Menntamál - 01.11.1944, Qupperneq 3
MENNTAMÁL
XVII., 7.
NÓVEMBER
1944
Viötal við Friörik Bjarnason
(Friðrik Bjarnason kennari
og tónskáld í Hafnarfirði (f.
27. nóv. 1880) er öllum lands-
mönnum fvrir löngu kunnur
vcgna starfa sinna að söngmál-
um. Hann hefur stjórnað söng-
kórum, gefið út skólasöngbæk-
ur og samið fjölda ágætra og
vinsælla tónsmíða handa eldri
og yngri. En auk alls þessa
á hann að baki sér ntikið
og merkilegt almennt kennara-
starf um 40 ára skeið. Hann
hefur margsinnis farið til ann-
arra landa (síðast 1931) til
þess að auka Jrekkingu sína,
einkum á söngmálum, og Jiá
dvalið í Danmörku, Noregi,
Svíþjóð og Þýzkalandi.)
„Hefur þú ekki kennt látlaust síðan þú laukst kennara-
prófi við Flensborgarskólann vorið 1904?“ segi ég, þegar
ég er setztur í skrifstofu Friðriks Bjarnasonar, and-
spænis hljóðfæri hans og nótnaskáp.
„Jú, það hefur enginn vetur fallið úr fyrir mér,“ svar-
ar Friðrik. „Fyrst kenndi ég í Villingaholtshreppi 1904
—1906, síðan í Gaulverjabæjarhreppi 1906—1908 og loks
hér í Hafnarfirði síðan haustið 1908. En áður hafði ég
kennt einn vetur, 1901—1902, við skólann á Stokkseyri."
„Hvernig var umhorfs í kennslumálum sveitanna, þeg-
ar þú byrjaðir kennslu?" segi ég.