Menntamál - 01.03.1933, Qupperneq 13

Menntamál - 01.03.1933, Qupperneq 13
MENNTAMÁL 45 aÖ það fullnægir ekki lífs- og vaxtarþörfum barnanna. Þeg- ar börnin koma í skólann, t. d. 8 ára gömul, er þeim, samkvæmt fyrirkomulagi erfðavenjuskólans, skipað að vinna ákveðin verk á vissum tímum. Verkefnin eru ekki valin með tilliti til áhuga barnanna eða lífsreynslu, heldur miðuð við það eitt, að það sem þau læra, verði þeim gagnlegt, þegar þau eru orðin stór. Þvingunin, leiðindin i stritinu, er bara betra, segja formælend- ur hins gamla skóla. Þau ternja börnunum þolgæði og þraut- seigju. Þolgæði og þrautseigja geta táknað að minnsta kosti tvennt mjög ólíkt. Það er stundum kallað þrautseigja og þol- gæði, þegar menn sætta sig við grimm örlög, láta svo ger- samlega bugast af óviðráðanlegum öflum, að þeir sætta sig við og taka með þögn og þolinmæði öllu, sem að höndum ber. Hin tegund þrautseigju er það, að geta af ásettu ráði þolað allskonar erfiði, áreynslu og þrautir, til þess að ná settu marki, til þess að koma fyrirætlunum og hugsjónum í framkvæmd. I síðari merkingunni er þrautseigjan jákvæð dyggð, sem hverj- um manni, sem einhverju vill áorka, er nauðsynleg, en getur ekki þroskast á annan hátt en þann, að menn eignist áhugamál og læri að skipuleggja störf sín, til þess að koma þeim í fratn- kvæmd. í hinni fyrri tnerkingu eru þrautseigja og þolgæði neikvæðir eiginleikar, sem hjá börnum myndu tákna vaxtar- kyrking og vesaldóm. Hinn gamli skóli, með öllum sínum vald- boðum og þvingunum, virðist vera sérstaklega vel fallinn til að skapa þolgæði af þessu tagi, þ. e. þolgæði, sem sprottið er af kjarkleysi og örvæntingu, og gæti maður þvi jafnvel búist við að áhrif hans væru að þessu leyti ennþá háskalegri en raun ber vitni um. Hjálpin liggur i þvi, að skólunum tekst ekki nema að nokkru leyti að þvinga börnin. Þegar börnum er skip- að að vinna að einhverju senr þau hvorki skilja eða hafa áhuga á, þá leggja þau yfirleitt ekki fram alla krafta sína, heldur að- eins þá minnstu vinnu, sem þau geta komist af með. Ekki þarf annað en að koma inn í kennslustofu þar sem gamaldags kennsla fer fram, til að sannfærast um þetta. Meiri hluti barnanna er mjög oft með hugann íjarri verkefni bekkjarins. Eitt eða tvö börn í

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.