Menntamál - 01.03.1933, Page 12
44
MENNTAMÁL
þá um leiÖ kemur hlutheimurinn til sögunnar með öllum sínum
erfiðleikum, erfiðleikum, sem barnið þarf að sigrast á til að
ná markmiðum sínum og fá fullnægju í leiknum. En um leið
og inn í leikina spinnast erfiðleikar, sem ekki eru í sjálfu sér
keppikefli, koma einkenni starfsins til sögunnar. Hugsum okk-
ur t. d. dreng, sem er að láta bát sigla á tjörn, og allt í einu
kemur vindhviða og hvolfir bátnum. Markmiðið í leiknum er
að láta bátinn sigla frá einum enda tjarnarinnar til annars, en
nú hafa náttúruöflin gripið í taumana, og drengurinn verður
að finna úrræði, vaða út í tjörnina, sækja stöng, fá fullorðinn
mann sér til hjálpar o. s. frv. Allt eru þetta athafnir, sem ekki
eru unnar sjálfra sín vegna, heldur sem tæki til að ná mark-
miði í leiknum, og bera þar af leiðandi einkenni starfsins. Og
eftir því, sem börnin þroskast, og leikir þeirra verða nákvæm-
ari stæling á lífi og menningu þeirra fullorðnu, því fleiri ein-
kenni starfsins fá þeir, og flytjast fet fyrir fet upp eftir lín-
unni leikur—starf. Og þetta er einmitt sá þróunarferill, sem
náttúran sjálf hefir afmarkað barninu til handa. Þessu lögmáli
misþyrmir hinn gamli skóli. Þar er viðkvæðið þetta: Strax
þegar við erum af barnsárunum heimtar lífið af okkur allskon-
ar leiðinleg skyldustörf, og eftir því, sem við lærum betur að
rækja skyldur okkar, án nokkurs tillits til þess, sem við höfum
áhuga á, verðum við þarfari og hamingjusamari menn. Þess
vegna er hest að börnin læri sem allra fyrst að rækja störf, sem
líkjast sem mest alvöru hversdagslífsins, og venjist þannig því
lífi, sem þau síðar eru neydd til að lifa.
Þögnin og kyrrsetan í kennslustundunum á að innræta börn-
unum háttprýði og hlýðni. Hið leiðinlega þvingunarstarf á að
efla þrautseigju, starfsþrek og sjálfsafneitun, utanaðlærdómur
tilsniðinna sanninda fullorðinna manna á að veita börnum þá
þekkingu, sem þau þurfa á að halda til þess að komast áfram
í lífinu þegar þau eru orðin stór.
Tilgangurinn er því, eins og að líkindum lætur, góður, og á
yfirlíorðinu kann fyrirkomulag þetta að líta vel út, en gallinn
er sá, að það brýtur í bága við rök reynslunnar á þann hátt,