur í þróunarstiga dýra- flokkanna, verður lærdómstiminn lengri. Músarunginn verður að leika mús dálítinn tíma til þess að komast í tölu sannra músa, hænuunginn verður að leika foreldra sína um nokkurt skeið til þess að verða góður hani eða hæna, kiðlingurinn og lambið þurfa um talsvert lengri tíma að hoppa, stökkva og stangast

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.