Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 22

Menntamál - 01.03.1933, Blaðsíða 22
54 MENNTAMÁL var um aÖ ræða. Ef menn vilja að börnin fái tækifæri til að starfa upp á eigin spýtur, þá verða þau að fá að fást við það, sem þau skilja og hafa sjálf yndi af. Það er ekki ástæðu- laust að gera sér þetta ljóst, þvi að nú er það nokkuð algengt að telja jafnvel það sjálfstæða starfsemi, ef börnin fá að krota með blýanti á blað. Einkum á eg hér við allan þann grúa af handbókum í landafræði, sem út hafa verið gefnar í Svíþjóð, og börnunum er svo ætlað að vinna úr þeim hagfræðilegar töflur og tölur. Þetta er að vísu starf, en efast má um gagn- semi þess. Það er ekki að raunalausu, að meðal uppéldisfræð- inga af hinum nýja skóla er ekki talað um starfsemi barna við nám, heldur sjálfstæða starfsemi og hagnýta. Samkvæmt þessari námsaðferð, lesum við fyrst landfræði- þættina, sem eg nefndi áður, þá um aðrar heimsálfur, og sið- ast um Evrópu. Annars er það venja, svo sem kunnugt er, að lesa fyrst um Evrópu, og menn færa það til, að léttast sé og skemmtilegast að lesa um það, sem næst liggur. En hvað ligg- ur næst? Liggja Þýskaland, Frakkland eða Rúmenía nærri? Nei, ekkert liggur öðru nær barninu en það, sem það hefir séð með eigin augum. Hin mikla villa, sem oft spillir átthaga- fræðinámi, er sú, að menn halda, að ungurn börnum þyki svo ákaflega gaman að öllu, sem snertir ættjörðina. Sannara mun það vera, sem Sven Lönborg heíir sagt: „Menn halda, að barni í Gautaborg ]>yki skemmtilegra að lesa og heyra um Alingsás og Væni en um Jokohama og Dauða- hafið. Þetta er sennilega þveröfugt. Það er hjátrú, að auð- lærðara sé um land, sem liggur innan ioo km. fjarlægðar en hitt, sem liggur iooo km. burtu, það er að segja, ef barnið hefir hvorugt séð með eigin augum. Þvert á móti er því oft þannig farið, að nota þarf hið fjarlæga til að vekja áhuga á því, sem nær liggur. Mynd af Kaffakonu, sem malar mjöl með tveim óhöggnum steinum, getur vakið löngun til að vita, livernig nýtisku kornmylna er gerð. Sögur um það, hvernig villimenn gera eld, getur vakið löngun til að kynnast eldspýtnasmiðju." Það er því af uppeldisfræðilegum ástæðum réttara, að byrja

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.