Menntamál - 01.11.1944, Síða 9
MENNTAMÁL
155
er þú vannst oss ungum. —
Farsældar þér
á fimmtugsdegi
óska Menntamál.
Árin 1932 og 3 gáfu nokkrir kennarar Menntamál út,
að því er á titilblaði stendur. Helgi Elíasson fræðslumála-
stjóri og Guðjón Guðjónsson skólastjóri í Hafnarfirði
munu hafa haft veg og vanda af útgáfu þeirri, en Helgi
hafði áður að mestu séð um útgáfu 5. árgangs í forföll-
um Ásgeirs. Samband íslenzkra barnakennara keypti síð-
an tímaritið og gaf út frá ársbyrjun 1935. Gunnar M;
Magnúss, kennari í Reykjavík, var ritstjóri þess 1935, en
Sigurður Thorlacius skólastjóri 1937—1940, og þá Gunn-
ar aftur 1941—1943.
Saga Menntamála verður ekki sögð hér að þessu sinni,
hvorki gerð grein fyrir útbreiðslu þeirra né getið um
efni, sem hefur verið allfjölbreytt á þessum tuttugu ár-
um og margir góðir menn átt þar hlut að verki. En
vegna þessara tímamóta hefur útgáfustjórnin snúið sér
til þeirra manna, er verið hafa ritstjórar Menntamála,
og beðið þá um stutta grein í tímaritið. Hafa þeir allir
brugðizt vel við þeirri beiðni. Það varð þó að ráði með
ritstjóranum og Ásgeiri Ásgeirssyni, að Menntamál birtu
viðtal við hann í greinar stað, og er gert ráð fyrir, að
það sé fyrsta viðtalið af þrem eða fjórum, og komi hin
síðar og fjalli um efni sem Ásgeiri og ritstjóranum eru
hugleikin og lesendum Menntamála ekki óviðkomandi. Fer
þetta viðtal hér á eftir, en síðan koma greinar hinna.