Menntamál - 01.03.1933, Qupperneq 28

Menntamál - 01.03.1933, Qupperneq 28
6o MENNTAMÁL tímum en í góÖæri. MeÖ ]nú að fá þeim framgengt er helst von aÖ komið ver'Öi í veg fyrir þær geigvænlegu kreppur í fram- tíÖinni, sem nú þjaka og ógna þjóðunum. Sigurður \Tliorlacius. Matyjafir í skólnm. í des. s. 1. reit eg greinarstúf meö þessari fyrirsögn i fjöl- ritaö blaö, sem viö gefum hér út í skólanum og sendum með börnunum inn á heimilin. Menntamál tók greinina upp, án þess aö geta þess, að hún var rituö i þetta heimilablað og því mjög staöbundin. Raunar munu lesendur Mnt.m. hafa skilið að svo hlaut að vera, þó ritið gæti þess ekki, enda tekur efnið sjálft til alþjóðar. Og einmitt vegna þess vil eg bæta hér við fáeinum orðum um reynslu okkar hér í þessum efnum, þó ekki sé hún löng, aðeins 4 mán. Við höfðum ætlað að koma hér á i vetur morgunmat- argjöf í skólanum, allfjölbreyttri, en af fjárhagsástæðum varð eigi unnt að hafa þessa hressingu aðra en mjólk og lýsi. Þegar slíkt er upptekið í skóla, þarf vel að gæta þess, a& engin hætta geti orðið á smitun vegna ónógra þrifa. Enginn grunur um minnstu hættu má komast inn i fólkið, ef vel á aö' fara. Foreldrar eru viðkvæmir í þeim efnum, og er raunar ekki láandi. Við mjólkurgjöfina nægja hin alm. þrif, þvottur og þurkun, en að því er lýsisgjöfina snertir kemur nokkuð annað til greina. Og þar sem það mun nýmæli að gefa lýsi i' skóla, þurfti að takast vel í fyrstu. Ef nota átti venjulega aðferð við lýsisgjöfina, að hella því í skeið og gefa það þann- ig inn, þurfti annað hvort að hafa nokkrar skeiðar í takinu og hreinsa þær jafnóðum t. d. úr heitu sódavatni, eins og gerc var i „Grænuborg" s. 1. sumar, og kostar það ærna vinnu og er seinlegt, eða láta hvert barn hafa sína skeið með sér og

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.