Menntamál - 01.03.1933, Síða 15

Menntamál - 01.03.1933, Síða 15
MEN NTAMÁL 47 þegar hann fullnægir einhverri þörf, andlegri. eÖa líkamlegri. Soltinn matSur hefir áhuga á mat vegna þess a<5 hann hefir þörf fyrir a'Ö ná í liann. Grasaíræðingurinn hefir áhuga á fágætri jurt, vegna þess að það skiptir máli fyrir hann að þekkja hana o. S: frv.“ Hér er annars ekki ástæða til að fara nákvæmlega út í samanburð á skýringum sálarfræðinganna á þessu hugtaki. Það skiptir mestu máli í þessu safnbandi, og um það eru barna- sálarfræðingarnir yfirleitt sarnmálá; að hjá börnunum er áhug,- inn lang-oftast vottur úm þörf fyrir vöxt, líkama eða sálar. Og reynslan sýnir, að hlutir þeir eða viðfangsefni, sem vekja áhuga barnánna, breytast eftir því, sem þau þroskast. Sjálfsagt er það ekki af tilviljun, að áhugi barna á fyrsta ári beinist aðallega að öllu því, sem ber fyrir skynfærin, svo sem að rimlunum á vögg- unni, litnum á sænginni, sólskinsbletti á loftinu, mynd eða ldukku á veggnum. Þá beinist áhuginn einnig að líkamshlutum barnsins sjálfs, fin'grunum, fótunum, en allir þessir hlutir eru áhugaefni hvítvoðungsins aðeins að svo miklu leyti sem þeir eru leikföng fyrir skynfærin og hreyfingar útlimaiina. Þáð eru ekki eiginleik- ar hlutanna eða innri bygging, sem á þessu stigi vekja áhuga, heldur það, að hægt sé að horfa á þá, fylgja hreyfingu þeirra með augunum, þreifa á þeirn, rífa þá í sundur o. s. frv. Ekki er hægt að efast um, að til grundvallar þessum áhuga ungbarns- ins liggja þarfir til vaxtar, einmitt í þær áttir, sem áhuginn beinist. Seinast á fyrsta árinu, og þó sérstaklega á öðru aldursári, kem- ur nýtt áhugamál til sögunnar, sem varir lengi. Það er áhuginn fyrir málinu, orðunum. Barnið er reyndar nokkru fyrr byrjað að mynda atkvæði, en það er tæplega fyrr en io til 12 mánaða, sem það tekur að leggja í sum þeirra ákveðnar merkingar. Upp frá því hefir það um alllangt skeið óhemju áhuga á því að safna í orðaforðabúr sitt. Það er hrifið af orðunum orðanna vegna, það lærir orð og orðatiltæki og finnur til fullnægju í að læra þau jafnvel án þess að skilja hvað þau tákna. Þessi feikna áhugi, sem sprottinn er af sérstakri vaxtarþörf heilans og sálarlífsins, gerir barninu mögulegt að leysa af hendi eitt hið mesta afreks-

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.